Lífið

Eik tók hæð við Rauða­læk í gegn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eik er snillingur í því að taka eignir í gegn.
Eik er snillingur í því að taka eignir í gegn.

Í Heimsókn í síðustu viku skellti Sindri Sindrason sér í heimsókn í íbúð Eikar Gísladóttur, flugfreyju.

Eik hefur áður komið við sögu í Heimsókn en að þessu sinni hafði hún tekið fallega 164 fermetra hæð við Rauðalæk í gegn frá a-ö.

Um er að ræða Sigvaldahús og réðist hún í þónokkrar framkvæmdir, meðal annars færði hún eldhúsið inn í stofuna. Og breytti eldhúsinu í gestaherbergi.

Eik á drengi sem eru komnir á fullorðinsaldur og starfa þeir sem pípari og rafvirki. Það kom sér heldur betur að góðum notum í framkvæmdunum en hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti. Heimsókn er á dagskrá Stöðvar 2 á miðvikudagskvöldum.

Klippa: Eik tók hæð við Rauðalæk í gegn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.