Atvikin tvö má sjá í spilaranum hér fyrir neðan. Fyrra skiptið átti sér í stað í leik gegn Fram síðasta sunnudag þegar Viktor Örlygur Andrason reyndi að þruma boltanum upp völlinn úr varnarlínunni. Síðan í gær átti Ari Sigurpálsson skot sem virtist stefna á markið, hefði Helgi ekki staðið fyrir og fengið boltann í andlitið.
„Þau voru ágæt þessi skot en ég í raun og veru finn ekki neitt fyrir þessu [daginn eftir]. Þetta er ekki mjög þægilegt sko, sérstaklega svona fyrst, en ef það hittir þannig að maður fær ekki heilahristing eða rotast ekki þá sleppur maður nokkuð vel. Þarf bara aðeins að anda fyrstu sekúndur en í báðum tilfellum slapp ég helvíti vel,“ sagði Helgi í samtali við Vísi.
Í bæði skipti fékk Helgi aðhlynningu sjúkraþjálfara, en hann var fljótur að segja honum að hafa ekki miklar áhyggjur, og hélt leik áfram.
„Hann spyr mig strax hvort ég sé góður, svo byrjar hann að tjékka og spyrja hvað staðan er, hvort ég sé alveg út úr því. En ég læt hann vita strax að ég sé góður upp á það að gera, ekkert vankaður eða dottinn út.“
Aðspurður segist Helgi þurfa að leggja liðsfélögum sínum línurnar, eða einfaldlega vera ekki fyrir þegar þeir þruma í boltann.
„Ég þarf að ræða við þá eða drulla mér í burtu bara,“ sagði Helgi hlæjandi að lokum.