Suðlægur vindur og væta sunnan- og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 13. janúar 2025 07:12 Hiti á landinu verður á bilinu núll til sjö stig og hlýjast syðst. Vísir/Egill Landið er nú í morgunsárið á milli tveggja lægða þar sem aðra er að finna skammt suðaustur af Jan Mayen og veldur allhvassri vestanátt á norðaustanverðu landinu. Lægðin fjarlægist nú óðum og er vindur því á niðurleið.
Hin lægðin er á Grænlandshafi og minniháttar úrkomusvæði hennar fer norður yfir landið í dag. Á vef Veðurstofunnar segir að vindur verði því suðlægur og má reikna með dálítilli vætu sunnan- og vestanlands, en lengst af þurru veðri á Norðausturlandi. Hiti verður á bilinu núll til sjö stig og hlýjast syðst. „Þriðja lægðin, lagt suður í hafi, nálgast í nótt og á morgun og bætir því í vind og rigningu sunnan- og vestantil og hlýnar heldur. Sú lægð hreyfist nærri landinu á miðvikudag og vindar því líklega breytilegir, en áfram úrkomusamt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðlæg átt, víða 8-15 m/s og talsverð rigning, en úrkomulítið á Austurlandi. Hiti 3 til 10 stig, en kólnar á Vestfjörðum um kvöldið. Á miðvikudag: Sunnan og suðvestan 13-20 m/s og víða rigning, líkur á slyddu eða snjókomu á Vestfjörðum, en yfirleitt þurrt um landið norðaustanvert. Heldur kólnandi veður. Á fimmtudag: Norðlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s, él og vægt frost, en mildara og dálítil væta við suður- og austurströndina. Hvessir talsvert og snjóar um kvöldið. Á föstudag: Gengur í allhvassa austan- og norðaustanátt með snjókomu, en hlýnar með slyddu eða rigningu við suðurströndina um kvöldið. Á laugardag: Breytileg átt og rigning eða slydda með köflum, en snjókoma og vægt frost norðantil. Hlýnar heldur í bili. Á sunnudag: Útlit fyrir norðaustanátt með éljum eða snjókomu og kólnadi veður.
Veður Mest lesið Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Þýskir klettaklifrarar slógust í hóp með björgunarmönnum Innlent Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Erlent Fleiri fréttir Dálítil væta en fremur hlýtt Varasamar aðstæður fyrir ferðalanga „Eins og að vera úti á rúmsjó“ í Eyjum annað kvöld Spáin versnar á ný og gul viðvörun í Eyjum Rok og rigning sama hvert er litið Allt að nítján stiga hiti á Suðurlandi Lægðardrag yfir vestanverðu landinu en hiti gæti náð 18 stigum Hiti gæti náð tuttugu stigum fyrir austan Spá þoku fyrir norðan og austan Líkur á eldingum norðantil og gasmengun vestantil Reykvíkingar fengu loksins tuttugu gráður Landshitametið ekki fallið en hitamet fallin á ákveðnum stöðvum „Raunhæfur möguleiki“ að hitamet falli á morgun Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veðurblíða víða um land Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Hlýnar um helgina Skýjað með skúrum í höfuðborginni Rigning í Reykjavík en hlýtt og gott fyrir austan „Við sáum að veðrið var best fyrir austan þannig við drifum okkur austur“ Hiti nær tuttugu stigum víða á morgun Fínasta veður um land allt Hægviðri, hafgola og hiti að átján stigum Skúrir á víð og dreif Rigning með köflum sunnan- og vestanlands Skúrir víða um land og lægð nálgast Sjá meira