Enski boltinn

Sakar Arteta um að ýta undir dómarahatur

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur ekki alltaf verið hamingjusamur með dómgæsluna í vetur.
Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, hefur ekki alltaf verið hamingjusamur með dómgæsluna í vetur. getty/Marc Atkins

Gary Neville segir að Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, ýti undir dómarahatur með hegðun sinni.

Michael Oliver bárust morðhótanir eftir að hafa rekið Myles Lewis-Skelly, leikmann Arsenal, út af í leiknum gegn Wolves í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Arteta fordæmdi hótanirnar sem Oliver bárust og níðið sem hann varð fyrir. En Neville segir að Spánverjinn sé sjálfur ekki saklaus.

„Stuðningsmenn Arsenal nota orð eins og spilling sem þýðir að þeir halda að hann fái borgað fyrir að dæma á ákveðinn hátt sem er augljóslega ekki rétt,“ sagði Neville í hlaðvarpinu Stick to Football.

„Við hjá Manchester United vorum hjá félagi þar sem okkur fannst allir vera á móti okkur, líka dómarar. Arsenal er að gera það sama. Það er engin spurning að Arsenal hellir olíu á eldinn eftir leiki í staðinn fyrir róa hlutina. Þeir hafa gert það undanfarna tólf mánuði. Ég get ekki sagt að það sé rangt eftir að hafa spilað í liðinu sem ég spilaði í.“ 

Neville bætti við að aðstæður séu breyttar frá því þegar hann var að spila og nefndi samfélagsmiðla í því samhengi.

„Reiði Arsenal-manna kemur aðallega frá leikmönnum, Mikel Arteta og þekktum stuðningsmönnum. Núna ertu með samfélagsmiðla þar sem ásakanir um spillingu og svindl eru áberandi. Við höfðum ekki svona áhrif á sínum tíma. Allir voru símalausir heima og Twitter var ekki til,“ sagði Neville.

Rauða spjaldið á Lewis-Skelly var dregið til baka og hann fer því ekki í þriggja leikja bann.

Arsenal vann 1-2 sigur á Girona í Meistaradeild Evrópu í gær. Skytturnar enduðu í 3. sæti Meistaradeildarinnar og eru komnar í sextán liða úrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×