„Stórfelldir og siðlausir fjármagnsflutningar“ - Áskorun á Ole Anton Bieltvedt Hjalti Þórisson skrifar 19. desember 2024 14:01 Ég, undirritaður, skora hér með á Ole Anton Bieltvedt að bregðast við greinum mínum (slóðir neðst), við þríbirtum skrifum hans á DV- eyjan, á Skoðun/visir.is og í Morgunblaðinu (slóðir neðst) um greiðsluseðil Þ.D. (sem nafngreindur er í pistlunum hans). Skora á hann hrekja það sem í greinum þessum kemur fram og þær tölulegu vísbendingar sem þar eru dregnar fram en Bieltvedt heldur leynum. Ég skora á hann og eiganda greiðsluseðilsins að birta þær leyndu upplýsingar og sýna fram á með órækum gögnum, til dæmis skattframtölum, hverjar hrakfarir og „píslargöngu“ viðkomandi og fjölskylda hans hafa mátt þola; hvernig húsnæðislán hans hafi, „grafið undan og spillt fjárhaglegri afkomu, penginglegri velferð nú í tuttugu ár“, sem og hvernig hann eigi „eftir að líða undan krónunni [vegna þessa húsnæðisláns] og þeirri áþján sem hún veldur mörgun skuldurum [NB] ævilangt og þúsundum þjáningabræða og -systra, annarra fórnarlamba“ af völdum slíkra lána. Skora á hann að sýna fram á hver sú áþján sé og sýna fram á hvernig komið er eignastöðu slíks fólks og hversu óhæfilega íþyngjandi greiðslubyrði þeirra Þ.D. og þúsundanna allra er. Hann hrekji þá greiningu sem kemur fram í umformuðum greiðsluseðlinum (myndrit 2) og myndriti af stöðunni (myndrit 3) í fyrri grein minni. Skora á hann að taka aftur niðrandi orð sín um „grunnhyggna krónutalsmenn“ sem hann brúkar um þá sem benda honum á einfaldar staðreyndir um vægi eigna mót skuldum en hann kallar „hjóm eitt og húmbúkk“ (einnig bábylju) sem„engu meiru skila“ og viðurkenna ávinning þess að eignast í húsnæði. Skora á hann að færa fram rök sín fyrir því að lán eigi að skila meiru en sem þeim nemur og hann klifar á. Skora á hann að lesa sér til gagns um muninn á greiðslum og afborgunum svo hann hræri því ekki saman; sem og að kynna sér hvað vextir séu og hvort þeir komi til niðurgreiðslu láns eins og hann ætlast ótvírætt til að vera eigi; segir reyndar beinum orðum. Hægt er að smella á myndina að neðan svo hún stækki. Staða kaupanda og seljanda við mögulega sölu og kaup. Af hvorum væri fremur ástæða til að hafa áhyggjur? Hér til viðbótar skora ég á hann að færa sönnur fyrir fullyrðingum sínum, að búið sé að greiða 91 milljón króna niður af láninu (les: af höfuðstólnum) , „sem nemur þrefaldri lánsfjárhæð“ upphaflegs láns (35 m). Þessu heldur hann fram í tveimur seinni greinum sínum og slær upp í fyrirsögn í þeirri fyrri og birtir óleiðrétt í þeirri seinni rúmum mánuði seinna (og enginn hefur sýnilega hnotið um !!). Þetta þýðir, ef rétt væri, að aðeins vanti nú tvær milljónir upp á að lánið sé að fullu greitt á núvirði. Ekki er þó svo á honum að skilja; síður en svo. Hið rétta er að búið er að greiða, eins og lagt var upp með, 31 % af láninu, 29 milljónir á núvirði (með mun færri krónum gegnum tíðina). Skora á hann að draga til baka ummæli um að bankinn fylli út óútfylltan tékka. „Tékkann“ fyllti lántakandinn út sjálfur; tengdi endurgjald sitt við jafnvirði óumbeðinn , ótilneyddur og án ofbeldis og tryggði þannig að hann yrði skilamaður. Bankinn kemur hvergi nærri þeirri verðgildisleiðréttingu. Hagstofan sér um slíkt. Með undirskrift sinni tryggði hann sér eignarhald á húsi; trúlega án þess að greiða nokkuð fyrir þá í útlögðum krónum. Nei nei; það var „ekkert meira“; - „aðeins „hjóm eitt og húmbúkk“. Bieltvedt klikkir út með þessu: „Þessar uppblásnu, margföldu, verðbætur og auknu greiðslukröfur eru því í reynd stórfelldir aukavextir, okurvextir, sem Þorsteinn hefur verið neyddurtil að borga bankanum, fjármagnseigendum, og hann fær í reynd ekkert fyrir. Stórfelldir og siðlausir fjármagnsflutningar, með valdi og ofbeldi, af skuldurum yfir á banka og fjármagnseigendur.“ Legg til að Bieltvedt fái til liðs við sig forseta ASÍ og Hagsmunasamtök heimilanna til að sýna fram á þessa „stórfelldu og siðlausu fjármagnsflutninga“ sem ekki verður skilið öðru vísi en að séu verðmætaupptaka óralagt umfram eðlilegt og umsamið endurgjald sem komist er upp með. Höfundur hlýtur að gera sér grein fyrir því hvað hann er að segja. Það standi yfir allsherjar rán og gripdeildir fyrir opnum tjöldum á þorra þjóðarinnar; viðvarandi eignaupptaka á landsmönnum í stórum stíl; féfletting og blóðmjólkun. Fyrir þessu hlýtur að vera auðvelt að færa fram sönnur og sýna fram á afleiðingar. Samtímis mætti þá gjarnan fá skýringu á því hvernig slík lán „éta upp eigin fé í húsnæðinu“; sem og hvaða nauðung viðkomandi er beittur til að fá hann til að standa í skilum með skuldbindingar sínar – og sem hann „fær ekkert fyrir“. Það er svo að skilja að hálf þjóðin sitji í skuldafangelsi heima hjá sér og sé svo skaplaus að láta hlunnfara sig, brjóta á sér, og láti yfir sig ganga; rýja sig inn að skinninu. Hún sé jafnframt svo rænulaus og úti að aka að hún viti ekki hvað hún á og skuldar og má búast við að standa í skilum með um hver mánaðarmót. Og svo er það siðleysið. Því þarf að gera skil. Vænti viðbragða fyrir áramót. Berist þau ekki eru skrifin sjálfdæmd. Þetta er jafnfamt til þeirra miðla sem sjá sóma sinn í að birta slík skrif og hampa þeim (DV). Hjalti Þórisson, „fórnarlamb“. Greinar undirritaðs: Skoðun/visir.is 1. október 2024www.visir.is/g/20242643645d/-haekkar-bara-og-haekkar- Skoðun/visir.is 19. Nóvermber 2024www.visir.is/g/20242652046d/pislar-ganga-lan-takandans-daemi-ole-anton-bieltvedt Tilvísanir á greinar Bieltvedt: 23. september 2024 Dv-eyjanwww.dv.is/eyjan/2024/9/23/ole-anton-bieltvedt-skrifar-tjullad-thjodfelag/ skoðun/visir.is 30. septemberwww.visir.is/g/20242627757d/gedveiki-kronuhagkerfisins-tok-35-milljon-krona-lan-buinn-ad-greida-til-baka-91-milljon-skuldar-samt-enn-64-milljonir- Morgunblaðið 5. 10.2024 16 – þarf aðgang - orðrétt sama grein um efnisatriði og á Skoðun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar