„Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. mars 2025 11:01 FH-ingar misstu dampinn undir lok síðasta tímabils. vísir/diego Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, telur að FH verði í baráttu um að halda sér í efri hluta Bestu deildar karla. Varnarleikur liðsins þurfi að lagast frá síðasta tímabili.
FH er spáð 7. sæti Bestu deildar karla í spá íþróttadeildar Vísis og Stöðvar 2. FH-ingar enduðu í 6. sæti á síðasta tímabili. „Já, þeir geta það,“ sagði Baldur, aðspurður hvort FH geti komist í úrslitakeppni efri hlutans. „Þeir gerðu það í fyrra. Þeir eru vissulega búnir að missa menn en Heimir [Guðjónsson] er öflugur þjálfari og það sem við sáum fyrstu 16-17 umferðirnar frá FH í fyrra er merki um að hann nær til leikmannanna og hann, sem góður þjálfari, áttar hann sig alltaf á hvað hann er með í höndunum og hvernig þeir eiga að spila. Vissulega er hópurinn ungur og þeir eru búnir að missa góða menn og þetta getur brugðið til beggja vona. Maður er pínu hræddur fyrir þeirra hönd.“ Klippa: 7. sæti FH Baldur segir að FH hafi dregist aftur úr sterkustu liðum landsins. „Já, ég held það. Miðað við úrslitin í vetur, það sem við getum miðað við. Leikmennina sem eru farnir og þeirra sem eru komnir hef ég smá áhyggjur af því,“ sagði Baldur. „Núna er það bara hlutverk þessara ungu leikmanna sem eru í liðinu; þeir þurfa að stíga hratt upp. Aðaláhyggjuefnið er að þeir nái að skrúfa fyrir varnarleikinn. Það vantar hafsent. Úlfur [Ágúst Björnsson] kemur til baka en fleiri þurfa að taka þátt í að skora mörk.“ FH mætir Stjörnunni í Garðabæ í fyrsta leik sínum í Bestu deildinni mánudaginn 7. apríl.
Besta deild karla FH Mest lesið Aldrei séð Dag svona reiðan Handbolti „Þetta er bara einn af mönnum mótsins hingað til“ Handbolti Tennisstjörnurnar fela hluti í nærfötunum Sport „Lítill stuðningur við strákana okkar að auglýsa í fjölmiðlum“ Handbolti „Gjörsamlega glórulaust“ Handbolti „Aðrir sjá um að tuða yfir því“ Handbolti Alfreð stóð með Degi: „Ekki eins og best verður á kosið“ Handbolti Sömu og dæmdu í sigrinum á Svíum en fyrst dæma Íslendingar Handbolti „Þá myndu þeir ljúga að mér“ Handbolti Sigvaldi kallaður inn í íslenska hópinn Handbolti Fleiri fréttir Varafyrirliða FH sagt að finna sér nýtt félag Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Sjá meira