Skoðun

Strætó fær sérakrein á Kringlu­mýrar­braut

Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Við samþykktum í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur í gær að setja forgangsakrein fyrir strætó á 500 metra kafla vestanmegin á Kringlumýrarbraut í suðurátt milli Miklubrautar og Háaleitisbrautar í samvinnu við Vegagerðina. Þetta mun stytta ferðatíma strætófarþega á háannatíma verulega eða um allt að 4-5 mínútur á sumum leiðum. Sérakreinar koma almennt í veg fyrir að farþegar almenningssamgangna sitji fastir í umferðarsúpu og gera leiðirnar og þjónustuna áreiðanlegri.

Í nýju leiðaneti strætó er stefnt að því að Borgarlínuleið D aki Kringlumýrarbraut að og frá miðborginni. Með þessu er verið að taka frá það rými sem þarf undir sérrými Borgarlínu og nýta það sem forgangsrein fyrir strætó. Hluti af framkvæmdunum er að breyta leið 4 í átt að því hvernig leið D mun aka í Reykjavík í framtíðinni sem er að aka Kringlumýrarbraut milli Háaleitisbrautar og Miklubrautar í stað þess að aka Háaleitisbraut. Styttir það för vagnanna og bætir gæði þjónustu við farþega.

Hingað til fer strætó ekki þarna um þar sem að umferðin þykir of hæg á annatímum. Þykir því brýnt að bæta aðstæður fyrir strætó áður en strætó fer að aka þessa leið eins og stefnt er að. Engar biðstöðvar eru þarna í dag en þeim verður bætt við í kjölfarið. Miðeyjan verður minnkuð til að koma akreininni fyrir svo þarna er hvorki verið að taka akrein frá almennri bílaumferð eða stækka götukassann.

Vonir standa til þess að bjóða út fyrsta hluta framkvæmdanna fyrir vorið og hefja svo framkvæmdir í framhaldinu.

Við þekkjum það af reynslunni að innviðauppbygging mótar hegðun okkar. Meira svigrúm og rými fyrir strætó gerir þjónustunna áreiðanlegri og betri og styður við aukna notkun almenningssamgangna. Á höfuðborgarsvæðinu fjölgar um 70 bíla vikulega og við verðum að bregðast við þeirri rúmfræðilegu áskorun - að ég tali ekki um mengunina. Skilvirkasta aðferðin er uppbygging almenningssamgangna sem hefur margfalda afkastagetu á við bílinn. Þannig gagnast svona þróun okkur öllum, ekki síst þeim sem þurfa og vilja aka bíl.

Höfundur er formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, stjórnarformaður Strætó bs. og borgarfulltrúi Pírata.




Skoðun

Sjá meira


×