Hinn góði gestur sem öllu illu hafnar Jakob Bjarnar skrifar 30. júlí 2024 09:41 Á engan er hallað þó Davíð Stefánsson sé nefndur höfuðskáld Norðurlands. Um hann verður sérstök dagskrá - messa - á Akureyri um helgina. Þeir sem eru ljóðelskir og andlega sinnaðir hafa þá eitthvað við sitt hæfi. „Sá einn er skáld, sem þögull getur þráð, og þakkað guði augnabliksins náð.“ Þannig orti Davíð Stefánsson í Kvæðinu til fuglanna. Í mörgum ljóða skáldsins frá Fagraskógi er að finna trúarleg stef, trúarglímu og andlega leit, en líka trúartraustið sem ber andann uppi á náðarstund í návist guðs, eins og Davíð orðar það sjálfur í sama kvæði.
Á sunnudegi á Verslunarmannahelgi, sem að þessu sinni ber upp á 4. ágúst, er boðið upp á helgi- og ljóðastund í Davíðshúsi á Akureyri kl. 11. Listafólkið Birkir Blær, Eyþór Ingi Jónsson og Rakel Hinriksdóttir flytja ljóð Davíðs Stefánssonar í tali og tónum. Sr. María G. Ágústsdóttir leiðir stutta íhugun út frá kvæðum Davíðs. Ragnheiður Gunnbjörnsdóttir annast meðhjálparastörf og Haraldur Þór Egilsson, safnstjóri, opnar húsið. Séra María fer norður í afleysingar Séra María er að fara í afleysingar norður og er hoppandi ánægð með að þetta skuli vera hennar fyrsta verkefni. Menn eru nú í óða önn við að leggja drög að góðri Verslunarmannahelgi og Davíðsmessa er ekki daglegur viðburður en nokkuð sem andlega þenkjandi og ljóðelskir ferðalangar ættu ekki að láta fram hjá sér fara verði þeir á norðurslóðum. Messan hefur verið haldin í nokkur skipti áður, síðast um verslunarmannahelgi í fyrra. Séra María er sóknarprestur í Fossvogsprestakalli en mun starfa sem Glerárkirkjuprestur um hríð og hún er afskaplega ánægð að Davíðsmessan skuli vera hennar fyrsta verkefni. „Ég þarf aðeins að jarða hérna fyrir sunnan og svo er ég bara farin norður,“ segir María. Hún segir þetta til komið vegna persónulegra ástæðna, nefnilega þeirra að hún var að eignast barnabarn á Akureyri. Og það er svigrúm til að skáka prestum til þegar svo ber undir. Eyþór Ingi er auk þess að vera organisti við Akureyriarkirkju, freelance tónlistarmaður og hefur fengist við fjölbreytt tónleikahald. Hann er stjórnandi Hymnodiu. „Ég verð þarna í fimm mánuði. Já, ef allir samþykkja. Á meðan verður maður hér jafngamall syni mínum sem leysir af í Fossvogsprestakalli. Davíð fastagestur hjá afa og ömmu Séra María hefur verið nú í rúmlega átta ár í Fossvogskirkju og kom það ekki til af góðu, en sóknarpresturinn þar var sakaður um kynferðisbrot og María var kölluð til. „Já, þetta voru erfiðar aðstæður. En ég hef starfað sem prestur í rúm þrjátíu ár og alltaf í Reykjavík.“ Hún segir Davíðsmessu frábært uppátæki, þetta var í fyrra og einhver skipti áður. Hún gangi inn í það sem þegar virðist orðin hefð. „Það er gaman að hafa eitthvað svona öðruvísi um verslunarmannahelgi. Uppbrot. Davíð fær að tala. Hann verður í forgrunni og hans ljóð sem eru mjög mörg tilvistarlegs eðlis og trúarlegs. María segist sjálf eiga tengsl við Davíð. „Amma mín og afi voru prestshjón á Möðruvöllum. Davíð var einn af þeirra góðu vinum. Hann var oft á ferð í sveitinni, og átti sitt fasta herbergi hjá afa og ömmu. Eitt sinn voru aðrir gestir í „herberginu hans“ og þá fór hann í fússi. Honum fannst hann eiga þetta herbergi,“ segir María og lætur hugann reika. Tónlistarmaðurinn Birkir Blær er 24 ára tónlistarmaður frá Akureyri en hann hefur verið búsettur í Stokkhólmi undanfarin ár. Birkir sigraði í sænsku Idolkeppnini árið 2021. Faðir hennar, Ágúst Sigurðsson, var einnig prestur og hann setti gjarnan plötu á fónninn með upplestri Davíðs á eigin ljóðum. „Ég heyrði þetta af og til, þessa miklu og djúpu rödd, þú mikli eilífi andi… Já, Davíð er heimilisvinur hjá mér þó hann væri löngu dáinn, hann fylgdi pabba. Konan sem kyndir ofninn minn, sem er mitt uppáhald.“ Davíð á einn sálm í sálmabók Þjóðkirkjunnar Rakel Hinriksdóttir er blaðamaður en einnig ljóðskáld og hún mun leggja sitt af mörkum til dagskrárinnar. María segir að Davíð hafi haft mikil áhrif á sitt líf, til góðs. „Og þess vegna varð ég hoppandi glöð að geta byrjað svona með stæl. Fá að vera í Davíðshúsi.“ Klerkur segir að þeir séu æðislegir tónlistarmennirnir sem komi að dagskránni. Eyþór Ingi verði með tónleika um helgina, með einum Álftagerðisbróðurnum í Akureyrarkirkju og Birkir Blær í Listigarðinum á laugardagskvöldinu. „Ég verð á bakvakt og vona að allir hegði sér vel í umferðinni svo ég komist á þessa tónleika. Eyþór Ingi og Birkir Blær eiga helgina. Og Rakel er blaðamaður og frábært ljóðskáld. María bendir á að Davíð Stefánsson eigi einn sálm í sálmabók þjóðkirkjunnar sem ber heitið Á föstudaginn langa. Margir þekkja hann með lagi Guðrúnar Böðvarsdóttur. Í eldri sálmabókum voru fimm erindi þessa magnaða trúarljóðs en átta erindi eru birt í nýju sálmabókinni. Þar á meðal er þetta: Þú ert hinn góði gestur og Guð á meðal vor, og sá er bróðir bestur sem blessar öll þín spor og hvorki silfri safnar né sverð í höndum ber en öllu illu hafnar og aðeins fylgir þér.
Tónlist Þjóðkirkjan Tónleikar á Íslandi Mest lesið Ólétt 17 ára, kærastinn með krabbamein, í fjórum vinnum, meistaranám og flott starf Áskorun Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Stella í orlofi á stóra sviðið Menning Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Lífið Fleiri fréttir Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete Sjá meira