Köld norðanátt og víða él Atli Ísleifsson skrifar 6. desember 2024 07:06 Það bætir í heldur í vind og ofankomu í kvöld. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli leiðindaveðrinu austast á landinu í gær þokast nú til norðurs og grynnist smám saman. Hún beinir til okkar fremur kaldri norðan- og norðvestanátt, fimm til fimmtán metrum á sekúndu í dag og víða él, en yfirleitt þurrt sunnan heiða.
Frá þessu segir í hugleiðingum veðurfræðings. Þar kemur fram að frost verði á bilinu tvö til átta stig. „Í kvöld bætir heldur í vind og ofankomu, en á morgun gengur hæðarhryggur austur yfir landið og það lægir og léttir til víðast hvar. Á Suðaustur- og Austurlandi má þó búast við allhvassri eða hvassri norðvestanátt fram eftir degi. Herðir á frosti. Annað kvöld sækir hlýtt loft að úr vestri og það fer að blása vestantil á landinu. Á sunnudag er svo útlit fyrir vaxandi sunnanátt, vætusamt sunnan- og vestanlands þegar líður á daginn og ört hlýnandi veður. Nýjustu spár gera ráð fyrir að síðdegis og um kvöldið verði afar hvasst á norðvestanverðu landinu og Mið-Norðurlandi og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspám og viðvörunum,“ segir á vef hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og víða þurrt og bjart, en dálítil él norðanlands fram eftir morgni. Norðvestan 13-20 á Suðaustur- og Austurlandi, en lægir þar síðdegis. Frost 3 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Vaxandi sunnanátt vestantil um kvöldið og dregur úr frosti. Á sunnudag: Vaxandi sunnanátt og dálítil væta, 15-25 m/s síðdegis og rigning eða súld, hvassast um landið norðvestanvert. Lengst af þurrt á Norður- og Austurlandi. Hlýnar í veðri, hiti 5 til 13 stig um kvöldið. Á mánudag: Minnkandi suðvestanátt og rigning, 8-15 síðdegis og dálitlar skúrir eða slydduél. Úrkomulítið norðaustantil. Kólnar smám saman. Á þriðjudag: Vestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum. Hiti kringum frostmark. Slydda eða rigning við suðurströndina um kvöldið. Á miðvikudag og fimmtudag: Sunnan- og suðaustanátt og rigning með köflum, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hlýnar í veðri.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira