Viðskipti innlent

Rekstur frí­hafnarinnar seldur úr landi

Árni Sæberg skrifar
Þýskur fríhafnarisi mun taka við rekstri fríhafna í Leifsstöð fljótlega.
Þýskur fríhafnarisi mun taka við rekstri fríhafna í Leifsstöð fljótlega. Vísir/Sigurjón

Isavia ohf. hefur tekið tilboði þýska fyrirtækisins Heinemann í rekstur fríhafnarverslana á Keflavíkurflugvelli til næstu átta ára. Tilboðið er valið út frá fyrir fram ákveðnum valforsendum útboðs. Fjórir aðilar buðu í reksturinn. Heinemann rekur fjölda verslana um allan heim, meðal annars fríhafnarverslanirnar á Gardermoen-flugvelli í Osló og Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn.

Í fréttatilkynningu þess efnis er haft eftir Guðmundi Daða Rúnarssyni, framkvæmdastjóra viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli, að hann fagni niðurstöðu útboðsins.

„Við vildum kanna hvort hægt væri, með samstarfi við nýjan rekstraraðila með reynslu í rekstri fríhafnarverslana, að tryggja ávinning umfram núverandi fyrirkomulag. Niðurstaðan er sú að með þessari breytingu aukast tekjur flugvallarins verulega um leið og hægt er að auka þjónustu og bæta vöruúrval. Ákvörðunin um töku tilboðsins byggir eingöngu á því mati að þessi breyting skili ávinningi fyrir farþega, flugvöllinn og samfélagið í heild,“ er haft eftir honum.

Leggja áherslu á íslenskar vörur

Í útboðsferlinu hafi verið lögð mikil áhersla á að gestir á flugvellinum finni fyrir því og upplifi það hjá nýjum rekstraraðila að þeir séu á flugvelli á Íslandi þegar þeir fari um fríhafnarverslanirnar í Leifsstöð. 

Í útboðinu hafi meðal annars komið fram að ein leið til þess væri að leggja mikla áherslu á íslenskar vörur í fríhafnarverslununum.

Gerð hafi verið markaðskönnun sem auglýst var á evrópska efnahagssvæðinu í september 2023 og formlegt útboðsferli hafist í kjölfarið. Boðið hafi verið út sérleyfi á rekstri fríhafnarverslana sem í dag séu reknar undir merkjum Fríhafnarinnar ehf., dótturfélags Isavia ohf. Útboðið hafi verið með sama fyrirkomulagi og þegar boðin er út aðstaða fyrir aðrar verslanir og veitingastaði í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli.

Taka við í mars

Nú taki við svonefndur biðtími næstu tvær vikurnar þar sem þeir aðilar sem urðu af samningnum hafa tækifæri til að gera athugasemdir við niðurstöðuna telji þeir ástæðu til. Að því tímabili liðnu verði gengið til samninga og gert ráð fyrir að Heinemann taki við rekstrinum í mars næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×