Veður

Má reikna með snjó­komu eða éljum síð­degis

Atli Ísleifsson skrifar
Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig og kaldast inn til landsins.
Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig og kaldast inn til landsins. Vísir/Vilhelm

Smálægð er nú að myndast á Grænlandssundi og nálgast hún landið í dag. Þegar líður á morguninn má því búast við snjókomu eða éljum norðvestantil, og einnig á Suðvesturlandi síðdegis.

Frá þessu segir á vef Veðurstofunnar. Þar kemur fram að annars verði vindáttin breytileg, víða fimm til þrettán metrar á sekúndu og yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum, en norðaustanlands megi búast við dálitlum éljum.

Frost verður á bilinu þrjú til tólf stig og kaldast inn til landsins.

„Norðvestan strekkingur og él austantil á landinu á morgun, en hægari vindur og bjart að mestu á Suður- og Vesturlandi. Herðir á frosti. Síðdegis dregur úr vindi fyrir austan og styttir smám saman upp.

Á fimmtudag er svo útlit fyrir kalt og bjart veður víðast hvar á landinu, en vestantil þykknar upp og dregur úr frosti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.

Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Norðvestan 8-15 m/s og dálítil él á Austurlandi. Hægari vindur annars staðar og bjartviðri, en skýjað með köflum norðantil. Frost 5 til 17 stig, kaldast inn til landsins.

Á fimmtudag: Sunnan 8-13 norðantil, annars hægari vindur. Þykknar upp vestanlands með stöku éljum, en léttskýjað um landið austanvert. Frost 0 til 15 stig, minnst vestast á landinu.

Á föstudag: Suðaustan og sunnan 5-10 og él á víð og dreif. Frost 1 til 12 stig, en hiti kringum frostmark við suðurströndina.

Á laugardag: Hægt vaxandi suðaustanátt. Lítilsháttar snjókoma eða rigning og hlýnar smám saman, en bjart og áfram svalt á Norður- og Austurlandi.

Á sunnudag: Ákveðin sunnanátt og rigning, talsverð úrkoma sunnan- og vestanlands fram eftir degi. Hlýtt í veðri.

Á mánudag: Suðvestanátt og skúrir, en styttir upp á Austurlandi. Áfram milt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×