Innlent

Veður­viðvaranir og vega­lokanir

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Vetrarfærð á Holtavörðuheiði. Mynd úr safni.
Vetrarfærð á Holtavörðuheiði. Mynd úr safni. Vísir/Atli Ísleifsson

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir víðs vegar um landið. Margir vegir eru á óvissustigi og gæti þeim verið lokað með stuttum fyrirvara.

Klukkan tíu í dag, laugardag, eru gular viðvaranir í gildi á Norðurlandi, Vesturlandi, Austurlandi, Vestfjörðum og Miðhálendinu. Lengst verða viðvaranir í gildi á Vestfjörðum, til klukkan sex á sunnudagsmorgun.

Ýmsir vegir eru á óvissustigi samkvæmt vefsíðu Vegagerðarinnar. Vegunum gæti verið lokað með stuttum fyrirvara. Þar á meðal er Fróðárheiði, Klettháls, Steingrímsfjarðarheiði, og Þröskuldar.

Vatnaleið, Svínadalur, Brattabrekka og Holtavörðuheiði fara á óvissustig á hádegi.

Þá er Dynjandisheiði á Vestfjörðum ófær. Vopnafjarðarheiði er einnig lokuð og sömuleiðis Fjarðarheiði sem verður lokuð fram yfir hádegi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×