Elliði entist aðeins í örfáar mínútur í sigri Íslands í gær vegna rauða spjaldsins sem hann fékk að líta skömmu eftir að hann kom inn á. Hann var vægast sagt ósáttur við sjálfan en hann fékk einnig rautt í æfingaleik við Svía fyrir viku síðan.
„Maður þarf að fara að hætta þessu. Svíaleikurinn er eitthvað sem er hægt að kalla óheppni en þetta var bara lélegt hjá mér í gær. Þetta var bara klárt rautt spjald. Auðvitað ætlaði ég aldrei að fara í andlitið á honum,“ segir Elliði sem segir vonbrigði að geta ekki verið liðinu meira innan handar. Sem fyrirliði hefur hann fengið að líta tvö rauð spjöld í þremur leikjum.
„Sem fyrirliði þá eru þetta náttúrulega bara vonbrigði að geta ekki hjálpað liðinu meira en að taka tvo leiki þar sem maður er langstærstan part uppi í stúku. Það er ekkert annað heldur en að keyra þetta í gang núna, hér eftir,“ segir Elliði.
Línumannastaðan hefur verið betur mönnuð en í gær. Auk rauðs spjalds Elliða var Sveinn Jóhannsson fjarverandi þar sem treyjunúmer hans losnaði af búningi hans og honum óheimilt að koma inn á völlinn án númers. Ýmir Örn Gíslason sinnti stöðunni því nánast einn síns liðs.
„Hann þurfti bókstaflega að spila í þessum leik. Þetta var allsherjar klúður þarna, þessi tvö atvik, treyjan hans fór alveg til fjandans og ég með rautt. Þannig að Ýmir kláraði þetta vel í miklu álagi,“ segir Elliði.
Elliði viðurkennir þá að hann hafi ekki fylgst með leiknum af mikilli einbeitingu eftir brottvísunina. Hann hafi verið svo ósáttur við sjálfan sig.
„Ég viðurkenni að ég var svolítið svekktur þarna uppi í stúku. Fyrst að leikurinn var nokkuð klár var ég meira að fara yfir mín mál þarna sjálfur uppi í stúku. Það voru nokkur augnablik sem við hefðum getað gert betur og nokkur augnablik sem við gerðum vel. Það er hægara sagt en gert að halda fókus allan leikinn þegar þú ert kominn með tíu marka forystu en það er eitthvað sem við þurfum að gera betur í leiknum á móti Kúbu,“ segir Elliði sem sér fram á að spila meira í þeim leik, við Kúbu, sem fram fer í kvöld.
„Já, ég mæti klár í næsta leik. Það þýðir ekkert annað.“
Ísland mætir Kúbu í öðrum leik riðlakeppninnar á HM í Zagreb í kvöld klukkan 19:30. Strákunum okkar verður fylgt vel eftir fram að leik.