Halli upp á tugi milljarða hjá hinu opinbera Árni Sæberg skrifar 5. desember 2024 10:08 Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Einar Áætlað er að tekjuafkoma hins opinbera hafi verið neikvæð um 37 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2024 eða sem nemur 3,1 prósent af vergri landsframleiðslu ársfjórðungsins. Til samanburðar nam hallinn á þriðja ársfjórðungi 2023 0,5 prósent af vergri landsframleiðslu þess ársfjórðungs.
Í tilkynningu þess efnis á vef Hagstofunnar segir að í heild sé áætlað að tekjur hins opinbera hafi aukist um 5,2 prósent samanborið við þriðja ársfjórðung 2023. Tekjur af sköttum og tryggingagjaldi hafi aukist um 7,4 prósent en eignatekjur dregist saman um 7,0 prósent. Tilfærslukerfið þungur baggi Áætlað sé að heildarútgjöld hafi aukist um 11,8 prósent á þriðja ársfjórðungi 2024 miðað við sama tímabil fyrra árs. Hér vegi þungt 17,8 prósent aukning í útgjöldum vegna félagslegra tilfærsla til heimila. Einnig hafi útgjöld vegna þeirra úrræða sem ríkissjóður hefur gripið til vegna jarðhræringa og eldgosa við Grindavík haft töluverð áhrif á afkomu hins opinbera. Lánasjóðir hafa töluverð áhrif Vert sé að hafa í huga að afmörkun hins opinbera í þjóðhagsreikningum og í talnaefni um fjármál hins opinbera miðast við evrópska þjóðhagsreikningastaðalinn, ESA2010. Með hinu opinbera teljist meðal annars lánasjóðir ríkissjóðs, sem hafi veruleg áhrif á vaxtatekjur og -gjöld þess. Í greinargerð sem gefin hafi verið út 30. nóvember 2020 og sé aðgengileg á vef Hagstofunnar sé fjallað sérstaklega um aðferðafræðilegan grundvöll geiraflokkunar og úrlausn álitamála sem snúa að flokkun fyrirtækja og stofnana í eigu ríkisins. Afkoma hins opinbera sé áætluð út frá bráðabirgðatölum. Niðurstöður muni taka breytingum þegar uppgjör liggur fyrir.
Efnahagsmál Rekstur hins opinbera Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar Mest lesið Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Viðskipti innlent Eggert ráðinn til Litla spítalans Viðskipti innlent Tveggja lítra flöskur heyra brátt sögunni til Neytendur Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Viðskipti innlent Willum í stjórn Litla spítalans Viðskipti innlent Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Viðskipti innlent Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Viðskipti innlent Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar Sjá meira