Syngur Cha Cha Cha á Söngvakeppninni Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 4. febrúar 2025 09:30 Käärijä tekur lagið. Käärijä fulltrúi Finnlands í Eurovision árið 2023 í Liverpool mætir á úrslit Söngvakeppninnar í ár. Þar mun hann taka lagið sem skilaði honum öðru sæti í keppninni það árið, Cha Cha Cha.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá skipuleggjendum. Eins og fram hefur komið hefst keppnin næsta laugardag. Þá verða fimm lög flutt í fyrri undanúrslitum. Seinni undanúrslitin fara svo fram þann 15. febrúar og úrslitin 22. febrúar. Cha Cha Cha hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi en með finnska tónlistarmanninum verður sænski elektróníski dúettinn Hooja, sem segir í tilkynningu að sé að slá í gegn á Norðurlöndum þessa dagana. Þá mun Aron Can opna fyrstu undanúrslitin þann 8. febrúar, Jóhanna Guðrún keppnina 15. febrúar og Herra Hnetusmjör úrslitin. Á úrslitakvöldinu mun Hera Björk fulltrúi Íslands í Eurovision í fyrra svo stíga á svið. Himinlifandi með Finnann „Við erum í skýjunum yfir því að fá allt þetta frábæra listafólk með okkur á stóra sviðið í Gufunesinu. Käärijä hefur til að mynda notið gríðarlegra vinsælda hér á landi og það verður gaman að sjá hann trylla áhorfendur í höllinni á úrslitakvöldinu,“ segir Rúnar Freyr Gíslason framkvæmdastjóri Söngvakeppninnar. „Og áhorfendur munu alveg örugglega gleðjast yfir Heru, Aroni Can, Herra Hnetusmjör og Jóhönnu Guðrúnu sem mun meðal annars taka lagið Is it true sem lenti í 2. sæti í Eurovision 2009. Og hún verður ekki ein á sviðinu, því bakraddirnar sem voru með henni í Moskvu 2009, þau Friðrik Ómar, Hera Björk og Erna Hrönn, ætla að vera með henni. Svo verða líka allskonar uppákomur,“ segir Rúnar. Hann segir æfingar nú á lokametrunum. Þetta verði frábær keppni. Hann segist vita sem er að kynnarnir Benni, Fannar og Gunnar Dís muni bjóða upp á margt skemmtilegt. Þá kemur fram í tilkynningu Ríkisútvarpsins að það hafi ýtt úr vör hlaðvarpsþáttum um keppnina.
Eurovision Tónlist Eurovision 2025 Tengdar fréttir Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Ríkisútvarpið hefur svipt hulunni af þeim tíu keppendum sem munu koma til með að stíga á svið í Söngvakeppninni 2025. Meðal þeirra eru Dagur Sig, Stebbi JAK, VÆB og Bjarni Ara. 17. janúar 2025 20:11 Ekkert einvígi í Söngvakeppninni 2025 Ekkert einvígi verður í Söngvakeppninni 2025 heldur mun stigahæsta lagið í úrslitum bera sigur úr býtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þar sem fram kemur að keppnin fari fram þrjár helgar í febrúar. 3. janúar 2025 15:01 Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Lífið Pattra og Brynjar slá sér upp Lífið Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Lífið 50+: Hvers vegna við hættum (loksins) að nenna að útskýra okkur Áskorun Fleiri fréttir Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Sjá meira
Þetta eru keppendur Söngvakeppninnar 2025 Ríkisútvarpið hefur svipt hulunni af þeim tíu keppendum sem munu koma til með að stíga á svið í Söngvakeppninni 2025. Meðal þeirra eru Dagur Sig, Stebbi JAK, VÆB og Bjarni Ara. 17. janúar 2025 20:11
Ekkert einvígi í Söngvakeppninni 2025 Ekkert einvígi verður í Söngvakeppninni 2025 heldur mun stigahæsta lagið í úrslitum bera sigur úr býtum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu frá Ríkisútvarpinu þar sem fram kemur að keppnin fari fram þrjár helgar í febrúar. 3. janúar 2025 15:01