Bandaríkjamenn að eignast Everton Sindri Sverrisson skrifar 23. september 2024 14:17 Everton tókst að halda sér uppi í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, þrátt fyrir að stig væru dæmd af félaginu, en er aðeins með eitt stig það sem af er nýrri leiktíð. Getty/James Gill Bandaríska félagið The Friedkin Group hefur komist að samkoulagi við Farhad Moshiri, eiganda Everton, um kaup á 94% hlut í enska knattspyrnufélaginu.
Everton greinir frá samkomulaginu á miðlum sínum í dag. Kaupin velta núna á samþykki ensku úrvalsdeildarinnar og enska knattspyrnusambandsins, auk fjármálayfirvalda. „Við erum ánægð með að hafa náð samkomulagi um að verða forsjáraðilar þessa goðsagnakennda félags. Nú einbeitum við okkur að því að fá nauðsynleg samþykki til að ganga frá kaupunum,“ sagði talsmaður The Friedkin Group í tilkynningu og bætti við: „Við hlökkum til að veita félaginu stöðugleika og fólki innsýn í framtíðarsýn okkar, sem meðal annars snýr að því að ljúka gerð nýja Everton leikvangsins við Bramley-Moore bryggjuna.“ pic.twitter.com/GgmqhvkkCM— Everton (@Everton) September 23, 2024 Dan Friedkin, stjórnarformaður The Friedkin Group, er einnig eigandi ítalska félagsins Roma. Hann er metinn á 5,7 milljarða punda samkvæmt Forbes, eða yfir 1.000 milljarða króna. Everton hefur glímt við fjárhagsörðugleika síðustu misseri og stig voru tekin af liðinu á síðustu leiktíð, vegna brota á fjármálareglum. Áætlað er að liðið byrji að spila á nýja vellinum sínum á næsta tímabili.
Enski boltinn Mest lesið City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Uppgjörið: Ísland - Sviss 5-1| Draumurinn um EM lifir Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Lúxemborg - Ísland | Hvernig svara menn fyrir sig? Fótbolti Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu Sjá meira