Innlent

Vegum lokað vegna snjó­flóða­hættu

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Vilhelm

Veginum um Raknadalshlíð í Patreksfirði og Kleifaheiði var lokað í kvöld vegna snjóflóðahættu. Snjóflóð hafa fallið á svæðinu og er talin hætta á fleiri flóðum næstu klukkustundir. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum. Fram kemur að staðan verði metin í fyrramálið með opnun í huga.

Vegfarendur sem þurfi að fara vegina eru hvattir til að fylgjast með upplýsingum um veður og færð á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×