Staða Toney í uppnámi Aron Guðmundsson skrifar 31. júlí 2024 15:31 Ivan Toney í leik með Brentford á síðasta tímabili Vísir/Getty Staða enska framherjans Ivan Toney, sóknarmanns enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, hefur gjörbreyst eftir að maðurinn sem félagið hafði hugsað sér sem arftaka hans meiddist á hné og verður lengi frá.
Brasilíski framherjinn Igor Thiago var keyptur til Brentford frá belgíska félaginu Club Brugge núna í sumar á metfé, rúmar þrjátíu milljónir punda, en í æfingarleik liðsins gegn AFC Wimbeldon á dögunum meiddist hann á hné og hefur nú undirgengist skurðaðgerð í ferli við að takast á við þau meiðsli. Igor Thiago í leik með Brentford gegn AFC Wimbeldon á dögunumVísir/Getty Nú tekur við endurhæfing í einhverja mánuði fyrir Thiago en meiðslin setja strik í reikningin varðandi stöðu enska landsliðsframherjans Ivan Toney sem búist var við að myndi yfirgefa herbúðir Brentford fyrir upphaf næsta tímabils. Toney á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Brentford og hefur ekki merki þess efnis að vilja skrifa undir nýjan samning við félagið. Í stað þess að missa hann frá sér á frjálsri sölu eftir komandi tímabil má leiða að því líkur að forráðamenn Brentford hafi viljað reyna selja framherjann. Nú gæti Brentford hins vegar neyðst til að halda Toney lengur og hefja nýtt tímabil með honum í fjarveru Thiago. Toney á að baki 141 leik fyrir hönd Brentford og hefur í þeim leikjum skorað 72 mörk og gefið 23 stoðsendingar.
Enski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Á sjúkrahús eftir yfirlið á landsleiknum Handbolti Dagskráin: Úrslitaleikur Arsenal og City Sport Þórsarar stofna söfnunarreikning vegna sektar KKÍ Körfubolti Báðir þurfa bikar Enski boltinn Fleiri fréttir Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Arsenal - Man. City | Fyrsti titill tímabilsins í boði Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Báðir þurfa bikar Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Löng bið Leeds eftir marki lengist Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Bras á gestunum og Brighton í Meistaradeildarbaráttu Ekitiké fór grátandi af velli Sjáðu mörkin og vítadómana sem United-menn eru æfir yfir Hér eftir verður það refsivert að smygla sér inn á leiki „Annaðhvort eru bæði brotin víti eða hvorugt“ Maguire fékk rautt og United missti tvívegis niður forystuna Arteta gaf ekkert upp um þátttöku Ödegaard í úrslitaleiknum Vandræðalegi markvörður Tottenham gæti átt strax endurkomu Yfirlýsing Liverpool: „Leikmenn okkar eru manneskjur en ekki skotmörk“ Býst við því að Salah jafni sig fljótt „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Guardiola: Liverpool-liðið hans Klopp er erfiðasta áskorunin en ekki Real „Þýðir mikið fyrir mig og leikmennina að fá ást frá stuðningsmönnunum“ Andy Carroll nýr stjóri Dagenham & Redbridge Mainoo, Maguire og Shaw eigi allir að fara á HM Segir að Anfield sé orðinn einn auðveldasti staðurinn til að spila á Vill verða varamaður Kane á HM í sumar Isak sást á æfingu Liverpool Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Sjá meira