Sigurður Ingi og óverðtryggingin 2 - lofað upp í ermina á sér Hjalti Þórisson skrifar 27. nóvember 2024 16:42 Það var átakanlegt að fylgjast með þér Sigurður Ingi í Forystusætinu. Það átti að snuða þig um að koma kosningabombunni þinni að. Þeim varð nú ekki kápan úr því klæðinu. Þú sást til þess. „Ég verða að koma að . . .“ . . . „. . . af hverju hverju erum við ekki með löng óverðtryggðlán á föstum [nafn]vöxtum [lágum til langs tíma] eins og alstaðar í kringum okkur“ spurðirðu. En í stað þess að svara sjálfum þér og útskýra það fyrir okkur fávísum hafðir þú fengið mann í vinnu. Það átti allt að vera klappað og klárt í febrúar. Þá „eyðum við út verðtryggingunni og þegar það koma verðbólguskot (ath aðeins –skot) á næstu tuttugu og fimm árum þá mun það ekki hafa áhrif á þennan lánastabba sem er ósanngjarnt í dag.“ Synd að það sé ekki febrúar. Þú ert sem sagt að lofa því að það komi aðeins „verðbólguskot“ og þá sleppi þessi „lánastabbi“ alveg við að skila jafnvirði skuldbindinga sinna. Það er aldeilis munur. Best að taka svoleiðis lán; - ef einhver vill lána; - til dæmis lífeyrissjóðirnir. Þú ert sem sagt að svara spurningu minni úr fyrri grein (slóðir neðst) með jái; - hvort þú sért til í það sjálfur að lána slík lán. Mættum við fá að vita hver þessi vinnumaður er sem þú „fékkst í vinnu“ og getur snarað svona töfrabrögðum fram úr erminni ? Er hann nokkuð í Seðlabankanum ? Hver er nú reynslan af einmitt þessu og þvílíku, Sigurður Ingi ? Eins og þér var bent á í fyrri grein hefur þetta verið reynt á fyrri tíð með hrikalegum afleiðingum (hófst 1976) og nýlega sem ekki hefði átt að fara fram hjá þér, og þrátt fyrir alla þekkingu og reynslu sem þá átti að vera til staðar; - eins og nú og þó enn meiri nú; reynslan splunkuný. Draumurinn innan úr Seðlabankanum um „nafnvaxtakerfið“ rættist eins og kunnugt er og sprakk í andlitið á honum – sem og á öllum þeim sem stukku að tilefnislausu á þetta (sjá neðar) og í þessi gjafalán SÍ. Á þessu fjórum árun hefur raunvirði lánanna skroppið saman um fjórðung (24 %); er nú 76%. Um það hafa skuldinar lækkað í raun. Það er gjöf. Eins er með greiðslunar, sem eru nú 73% af því sem þær voru (á rýrnuðu nafnviðri). Ofan á þetta hefur eignin af veðinu í húsnæðinu aukist um 41 % vegna hækkana húsnæðis sem þessi lán kölluðu fram þegar í upphafi og naumast nokkuð verið greitt af nafnvirði lánanna (annarlegar orsakir fyrir því). Vextir stórlega neikvæði og engir raunvextir. Þetta sést allt á myndritinu í fyrri greininni. Þetta kallast þar „eignamyndun“ í gæsalöppum. Fyrir hana er ekki greiddur grænn eyrir. (Það skal þó tekið fram að upp í þetta greiddist þó nafnvaxtamunur verðtryggðra og óverðtryggðra lána; - en er óvera og fer snarminnkandi að verðgildi.) Þessar húnæðishækkanir brustu á í covidinu þegar mestum húsnæðisþrýsting afléttist og undir eins og þessi lán komu til sögunnar. Er það ekki eitthvað skrýtið ! Verðbólgan, sem verið hafði við verðbólgumarkmið Seðlabankas sex ár þar á undan á tíma þar sem verðtyggð lán höfðu verið að mestu ríkjandi og verðgildisleiðréttingar þeirra (kallað verðbæting) því óverulegar (það var tilefnisleysið), fór svo af stað í kjölfarið; að langmestu leyti rakið til þessara húsnæðisverðshækkana. Hverjir töpðuð þessum framangreinda mismun á nafnvirði og raunvirði ? Lánveitendur Sigurður, bankarnir sem nú eru að klóra í bakkann með ofurvöxtum og drjúgum raunvöxtum (4,5%); - bankarnir, sem féllu fyrir fagnaðarernindinu innan úr Seðlabankanum um endalok verðbólgu og sjálfdauða verðtryggingar. Hverjir eru lánveitendur bankana ? Við skulum ekkert aukma þá, er það nokkuð. Á hverjum koma þessar hækkanir niður? Þú ætlar víst að redda því fólki líka; - ekkert bandsvítans leiguhúsnæði, ekkert hótel mamma. Finnst þér að fólk eigi að græða á því að skulda, stórgræða ! Gróðinn af þessu 2020-lánum er nú 64 %. Er ekki ærinn ávinningur að því að hafa öruggt húsnæði, viðráðanlega greiðslubyrði (væri húsnæðisverð í hófi), greiða sjálfum sér í afborgunum og einnig í vöxtum séu lánin við lífeyrissjóði. Er ekki sanngjarnt, Sigurður, að fólk endurgreiði jafnvirði þess sem það fær að láni ? Ha ! Nei, segja Framsóknarmenn og Flokkur fólksins, við ætlum sko ekki að vera með neitt bandsvítans raunvaxtakerfi. Gangi órar þeirra hins vegar eftir og hér verði engin verðbólga þá greiðast raunvextir, hverjir sem þeir verða. Hvers vegna ? Ætli menn skilji það ? Það er vegna þess, sjáðu til, að ef engin verðbólga er þá heldur krónan gildi sínu og raunvirði og jafnvirði endurgreiðist sjálfkrafa og þar með raunvextir, - nákvæmlega eins og er með verðtryggð lán. Þannig er með verðtryggð lán Sigurður, að þau skila jafnvirði; gera menn að skilamönnum. Þau sem lofa því upp í ermi sína að hér verði engin verðbólga boða það hins vegar, án þess að átta sig á þvi, að skuldir endurgreiðist þá á jafnvirði, með raunvöxtum. Sé þetta tryggt, - að engin verðbólga sé -, þá eru fjárskuldbindingar verðtryggðar. Áttarðu þig á því ? Jafnvirði greiðist. Allt er þá í reynd verðtryggt; – verðtygging þá óvirk, í pásu; – en vomir yfir ef óstjórn ríkir og lukkuriddarar með ódýrt lánaflóð ekki á ferðinni. Þannig er það í útlandinu segirðu; en er það svo ? Nú hefurð fengið hjálp frá bönkunum við það að forða því að fólk hrekist í verðtryggð lán, í skjól þeirra segja sumir, aðrir í vítahring, þar sem þeir hækka nú vexti þeirra lána ótæpilega til framtíðar og gera fólki ógerlegt að leyta þangað skjóls frá vaxtaánauðinni af þeim óverðtryggðu. Svo ætlarðu að hygla byggingabransanum með skatttekjum okkar; niðurgreiða húsnæðishækkanirnar sem 2020-lánin framkölluðu með skattpeningum okkar. Laun í byggingabransanum eru ekki orsök þessara hækkana né efnis- og rekstarkostnaður verktakanna; hvort sem þar er okrað eða ekki. Svo eru að auki miklu alvarlegri orsakir fyrir húsnæðishækkunum sem hvorki þú né aðrir munu ráða við. Kannski þú útskýrir þetta allt í Leiðtogaumræðunum á föstudaginn. Höfundur ekki skuldari slíkra lána. Slóðir: Forystusætið 25. nóv – sjá 10:50 Fyrri grein um sama mál. Hér að neðan má sjá myndrit sem sýnir afdrif óverðtryggðra jafngreiðslulána til fjörutíu ára, frá júlí 2020 til nóvember 2024. Hægt er að smella á myndina til að stækka hana. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Framsóknarflokkurinn Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Efnahagsmál Mest lesið Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson Skoðun Ferðamannaþorpin - Náttúruvá Þóra B. Hafsteinsdóttir Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvert er markmið fulltrúalýðræðis? Hlynur Orri Stefánsson,Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Ég vona að þú gleymir mér ekki Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvaða einkunn fékkst þú á bílprófinu? Grétar Birgisson skrifar Skoðun Að koma út í lífið með verri forgjöf, hvernig tilfinning er það? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Tjaldið fellt í leikhúsi fáránleikans Vésteinn Ólason skrifar Skoðun Heilbrigðisreglugerð WHO: Hagsmunir eða heimska? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Málþófs klúður Sægreifa-flokkanna Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Græna vöruhúsið setur svartan blett á íslenskt samfélag Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Dæmt um efni, Hörður Árni Finnsson,Elvar Örn Friðriksson,Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Flugnám - Annar hluti: Afskiptaleysi stjórnvalda Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Sóvésk sápuópera Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Dæmir sig sjálft Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Mega blaðamenn ljúga? Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ákall um nægjusemi í heimi neyslubrjálæðis Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar Skoðun Samstarf er lykill að framtíðinni Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun Kjarnorkuákvæði? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hver erum við? Hvert stefnum við? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Hugtakið valdarán gengisfellt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Ábyrgðin er þeirra Vilhjálmur Árnason skrifar Skoðun Dæmt um form, ekki efni Hörður Arnarson skrifar Skoðun Að þröngva lífsskoðun upp á annað fólk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Um fundarstjórn forseta Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hjálpartæki – fyrir hverja? Júlíana Magnúsdóttir skrifar Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Áform um að eyðileggja Ísland! Jóna Imsland skrifar Skoðun Í 1.129 daga hefur Alþingi hunsað jaðarsettasta hóp samfélagsins Grímur Atlason skrifar Sjá meira
Skoðun Á hvaða vegferð er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur gagnvart sjávarútvegssveitarfélögunum? Anton Guðmundsson skrifar
Skoðun Hvað hefur áunnist á 140 dögum? Heiða Björg Hilmisdóttir,Dóra Björt Guðjónsdóttir,Sanna Magdalena Mörtudóttir,Helga Þórðardóttir,Líf Magneudóttir skrifar
Skoðun Í skugga virkjana, þegar náttúran fær ekki að tala: Hvammsvirkjun lamin í gegn með góðu og illu Gunnar Þór Jónsson,Svanborg R. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Fjármálalæsi í fríinu – fjárfesting sem endist lengur en sólbrúnkan! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar
Skoðun Flugnám - Fyrsti hluti: Menntasjóður námsmanna og ECTS einingar Matthías Arngrímsson skrifar