Íslenski boltinn

Sjáðu Aron bæta marka­metið og spennu hjá Þór

Andri Broddason skrifar
Aron Sigurðarson náði naumlega að bæta markametið í efstu deild karla á Íslandi.
Aron Sigurðarson náði naumlega að bæta markametið í efstu deild karla á Íslandi. Anton/Vísir

Lokaumferð Bestu deildar karla fór fram í gær þar sem mikil dramatík var í hinum ýmsu leikjum. Aron Sigurðarson, leikmaður KR, náði að bæta markametið í efstu deild á Íslandi með því að skora tvö mörk og Þór náði að vinna FH og þar með halda sér uppi í Bestu deildinni á næsta ári.

Markametið hefur legið þungt á Aroni en mikil markaveisla var í Vesturbænum í gær þegar liðið tók á móti Breiðablik. Aron nýtti sér markaveisluna og náði að skora tvö mörk og þar með er hann markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar á Íslandi með 23 mörk.

Sigurður Breki Kárason var með óheppilega þrennu en hann skoraði tvö mörk á stuttum tíma. Svo lenti hann í því óhappi að skora sjálfsmark en fyrir utan það átti hann frábæran leik.

Þór þurfti á sigri að halda til þess að tryggja sér áframhaldandi sæti í Bestu deild karla á næsta ári. Liðið var í mikilli baráttu við KA og sendi Þór erkifjendurna niður á sama tíma og þeir héldu sér uppi. Þór heimsótti FH á Pepsi-vellinum í Laugardal þar sem grasið í Kaplakrika var frosið og óleikhæft. 

Mikill hiti var á leiknum og voru margir Þórsarar mættir að styðja sína menn. Þegar Þór vann leikinn urðu fagnaðarlæti stuðningsmanna það mikil að auglýsingaskilti hrundu og menn féllu um koll. Sem betur fer komust þó allir heilir frá fagnaðarlátunum og heldur Þór áfram í Bestu deildinni á næsta ári.

KA var í fallsæti fyrir lokaumferðina og þurfti sigur og treysta á að Þór myndi missa stig til þess að halda áfram í Bestu deildinni á næsta ári. KA vann ÍBV örugglega á heimavelli og gerði því allt sem liðið gat í leiknum. Þórsarar unnu þó sinn leik og mun því KA vera í Lengjudeildinni á næsta ári.

Margir Valsarar eru eflaust fegnir að tímabilið sé búið enda stóð það ekki undir væntingum. Valsarar vilja þó helst gleyma lokaleiknum þar sem Stjarnan valtaði yfir Val í Garðabænum. Leikurinn endaði 6-0 og með stórsigrinum náði Stjarnan óvænt að tryggja sér forsetabikarinn sem er fenginn fyrir að vera í efsta sæti neðri hluta Bestu deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×