Erum við að byggja orlofsbúðir fyrir útsendara skipulagðra glæpasamtaka hér á landi? Davíð Bergmann skrifar 30. nóvember 2024 12:30 Það var frétt á Dv.is sem ég las föstudaginn 29.11.2024 með fyrirsögninni: Mohamed og Sunneva hljóta þunga dóma fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot – bræður undir lögaldri sóttu pakkann. Í dómnum kom fram að Mohamed var í september 2019 dæmdur í áfrýjunarrétti Vestur-Svíþjóðar í átján mánaða fangelsi fyrir eiturlyfjasmygl og jafnframt vísað frá Svíþjóð og bönnuð endurkoma fyrir 7. október 2024. Samkvæmt sakavottorði var hann í júní 2021 dæmdur á Íslandi í þriggja ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Ég ætla í þessu samhengi að minna á ályktun lögreglufélaga á Norðurlöndum og grein sem birtist á visi.is„Sænska ástandið“ orðið að norrænu. Halda menn í alvörunni að Landamæri skipti þessa menn einhverju máli í dag? Það er bara Kid stuf fyrir þessi lið sem stunda skipulagða glæpastarfsemi hér á alþjóðavísu, þeir eru fyrir löngu síðan búnir að koma sér fyrir hér á landi og hafa alla stjórn nú þegar og þeir hlægja að okkur og hvað yfirvöld eru miklir molbúar í því að stemma stigu við skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi og taka því fagnandi að við skulum vera að ráðast í að byggja orlofsbúðir fyrir þá. Eru ungmenni flækt í skipulagða glæpastarfsemi? Eins og kemur fram í fréttinni er þessi erlendi maður að fá sinn annan dóm fyrir stórfellt fíkniefnasmygl hér á landi, fyrir utan það hefur hann hlotið dóm í Svíþjóð fyrir sömu brot. Hvernig stendur þá á því að honum er ekki vísað úr landi og á aldrei afturkvæmt hingað til lands, sem hefði átt að gerast eftir fyrsta dóminn sem hann fær hér á landi? Fyrir utan það að þetta sé innflutningur á fíkniefnum þá blandar hann ólögráða einstaklingum í málið og það hefði líka verið forvitnilegt að vita hvers lenskir þeir voru en það kemur ekki fram í fréttinni. Er hugsanlegt að skipulögð glæpastarfsemi sé farin að ná niður til ólögráða einstaklinga hér á landi eins og á hinum Norðurlöndunum? Getur verið að ályktun lögreglufélaga á Norðurlöndunum eigi við rök að styðjast „Sænska ástandið“ orðið að norrænu? Svona maður eins og þessi sem kemur hingað til lands með einbeittan brotavilja á ekkert erindi hingað að mínu mati. Af hverju andskotanum fékk hann ekki, í ljósi sögunnar sem hann hefur frá Svíþjóð, ekki frímerki á rassgatið eftir afplánun og var sparkaður úr landi eftir fyrsta dóminn og bannaður frá landinu til eilífðar? Það ætti ekki að vera mikið vandamál í ljósi þess að samvinna lögregluyfirvalda á Norðurlöndum á að vera svo góð? Eða er það bara helbær lygi í raunveruleikanum og okkur bara talið trú um það á hátíðisdögum eða rétt fyrir kosningar, getur það verið? Þetta er svo lýsandi fyrir hvað landamærin okkar hafa verið veik í gegnum árin og allt þetta röfl um að lögreglan megi ekki fá rannsóknarheimildir eða bera vopn, sem þessi skipulögðu glæpasamtök hafa svo sannarlega undir höndum og að sérsveitin hafi farið í tólf sinnum fleiri vopnuð útköll á síðasta ári miðað við fyrir tíu árum. Halda menn að það sé tilviljunin ein sem ráði því? Allar þær tafir sem eru á málsmeðferð vegna þess hvað lögreglan er fámenn, eru það til tekna fyrir þessi glæpasamtök? Geta þessir skipulögðu glæpamenn fengið dýrustu lögfræðinga landsins? Svo er dómskerfið okkar líka í engum tengslum við þann veruleika sem við erum að glíma við í dag eins og þetta dæmi sýnir svo glöggt! Erlendir glæpamenn sem leggjast á skattgreiðendur Núna er þessi glæpamaður, sem er greinilega með einbeittan brotavilja, að fara að leggjast upp á okkur skattgreiðendur næstu árin á meðan hann dvelur í fangelsi hér á landi og síðast þegar ég vissi borga skattgreiðendur það. Og miðað við tímann sem hann er búinn að vera hér á landi þá að afloknum dómi gæti hann sótt um ríkisborgararétt hér á landi og það kæmi mér heldur ekki á óvart að hann fengi það út frá mannúðarsjónarmiðum og aumingjavæðingu. Annað eins hefur gerst hér á landi áður. Ber okkur einhver skylda til að mennta hann innan veggja fangelsanna á meðan hann situr inni? Í mínum huga er svarið við því nei, hann á að sitja dóminn af sér og svo með fyrsta flug burt héðan og má aldrei koma hingað til lands aftur, að öðrum kosti erum við að leyfa skipulagðri glæpastarfsemi að þrífast hér á landi eins og þetta mál sýnir svart á hvítu. Hefði ég farið fram í þessum kosningum, sem ég hugleiddi á sínum tíma, hefði þetta verið efst á forgangslistanum hjá mér, að losa okkur við þessa áþján er alla vegana ekki auðveldað þeim vistina hér á landi. Nú eru flestir byrjaðir að flokka ruslið heima hjá sér en hvað með þennan málaflokk? Þarf ekki að fara að flokka ruslið í þessum málaflokki og losa það sem er ekki endurvinnanlegt úr landi? Linkenndin og aumingjagangur gagnvart þessum erlendu glæpamönnum hér á landi nær hér nýjum hæðum. Ef hann hefði verið tekinn í landi eins og Tælandi með yfir 100 gr. af svona fíkniefnum sem hann var að flytja hingað til lands hefði beðið hans lífstíðardómur eða dauðadómur. Hann hefði aldrei fengið vist í svona fangelsi eins og við bjóðum upp á, hvað þá í Miðausturlöndum. Nýja fangelsið okkar á að kosta 17 milljarða fyrir 128 fanga. Haldið þið að í Mið-Austur-Asíu væri byggt 17 milljarða fangelsi fyrir svona tegund af erlendum glæpamanni og hann fengi sér herbergi eða fengi að fara í skóla á kostnað skattgreiðenda? Það eiga ekki að vera nein vettlingatök í boði fyrir svona tegund glæpamanna hér á landi að mínu mati. Þeir hafa fyrir löngu síðan fyrirgert öllum sínum réttindum hér á landi og verðskulda ekkert frá íslenskum skattgreiðendum. Úr landi með ruslið Í staðinn á að innleiða nýja hefð, að dæma unga afbrotamenn til uppbyggilegrar réttvísi, og það á að gerast sjálfkrafa þegar ungir afbrotamenn eiga í hlut. Eins ef erlendur ríkisborgari er að flytja inn eiturlyf hingað til lands eða er hér gagngert til að fremja afbrot eða verður uppvís að alvarlegu ofbeldi á viðkomandi að lokinni afplánun að fara úr landi og á aldrei að fá að stíga fæti inn á íslenskri grund framar. Það á ekki að veita neina sénsa, annars erum við að skapa jarðveg fyrir skipulagða glæpastarfsemi hér á landi á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Verndum ungmenni okkar Þetta eigum við að gera fyrst og fremst til að vernda ungmennin okkar. Það á að fækka erlendum föngum til muna hér á landi svo við þurfum ekki að byggja orlofsbúðir fyrir þá sem íslensk fangelsi eru í augum þessara manna í samanburði við þau fangelsi frá þeim löndum sem þeir koma frá. Nýja fangelsið okkar kallast Stóra-Hraun og á að kosta 17 milljarða. Við gætum byggt nýtt fangelsi fyrir 10 milljarða og sett restina í það að byggja sérhæft meðferðarheimili fyrir ungmenni sem Framsóknarflokkurinn lofaði okkur 2018 sem hefur ekkert orðið úr hér á landi til að koma í veg fyrir að þau feti ekki afbrotaveginn í framtíðinni. Innleiða uppbyggilega réttvísi „youth offending team“. Setjum aur í vinnu með unga afbrotamenn, sem er miklu ódýrara til lengri tíma en að byggja 17 milljarða orlofsbúðir fyrir erlenda afbrotamenn, kennum drengjum að lesa, þá fyrst held ég að við förum að sjá fækkun afbrota hér á landi. Þetta nýja fangelsi á eftir að vera yfirsetið af erlendum glæpamönnum í framtíðinni með svona vinnubrögðum sem eru í gangi í dag. Það er perexilans aumingjagangur að geta ekki bundið þannig um hnútana að það sé ekki hægt að losna við svona óáran úr landi að lokinni afplánun. Ef við myndum taka fastar á þessum málum þá ættu erlend skipulögð glæpasamtök í meiri erfiðleikum með að þrífast hér á landi. Förum í tiltekt, flokkum ruslið, og förum úr landi með þessa erlendu glæpamenn. Höfundur er áhugamaður um betra Ísland og Miðflokksmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Davíð Bergmann Miðflokkurinn Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal Skoðun Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson Skoðun Skoðun Skoðun Nokkur orð um Kúbudeiluna og viðskiptabannið Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Ráðherrar með reiknivél og leyndarhyggju Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Gróf misbeiting illa fengins valds Örn Sigurðsson skrifar Skoðun Að sækja gullið (okkar) grein 2 Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar Skoðun Pólítískt hugrekki Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vísir að lægri orkureikningi Einar Vilmarsson skrifar Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Opið bréf til Rósu Guðbjartsdóttur Margrét Kristín Blöndal skrifar Skoðun Mikil réttarbót fyrir fatlað fólk mætir hindrunum Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Verið brjáluð. Ég fer ekki neitt Ian McDonald skrifar Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Vönduð vinnubrögð? Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Veitingastaðir eru ekki kjarnorkuver Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Nýr vegvísir Evrópusambandsins um jafnrétti kynjanna Clara Ganslandt skrifar Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar Skoðun Blaður 35 Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Kaldar kveðjur frá forsætisráðherrra til ferðaþjónustunnar Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Nú hefst samræmt próf í stærðfræði Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Sanngirni í Kópavogsmódelinu Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Skapandi framtíð – forvarnir og félagsstarf í Hafnarfirði Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar Skoðun Hvaða orka? Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Það skiptir máli hvernig gervigreind er notuð í kennslu Hjörvar Ingi Haraldsson skrifar Skoðun Friðum Eyjafjörð Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir skrifar Skoðun Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Eflum samstöðuna á kvennaári – Stöndum vörð um mannréttindi Kristín Ástgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun
Skoðun Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley skrifar
Skoðun Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Hvernig eiga umsækjendur í opinbera sjóði að fylgja forsendum sem eru þversagnakenndar? Bogi Ragnarsson skrifar
Skoðun Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Frá stjórnun til tengsla – Endurmat á atferlismeðferð í ljósi tilfinningagreindar Kristín Magdalena Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Svandís Svavarsdóttir,Álfheiður Ingadóttir skrifar
Skoðun Upplýsingar um mataræði barna og unglinga á landsvísu eru of gamlar – það er óásættanlegt Birna Þórisdóttir,Sigurbjörg Bjarnadóttir,Inga Þórsdóttir skrifar
Skoðun Sóknaráætlanir landshlutanna – lykillinn að sterkara Íslandi Páll Snævar Brynjarsson,Sigríður Ó. Kristjánsdóttir,Sveinbjörg Rut Pétursdóttir,Albertína Friðbjörg Elíasdóttir,Bryndís Fiona Ford,Ingunn Jónsdóttir,Berglind Kristinsdóttir,Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Frábær fundur, frábært framtak, vanvirk stjórnsýsla, meðvirk stjórnvöld Ögmundur Jónasson Skoðun
Við viljum styðja ungmenni í að velja rétt fyrir sig og sína framtíð Þórdís Jóna Sigurðardóttir Skoðun
Það verða aðrir þjóðhátíðardagar fyrir okkur en dagar Palestínumanna eru taldir Davíð Aron Routley Skoðun