Hrepptu gullið annað árið í röð í Buffalo Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. september 2024 15:16 Þeir félagar á góðri stundu með enn einn bikarinn fyrir besta vænginn. Félagarnir Justin Shouse og Lýður Vignisson sem reka vængjastaðinn Just Wingin' It eru nýkomnir heim frá Buffalo í Bandaríkjunum þar sem þeir unnu annað árið í röð til gullverðlauna í árlegri vængjakeppni á upprunastað skyndibitans vinsæla. „
Við erum með fjóra bikara í farteskinu eftir helgina og vitum eiginlega ekki hvernig við eigum að koma með þá heim,“ segir Justin Shouse hlæjandi í samtali við Vísi. Þeir félagar hafa um nokkurra ára skeið rekið vængjastaðinn Just Wingin' It og er hann nú á þremur stöðum, í Garðabæ, Reykjavík og í Reykjanesbæ. Í ár unnu þeir félagar meðal annars til aðalverðlauna hátíðarinnar fyrir besta vænginn, fyrir Honey Badger vænginn. Justin segir að undanfarið hafi verið boðið upp á hann á veitingastöðum þeirra félaga án þess þó að hann sé að finna á matseðlinum. Það er ekki ofsögum sagt að Justin sé í skýjunum með árangurinn. „Þetta er náttúrulega þvílíkur heiður. Við höfðum tekið eftir því að þessi sósa var gríðarlega vinsæl heima, oft var þetta meðal efstu fimm vinsælustu sósanna sem við bjóðum upp á að degi loknum og það þrátt fyrir að hún sé ekki einu sinni á matseðlinum,“ segir Justin sem þekktur er fyrir einstakt viðmót sitt og hressleika. Það er ekki tekið út með sældinni að reka einn besta vængjastað í heimi. Þeir félagar hafa ekkert pláss fyrir fjóra bikara. Minnir á brauðsneiðina frá mömmu Hátíðin í Buffalo er sú stærsta í heimi. Þangað mæta veitingamenn úr öllum heimshornum, bæði innan og utan Bandaríkjanna. Þeir félagar unnu sömuleiðis til verðlauna í þremur öðrum flokkum: Fyrir frumlegustu sætu sósuna (e. Creative Sweet) en hana hrepptu þeir fyrir French Toast sósuna. Þá hrepptu þeir gullverðlaun fyrir bestu stemninguna í kringum básinn (e. Festival Spirit Award) og svo silfurverðlaun í flokki svokallaðra þurra sósa (e. Best Dry Rub) fyrir Lemon Pepper Cajun sósuna. „Ég var sérstaklega hreykinn af French Toast verðlaununum, þó ég sé auðvitað himinlifandi með þetta allt saman,“ segir Justin. Ástæðuna segir hann þá að sósan minni helst á brauð sem mamma hans hafi alltaf gert fyrir hann í æsku og það sem hann gerir nú fyrir börnin sín. „Það var mikill áhugi á sósunni hjá okkur líka sem kom skemmtilega á óvart,“ segir Justin sem segir ljóst að hróður hennar hafi borist alla leið til Buffalo. Hún hafi óvænt orðið afar vinsæl eftir að hafa slegið í gegn á túristasíðu þar sem ónefndur túristi hrósaði henni í hástert. „Þetta ferðalag hefur verið draumi líkast. Maður er náttúrulega fyrst og fremst þakklátur starfsfólkinu okkar, sem heldur þessu gangandi á hverjum degi á þremur stöðum en líka vinum okkar hér í Bandaríkjunum og víðar sem sjálfir eru að reka svona staði og hafa hjálpað okkur mikið undanfarin ár,“ segir Justin að lokum.
Veitingastaðir Íslendingar erlendis Tengdar fréttir Hef unnið fyrir ríkisborgararéttinum Justin Shouse hefur sett svip sinn á íslenskan körfubolta síðastliðin átta ár. Fátt benti til þess að Bandaríkjamaðurinn 23 ára, sem renndi blint í sjóinn í Vík í Mýrdal haustið 2004, yrði kjörinn besti leikmaður efstu deildar sjö árum síðar. Í dag er hann óumdeildur leiðtogi Stjörnunnar sem margir reikna með að tryggi sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil áður en apríl er allur. 13. apríl 2013 10:00 Mest lesið Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira
Hef unnið fyrir ríkisborgararéttinum Justin Shouse hefur sett svip sinn á íslenskan körfubolta síðastliðin átta ár. Fátt benti til þess að Bandaríkjamaðurinn 23 ára, sem renndi blint í sjóinn í Vík í Mýrdal haustið 2004, yrði kjörinn besti leikmaður efstu deildar sjö árum síðar. Í dag er hann óumdeildur leiðtogi Stjörnunnar sem margir reikna með að tryggi sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil áður en apríl er allur. 13. apríl 2013 10:00