Ölfus, land tækifæranna Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar 12. ágúst 2024 11:32 Atvinnulífið blómstrar í Ölfusi. Sveitarfélagið og innviðir þess standa sterkum fótum og tækifærin eru fjölmörg. Eitt þeirra tækifæra sem blasa við er að ýta undir sérstöðu sveitarfélagsins sem býður upp á raunverulega einstakt svæði til brimbrettaiðkunar, ekki aðeins á landsvísu heldur á heimsvísu. Svæðið er hins vegar í mikilli hættu vegna þess að meirihluti sveitarfélagsins hefur samþykkt að moka yfir það landfyllingu. Það er illa rökstudd aðgerð og á engan hátt í samhengi við hönnun á stækkun hafnarinnar sem nú er að eiga sér stað. Ekki hafa enn verið færð fullnægjandi rök fyrir landfyllingunni sem réttlæta það að eyðileggja tækifærin sem fylgja því að vera eina sveitarfélagið á Íslandi sem býr að öldu sem þessari og jafnframt eyðileggja varanlega fyrir ört stækkandi brimbrettaíþrótt. Aldan í Þorlákshöfn er besta brimbrettaalda í Skandinavíu. Hún brotnar á flóði og fjöru. Hún er mjög löng eða 300 metrar þegar best lætur og er það afar sérstakt. Hún er mjög aðgengileg og áhættulaust er bæði að komast ofan í sjóinn ofan við ölduna og upp úr sjónum neðan við hana. Aldan brotnar í báðar áttir og brotnar bæði við lítið brim og þegar öldurnar eru risastórar. Af þessum sökum hentar hún breiðum hópi iðkenda. Botninn við ölduna er með stóru rúnuðu grjóti sem er einstakt á suðurströnd landsins. Það gerir það að verkum að yfirborð sjávar verður slétt þegar aldan brotnar. Víðast hvar á s-vestur horninu er sjávarbotninn grófur og úfinn og því er þessi staður í Þorlákshöfn sá eini á Suðurlandi öllu sem gerir brimbrettafólki kleift að stunda sína íþrótt. Þorlákshöfn er algjör paradís fyrir brimbrettaiðkun því austan megin við höfnina er löng sandfjara þar sem byrjendur í íþróttinni geta fetað sín fyrstu skref og náð upp færni. Þegar næg færni er til staðar færa þau sig hinum megin við bryggjuna, við Hafnarnesvita þar sem umrædd alda verður til. Hún er fyrir lengra komna og því nauðsynleg íþróttinni svo hægt sé að taka framförum í meira krefjandi aðstæðum sem svipa til þeirra sem eru erlendis. Þessu má líkja við miserfiðar skíðabrekkur, þar sem allir iðkendur geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Kosturinn við brimbrettaíþróttina er sá að svæðið kostar ekkert, það er komið til af náttúrunnar hendi en sé það ekki varðveitt mun það hverfa að eilífu. Í Brimbrettafélagi Íslands eru sömu aðilar og börðust fyrir því fyrir um 20 árum síðan að snjóbrettaiðkendur fengju að nota skíðalyfturnar í Bláfjöllum. Á þeim tíma var það ekki leyfilegt en þykir nú sjálfsagt. Snjóbrettaíþróttin var þá að ryðja sér til rúms en nú er eðlilegt að snjóbretti ferðist um skíðabrekkurnar rétt eins og skíði og fjölmargir eiga brettabúnað og stunda íþróttina. Á sama hátt er brimbrettaíþróttin ný hér á landi en fer ört vaxandi og eru nú um 500 manns í Brimbrettafélagi Íslands. Aldan við Hafnarnesvita er eins og fyrsta flokks skíðasvæði af náttúrunnar hendi. Ímyndið ykkur ef það ætti að moka niður eða steypa yfir Bláfjöll. Undirrituð hitti nýgift hjón sem sátu á kaffihúsi í Þorlákshöfn og sögðu frá því að þau hefðu valið að koma til Þorlákshafnar gagngert til þess að stunda brimbretti á þessari einstöku öldu, alla leið frá Ástralíu. Fyrstu heimildir um það þegar skrifað var um svæðið og ölduna í Þorlákshöfn eru úr tímaritinu SURFER frá árinu 1997. Síðan þá hefur verið fjallað um hana í ýmsum heimildarmyndum og virtustu tímaritum sem tengjast íþróttinni. Þau sem stunda brimbretti eru á margan hátt eins og fólk sem vill klífa ólík fjöll og ferðast um heiminn til þess að upplifa markverðustu staði heims. Aldan við Hafnarnesvita í Þorlákshöfn er einn af þessum markverðu stöðum heims fyrir þau sem stunda brimbrettaíþrótt. Okkar eigin Kilimanjaro, K2 og Everest. Útivistarparadísin Ölfus Nú hefur mikið verið rætt um fjögur hótel sem eiga að rísa í og við Þorlákshöfn, sum komin af stað og önnur á hugmyndastigi. Ef ég væri að horfa í tækifærin fyrir slíka fjárfestingu myndi ég líta til þess hvaða sérstöðu sveitarfélagið Ölfus hefur og sjá að það er algjör útivistarparadís. Í Þorlákshöfn er einn af bestu golfvöllum landsins, langir og góðir reiðstígar, frábær sundlaug, mótorkrossbraut, fjallahjóla- og æfingasvæði og auðvitað allar gönguleiðirnar meðfram ströndinni og upp til fjalla, Reykjadalur og fleiri. Brimbrettaiðkun setur algjörlega punktinn yfir i-ið í að marka sveitarfélaginu sérstöðu sem útivistarparadís. Hægt væri að sækja fram bæði á erlendan markað og innlendan, fyrir byrjendur jafnt og lengra komna ef við sem stjórnum sveitarfélaginu höfum vit á því að vernda svæðið sem markar þessa sérstöðu. Aldan sem um ræðir er segullinn sem Þorlákshöfn hefur lengi leitað eftir til þess að byggja upp ferðaþjónustu. Þessi segull er í túnfætinum beint fyrir framan okkur - þessi segull kostar ekki krónu heldur aðeins viljann til að varðveita hann. Það er auðvelt að sjá fyrir sér uppbyggingu við Hafnarnesvita sem dregur fleira fólk að. Heitar laugar, veitinga- og útsýnisstaðir, leikvöllur sem nýtir efniviðinn á svæðinu og aðstaða fyrir fólk sem vill stunda sjóinn sem dæmi. Það er ekki eftirsóknavert að byggja upp hótel og laða að skemmtiferðaskip til þess eins að vera næturstaður og sjá fólk keyra burt úr bænum eftir morgunmat. Það er eftirsóknavert að verða eftirminnilegur áfangastaður með fjölbreyttar upplifanir á allra færi. Þar liggja tækifærin fyrir íbúa í Ölfusi. Ef ég væri erlendur ferðamaður þætti mér sjálfsagt eftirminnilegt að sjá brimbrettaiðkendur út í ísköldu Atlantshafinu og jafnvel fá tækifæri til að prófa. Það væri algjörlega einstök upplifun. Sú mikla uppbygging í atvinnulífinu í Ölfusi sem er á teikniborðinu getur sannarlega verið jákvæð ef hún er unnin í samráði við íbúa, aðra hagsmunaaðila og í sátt við náttúruna. Sveitarfélagið hefur ekki staðið fyrir einum einasta íbúafundi í tengslum við þessi verkefni og starfar meirihlutinn og bæjarstjóri þeirra án atvinnustefnu. Minnihlutinn hefur ítrekað kallað eftir því síðustu tvö ár að farið verði í vandaða vinnu við gerð atvinnustefnu með þátttöku íbúa. Atvinnuupbygging verður að stuðla að hagkvæmri þróun byggðar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi eins og segir í aðalskipulagi sveitarfélagsins sem bæjarstjóri sagði nýlega í fréttum RÚV að væri ígildi atvinnustefnu. Í aðalskipulagi segir líka að nýting auðlinda verði að vera sjálfbær og að landnýting stuðli að heilnæmu umhverfi og verndun og varðveislu sérstæðrar náttúru, menningar og sögu sem felst meðal annars í byggingararfi og landslagi. Höfundur er bæjarfulltrúi í Ölfusi Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ölfus Hafið Ferðamennska á Íslandi Mest lesið Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason Skoðun Er pláss fyrir unga karlmenn í kvennaheimi? Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Gamla fólkið okkar býr við óöryggi – kerfið okkar er að bregðast Valný Óttarsdóttir skrifar Skoðun Siðferðileg reiði er ekki staðreynd Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fiktið byrjar ekki sem sjúkdómur Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Jólagjöf ríkisstjórnarinnar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Einfaldlega íslenskt, líka um jólin Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Vönduð lagasetning á undanhaldi Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Borgar það sig að panta mat á netinu? Jóhann Már Helgason skrifar Skoðun Staðreyndir um móttöku flóttafólks í Hafnarfirði Margrét Vala Marteinsdóttir skrifar Skoðun „Fullkominn fjandskapur í garð smáríkis“ Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar Hr. X bjargaði jólunum Anna Bergþórsdóttir skrifar Skoðun Öll lífsins gæði mynda skattstofn Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Þegar lögheimilið verður að útilokunartæki Jack Hrafnkell Daníelsson skrifar Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar Skoðun Mýtuvaxtarækt loftslagsafneitunar Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað ætlið þið að gera fyrir okkur Seyðfirðinga? Júlíana Björk Garðarsdóttir skrifar Skoðun Jarðvegstilskipun Evrópu Anna María Ágústsdóttir skrifar Skoðun Jólagjöfin í ár Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samsköttun, samnýting eða skattahækkun? Kristófer Már Maronsson skrifar Skoðun Framkvæmdir við gatnamót Höfðabakka Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Á krossgötum í Atlantshafi Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Börnin fyrst – er framtíðarsýn Vestmannaeyja að fjara út? Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun Jólahugvekja trans konu Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Erum við sérstökust í heimi? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Stóra myndin í fjárlögum Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun „Rússland hefur hins vegar ráðist inn í 19 ríki“ Einar Ólafsson skrifar Skoðun Blessuð jólin, bókhaldið og börnin Kristín Lúðvíksdóttir skrifar Skoðun Þetta varð í alvöru að lögum! Snorri Másson skrifar Sjá meira
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson skrifar
Skoðun Réttaröryggi nemenda og framkvæmd inntöku í framhaldsskóla Karen María Jónsdóttir skrifar
Skoðun Vandfýsin og útilokandi samstaða: Ólýðræðislegir tilburðir íslensku elítunnar gegn réttindabaráttu verkaðlýðsins Armando Garcia skrifar
Skoðun Gerum betur í borgarstjórn. Endurheimtum traust og bætum þjónustu við borgarbúa á öllum aldri Magnea Marinósdóttir skrifar
Hvers vegna heyra yfirvöld á Íslandi ekki grátbeiðni Sameinuðu þjóðanna og yfir 200 hjálparsamtaka um aðgerðir gegn Ísrael? Björn B. Björnsson Skoðun