Tíska og hönnun

Halla í peysu­fötum lang­ömmu sinnar

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Halla vakti mikla athygli í peysufötunum.
Halla vakti mikla athygli í peysufötunum. Eyþór Árnason

Halla Tómasdóttir forseti Íslands klæddist peysufötum af langömmu sinni Guðbjörgu Magnúsdóttur þegar hún ávarpaði þjóðina á nýársdag. Amma hennar var strandakona og var ávallt kölluð Gugga.

Þetta kemur fram í færslu hjá forsetanum á samfélagsmiðlinum Facebook. Halla segist í ávarpi sínu hafa lagt áherslu á sköpunarkraftinn sem íslenskt samfélag sé svo ríkt af að hér virðist allt vera mögulegt.

„Peysufötin sem ég klæddist í ávarpinu og við orðuveitingu á nýársdag hafa líka vakið athygli. Það er gaman að segja frá því að þau átti langamma mín Guðbjörg (Gugga) Magnúsdóttir. Þjóðbúningasilfrið, nælu og stokkabelti með eikarmunstri, fékk ég að láni frá Þjóðdansafélaginu og Oddný Kristjánsdóttir, klæðskeri hjá Þjóðbúningastofu, aðstoðaði mig við samsetninguna. Ég kann þeim bestu þakkir fyrir.“

Halla rifjar upp að amma hennar Gugga hafi verið Strandakona. Hún hafi gifst langafa hennar Pétri frá Bolungarvík og hafið með honum búskap þar en þau síðar flust til Ísafjarðar.

„Hún gekk afa mínum, Sigurði Péturssyni, í móðurstað, en fyrir átti hún eina dóttur sem hét Halla og ég er skírð í höfuðið á henni skömmu eftir að hún lést fyrir aldur fram. Mér þykir einstaklega vænt um að langamma hafi arfleitt mig af fallegu peysufötunum sínum sem ég lét lagfæra og klæddist stolt á Bessastöðum við þetta hátíðlega tilefni.“

Halla var glæsileg í peysufötunum.Eyþór Árnason





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.