Opið bréf til Ingu Sæland Ragnar Erling Hermannsson skrifar 20. janúar 2025 12:02 Akranes 20. janúar 2025 Opið bréf til nýs Félags og húsnæðismála ráðherra. Ég vil tileinka þennan pistil minningu ömmu minnar Sigrúnar Ragnarsdóttur sem hafði óbilandi trú á mér. Kæra Inga Sæland Mig langar að byrja , að sjálfsögðu með því að óska þér innilega til hamingju með að hafa sýnt allri þjóðinni í verki að sannarlega getur maður komist alla leið og náð þeim markmiðum sem við setjum okkur , hvort heldur stór eða smá. Það er raunverulegt tilefni til þess að segja upphátt Vá ! Þér tókst þetta ... ... og ert komin í það ráðuneyti sem ég tel að flestir Íslendingar vilja vita af þér í ... ...a.m.k. kjósendur þínir greiddu atkvæði til að sjá þetta verða að veruleika ! Ég veit Inga hversu miklar vonir eru bundnar við veru þína í ríkisstjórn ... ... þér nefnilega tókst að breyta hugarfari ömmu og afa sem ólu okkar kynslóð á þeirri sannfæringu að ÞETTA MUN ALDREI BREYTAST ! Þegar þú komst fyrst fram á sjónarsviðið var sem ljós kviknaði við enda myrkursins sem kynslóð þeirra hafði engan enda á fundið : ‚‘‘ Ef einhver mun breyta einhverju þá er það hún Inga Sæland hjá Flokki Fólksins ‚‘‘ ! Sagði hún amma mín sáluga og leið sennilega eins og hún væri sjálf stödd í Kryddsíld að rífast við Bjarna Ben ! Engin pressa ... Eða , öllu heldur eins mikil pressa og getur mögulega orðið kæra Inga ! Ég er sannfærður um að þú ein berð kyndil síðasta möguleika Alþingis að halda nokkurri virðingu og trausti á lofti fyrir hina íslensku þjóð : Ef Inga Sæland og orð hennar bregðast nú er þessu lokið .. ... ég finn það í öllum taugum ! Mig langar að óska þér innilega til hamingju og góðs gengis að uppfylla væntingar þeirra sem lengi hafa setið á hakanum varðandi sín grunn lífsgæði , öryrkjar , fatlaðir , aldraðir .. ... þau sem án efa komu þér í ríkisstjórn full nýrrar vonar ! Mig langar einnig að minnast á frekar erfiða staðreynd þegar kemur að umræðunni um húsnæðismál : Ekki einn einast frambjóðandi síðastliðinna kosninga sagði upphátt orðið HEIMILISLEYSI ! Mig langar að kasta fram einu sjónarhorni þegar kemur að því að ræða vandamál á húsnæðis markaði .. ... eru það ekki þeir sem engin hús eiga í að venda og þeir sem ekkert heimili eiga sem mestan húsnæðis vanda við glíma ? Ég er full upplýstur um að margir aðrir úti í samfélaginu eru að kljást við ýmislegt þessu tengt , afborganir og vextir af lánum , leigusamninga o.s.frv. ... en þykir þér hæstvirtur ráðherra og ykkur Íslendingar óeðlilegt að ég spyrji hvers vegna þessi hópur er ekki tekinn með þegar rætt er þennan málaflokk ? Enn eru tugir sem ekkert heimili eiga og verja öllum sínum stundum flakkandi á milli neyðarskýla og Kaffistofu Samhjálpar .. ... spólandi í sama fari alla daga þar sem engin möguleiki er fyrir þá sem ekki eiga heimili að byggja nokkuð annað í kringum líf sitt þar sem enginn grunnur er til staðar. Vissulega kom sprengja í úthlutun á húsnæði eftir að Viðmóts hreyfingin tók til starfa .. þeir einstaklingar sem loksins eru komnir með húsnæði eftir áratugi í götunni sjá fram á að sjúkleiki þeirra og fíkn fari loks dvínandi .. ... sem dæmi má nefna hvað húsnæði hefur gert fyrir þennan hóp þá er fíknsjúkdómurinn að heilast í þeim fyrir framan nefið á mér .. sko til .. ... það var ekki flóknara prógramm sem til þurfti en HEIMILI ! Loksins geta þeir sem sökum stöðu sinnar gengu á morfíni alla daga til að lina þjáningar daglegs lífs á götunni fengið ró í taugakerfið .. engin að stela , svíkja , ræna ... öryggi .. ... og ekki sést til þeirra á götunni þar sem þau njóta sín HEIMA HJÁ SÉR! Það er fullur vilji hjá Reykjavíkurborg að setja fulla pressu á að koma þeim síðustu í hús og hér með eyða heimilisleysi á Íslandi fyrir fullt og allt ! Heiða Björg Hilmarsdóttir formaður Velferðarmála Reykjavíkurborgar kom til okkar á kaffistofuna s.l. föstudag og það var ekki annað að sjá en að fullur vilji sé af þeirra hálfu að taka þetta málefni föstum tökum .. ... en ríkið VERÐUR að taka þátt ! Þannig að ég spyr hæstvirtan Félags og Húsnæðismála ráðherra hvort ekki sé tímabært að taka höndum saman um þetta sem hlýtur að vera forgangsmál þegar kemur að húsnæðismálum ? Ég held það muni líta mjög vel út á ferilskrá eftir farsælan feril þinn að hafa útrýmt fátækt og heimilisleysi á Íslandi ! Eins og þú og flokksmenn þínir hafa minnst á opinberlega þá er þetta sáraeinfalt í framkvæmd .. ... nú er bara að framkvæma ! Í minningu ömmu minnar Inga .. Gangi þér vel ! Með virðingu og von Ragnar Erling Hermannsson Höfundur er félagi í Viðmóti, félagi um mannúðlegri vímuefna stefnu á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Flokkur fólksins Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar