Fótbolti

Skrípamark en Mikael og fé­lagar fengu bara stig

Sindri Sverrisson skrifar
Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Venezia í dag.
Mikael Egill Ellertsson var á sínum stað í byrjunarliði Venezia í dag. getty/Franco Romano

Mikael Egill Ellertsson lék allan leikinn fyrir Venezia í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag, þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Empoli.

Venezia komst yfir með hálfgerðu skrípamarki strax á fimmtu mínútu, í fyrsta leik sínum á nýju ári. Devis Vasquez, markvörður Empoli, tók allt of langan tíma með boltann áður en hann spyrnti knettinum beint í Finnann Joel Pohjanpalo og af honum fór boltinn í netið.

Empoli tókst hins vegar að jafna með marki Sebastiano Esposito á 32. mínútu og þar við sat.

Mikael lék allan leikinn en Bjarki Steinn Bjarkason var á bekknum hjá Venezia sem er áfram í fallsæti, nú í 18. sæti af 20 liðum með 14 stig, tveimur stigum frá næsta örugga sæti. Empoli er í 11. sæti.

Guðlaugur Victor á bekknum

Á Englandi voru nokkur Íslendingalið á ferðinni en Guðlaugur Victor Pálsson sat áfram á varamannabekk Plymouth, í 0-0 jafntefli við Stoke í öðrum leiknum eftir brottrekstur Wayne Rooney. Arnór Sigurðsson er enn frá keppni með Blackburn sem tapaði 1-0 á heimavelli gegn Burnley. 

Í ensku C-deildinni lék Jason Daði Svanþórsson hins vegar með Grimsby í 3-1 tapi gegn Bradford City, en Benóný Breki Andrésson er ekki kominn inn í leikmannahóp Stockport County sem mætir Mansfield Town.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×