Veður

Við­varanir á við­varanir ofan

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Það verður hávaðarok í fyrramálið.
Það verður hávaðarok í fyrramálið. Veðurstofa Íslands

Hringveginum verður lokað undir Eyjafjöllum og alveg að Öræfum frá klukkan fimm í fyrramálið til klukkan níu hið minnsta vegna óveðursins fram undan. Spáð er norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi og stöku hviðum upp á 40 metra á sekúndu fyrir sunnan.

Lokun Hringvegarins gildir frá Heimalandi við Markarfljót og að Fagurhólsmýri í Öræfum. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að um svokallaða mjúka lokun sé að ræða og að mannaðir lokunarpóstar verði á svæðinu.

Lokun er í gildi á þessum kafla Hringvegarins í fyrramálið.Map.is

Óvissustig verður í gildi frá og með í fyrramálið á vegum um land allt. Ökumenn eru varaðir við því að vegir gætu lokað með skömmum fyrirvara í öllum landshlutum nema suðvesturhorninu og á Austurlandi. Það er þó ekki að segja að það sé tilefni til að draga sólbekkinn fram þar.

Fyrr í kvöld uppfærði Veðurstofan viðvaranir sínar og hafa nú verið gefnar út appelsínugular viðvaranir fyrir Suðurland og Breiðafjörð auk Vestfjarða og Stranda og Norðurlands vestra. Spáð er hvassviðri fyrir norðan og vestan og síðar norðanstórhríð.

Gul viðvörun er áfram í gildi á höfuðborgarsvæðinu í morgunsárið. 

Veðurviðvaranir í gildi í fyrramálið og annað kvöld:

Viðvaranir í gildi klukkan níu í fyrramálið.Veðurstofa Íslands
Veðurviðvaranir í gildi klukkan 21 annað kvöld.Veðurstofa Íslands

Óveðursvaktin hefst í fyrramálið

Appelsínugul viðvörun tekur fyrst gildi á Suðurlandi klukkan fimm í nótt og gildir til klukkan tíu. Mesta hvassviðrið mjakast norður yfir landið eftir því sem á daginn líður. Appelsínugul viðvörun tekur gildi á Breiðafirði um hádegið og færist svo vestur á firði seinnipartinn.

Annað kvöld er svo spáð vonskuveðri á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra með norðan stórhríð, hávaðaroki og þungri snjókomu. 

Vísir verður með vakt snemma í fyrramálið þar sem verður hægt að fylgjast með öllum vendingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×