Nóg af þögn – nú er kominn tími á aðgerðir Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar 11. febrúar 2025 10:00 Undanfarnar vikur hefur nokkuð farið fyrir kjarabaráttu Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum vegna kjara leikara í Borgarleikhúsinu. Full ástæða er til að gefa þessu máli meiri gaum. Leikfélag Reykjavíkur er stöndugt félag og hefur unnið frábært starf á undanförnum árum. Borgarleikhúsið blómstrar sem aldrei fyrr. Síðastliðin tvö ár hafa rekstrarlega séð verið félaginu hagstæð. Það þarf ekki að leita langt aftur í tímann til að sjá að það hefur ekki alltaf verið staðan, enda vita allir hvaða áhrif Covid-faraldurinn hafði á rekstur menningarstofnana hér á landi. Samkvæmt nýjasta ársreikningi Leikfélags Reykjavíkur er samanlagður hagnaður félagsins sl. 2 ár um 300 milljónir króna, handbært fé meira en 350 milljónir króna og verðbréf og innstæður um 550 milljónir króna. Vafalítið er um að ræða fjármuni sem munu verða nýttir til að halda áfram því frábæra starfi sem félagið hefur unnið á undanförnum árum. Velgengni félagsins á undanförnum tveimur árum er komin til af þremur ástæðum: Öflugri stjórnun félagsins sem birtist í vel sóttum sýningum og metnaðarfullri, listrænni dagskrá, styrkum stuðningi Reykjavíkurborgar og listamannanna sem koma að sýningunum sem í boði hafa verið undanfarin ár. Full ástæða er til að geta sérstaklega framlags frá leikurum og öðrum starfsmönnum sem koma að sýningarhaldinu, enda vitað mál að það er ekkert leikhús án leikara. Nú bregður svo við að listamenn innan Borgarleikhússins vilja semja um kaup sín og kjör. Fullkomlega eðlileg krafa, sjálfsögð mannréttindi. En þá kemur upp úr dúrnum að vilji til breytinga er, að því er virðist, takmarkaður. Þó vil ég setja fyrirvara við þessi orð mín, því það vantar meiri upplýsingar. Það vantar aukið gagnsæi. Undanfarnar vikur hafa stjórnendur FÍL - félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum stigið fram með réttmætar ábendingar opinberlega um stöðu félagsmanna þeirra. Sérstaklega má minnast á baráttu listdansara og danshöfunda sem taka þátt í sýningum innan Borgarleikhússins að fá samninga til jafns við leikara og leikritahöfunda auk þess að setja fram þá sjálfsögðu kröfu að laun innan listgreina fylgi almennri launaþróun á Íslandi. Þessar ábendingar kalla á viðbrögð af hálfu Borgarleikhússins, en þó heyrist ekkert af hálfu leikhússins. Hvers vegna ekki? Miðað við frábæra stöðu Leikfélags Reykjavíkur virðist svigrúm til að koma til móts við kröfur FÍL. En þó gengur hvorki né rekur í viðræðunum. Það er ekki boðlegt hvað upplýsingarnar um kjaraviðræðurnar hafa verið einhliða, svo og hve mikið skortir á upplýsingar um kjör þeirra listamanna sem nú eru í viðræðum. Hér þarf að gera gangskör, ef ekki nema vegna þess að það er allra hagur. Leikfélag Reykjavíkur er að standa sig frábærlega. Reykjavíkurborg hefur stutt við starf þess af myndarskap. Samt segir engin/n neitt þegar FÍL óskar eftir kjarabótum? Engin yfirlýsing af hálfu Borgarleikhússins? Engar upplýsingar settar fram um launaþróun undangenginna ára (til dæmis síðastliðinn áratug)? Enginn vilji af hálfu borgarinnar til að stíga fram og veita leiðsögn fyrir hvernig leyst verður úr þeim hnút sem stendur yfir í kjaramálum. Vissulega hefur þögnin ákveðna vigt, en öllu má ofgera. Um þessar mundir ríkir almennt samkomulag um að launahækkanir í samfélaginu eigi að vera þær sömu fyrir allar stéttir og fyrir alla aðila á vinnumarkaði. BÍL mun ekki setja sig upp á móti slíku samkomulagi. En við það verður ekki unað af hálfu bandalagsins, ef það er ekki skýrt hvort launakjör listamanna innan Borgarleikhússins hafi á undanförnum áratug fylgt þeim kjörum sem samið hefur verið um á almennum og opinberum mörkuðum. Í kjaradeilum Borgarleikhússins og FÍL sem nú standa yfir leikur enn vafi á því hvort sviðslistafólk njóti sams konar réttinda og launþegar í samfélaginu. Þessum vafa þarf að eyða. Það er einn aðili sem hefur þar tögl og hagldir. Hann þarf að stíga fram, og það er Borgarleikhúsið sjálft og fyrirsvarsmenn þess. Fyrir hönd BÍL kalla ég eftir auknu gagnsæi og meiri upplýsingum, það er allra hagur. Nú er ekki lengur tími þagnar, nú er tími aðgerða. Að breyta hugarfari hjá heilu þorpi tekur tíma og það gerist aðeins ef við listamenn stöndum saman. Að við höldum áfram að finna hugrekki að segja upphátt það sem við viljum og af hverju við eigum það skilið. Stjórn BÍL stendur með leikurum, dönsurum og danshöfundum í kjarabaráttu sinni. Við skorum á Reykjavíkurborg og stjórn Leikfélags Reykjavíkur að koma fram opinberlega með samningsafstöðu sína og ganga frá samningi við FÍL. Höfundur er forseti Bandalags íslenskra listamanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun