Hvað breytist/gerist með óframseljanlegt DAGA-kerfi sem fiskveiðistjórn ?
- Úthlutun DAGA í stað tonna fyrir skipa/bátaflokka.
- Allur veiddur fiskur skilar sér í land.
- Brottkast/framhjá-löndun/ísprufusvindl heyrir sögunni til (hafnarvigt og fiskmarkaðir vigta fiskinn)
- Heimavigtun og endurvigtun heyrir sögunni til (hafnarvigt og fiskmarkaðir vigta fiskinn)
- Allt eftirlit verður einfaldara og skilvirkara.
- Nýliðun í atvinnugreinina verður auðveldari á allan hátt og kostar ekki milljarða.
- Sóknargeta fiskiskipaflotanns er þekkt áratugi aftur í tímann (löndunardagar)
- Auðveldara verður að bregðast við óvæntum breytingum í hafinu STRAX með fjölgun/fækkun DAGA.
- Einokun og fákeppni í sjávarútvegi heyrir sögunni til (aðskilnaður veiða og fiskvinnslu = fiskmarkaðir)
- Ógnar-vald ríkistyrktu-einokunar-útgerðanna yfir stjórnmálafólki/flokkum heyrir sögunni til.
- RENTAN af sjávarútvegi mun flæða um æðar þjóðfélagsins, en ekki vera geymd í skattaskjólum stærstu eiganda ríkistyrktu-einokunar-útgerðanna, aðskilnaður veiða og fiskvinnslu tryggir það í gegnum fiskmarkaðina.
- RENTAN af 70% úthlutaðra aflaheimilda er 50-milljarðar -/+ á hverju fiskveiðiári frá 2011 til dagsins í dag, þessi RENTA er á bankareikningum skattaskjólsfélaga með erlenda kennitölur í eignarhaldi ríkistyrktu-einokunar-útgerðanna í útlandinu, sem hafa yfirgefið íslenska hagkerfið og hafa þess vegna enga samfélagslega ábyrgð gagnvart þjóðfélaginu Íslandi. (heimild Indriði H. Þorláksson fyrrum ríkisskattstjóri).