Ten Hag hundfúll eftir tap fyrir Rosenborg: „Það eru kröfur hjá United“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. júlí 2024 07:01 Erik ten Hag á hliðarlínunni á Lerkendal vellinum í gær. getty/Ash Donelon Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, var langt frá því að vera sáttur eftir tap sinna manna fyrir Rosenborg, 1-0, í æfingaleik í Þrándheimi í gær.
Rosenborg var sterkari aðilinn í leiknum og átti meðal annars fjögur skot í tréverkið áður en Noah Holm skoraði sigurmark liðsins í uppbótartíma. Ten Hag tefldi fram nokkuð sterku byrjunarliði en gerði ellefu breytingar í hálfleik. Hann húðskammaði sína menn eftir leikinn. „Úrslitin eru ekki afgangsstærð. Við erum á undirbúningstímabili en það eru kröfur hjá Manchester United. Þú vinnur leiki en tapar þeim ekki. Ef þú getur ekki unnið leiki, ekki tapa þeim eins og við gerðum á síðustu sekúndunni,“ sagði Ten Hag. „Frammistaðan er mikilvægari og hún var undir okkar kröfum,“ bætti Hollendingurinn við. Ten Hag hrósaði markverðinum unga, Radek Vitek, fyrir frammistöðu hans í leiknum en fannst samherjar hans ekki verja mark United nógu vel. „Liðið gaf honum tækifæri til að eiga nokkrar mjög góðar vörslur því frammistaða okkar sem lið var ekki nálægt því nógu góð,“ sagði Ten Hag. Næsti leikur United er gegn Rangers í Edinborg á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Bruno til bjargar Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Nkunku til sölu þrátt fyrir að vera markahæstur Nistelrooy yfirgefur Man United með tilkomu Amorim Fékk símtal frá Arteta en bætti Ödegaard í hópinn Myndband sýnir dómara urða yfir Liverpool og kalla Klopp kuntu Fundað um framtíð Guardiola í vikunni Amorim getur ekki byrjað alveg strax í nýju vinnunni Arteta svekktur eftir jafntefli á Brúnni: „Snýst um að vinna“ „Frammistaðan var góð“ Nistelrooy þakklátur en veit ekki hvað tekur nú við Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Á bara eftir að skora á Anfield og heimavelli Brentford „Því miður gefur sigur á Man City aðeins þrjú stig“ „Kemur alltaf að því að eitthvað gerist í fyrsta skipti á ævinni“ Gestirnir réðu ekki við hraðann í strákunum hans Slot Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði óvænt stigum Brighton sá til þess að Man City tapaði fjórða leiknum í röð „Ég held að hann sé betri útgáfa af Haaland“ Guardiola skilur ekkert í valinu á Grealish Sjá meira