Amorim íhugar að henda Onana á bekkinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. apríl 2025 11:30 André Onana átti sök á báðum mörkunum sem Manchester United fékk á sig gegn Lyon á fimmtudaginn. getty/Michael Steele Knattspyrnustjóri Manchester United, Ruben Amorim, íhugar að setja André Onana, markvörð liðsins, á bekkinn fyrir leikinn gegn Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Onana var mikið í umræðunni fyrir og eftir leik United gegn Lyon í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Í aðdraganda leiksins sagði hann að United væri með mun sterkara lið en Lyon. Það fór illa í gamla United-manninn hjá Lyon, Nemanja Matic, sem sagði að Onana ætti að hafa sig hægan, enda væri hann einn slakasti markvörður í sögu United. Onana gerði lítið til að afsanna þessi orð Matic en hann átti sök á báðum mörkum Lyon í leiknum á fimmtudaginn. Hann endaði með 2-2 jafntefli. Liðin mætast öðru sinni á Old Trafford næsta fimmtudag. Daily Mail greinir frá því að Amorim muni gera talsverðar breytingar á byrjunarliði United fyrir leikinn gegn Newcastle á morgun. Meðal þeirra eru að Altay Bayındır gæti staðið á milli stanganna í stað Onanas. Amorim kom Onana til varnar eftir leikinn í Lyon á fimmtudaginn en hann hefur eflaust ekki endalausa þolinmæði fyrir ítrekuðum mistökum kamerúnska markvarðarins. Onana hefur átt afar misjöfnu gengi að fagna með United síðan félagið keypti hann frá Inter sumarið 2023. United er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 38 stig eftir 31 leik.
Enski boltinn Mest lesið Björk segir öllum þjálfurum upp Sport Ísland - Sviss | Allt undir hjá ungu strákunum okkar Fótbolti Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Handbolti Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Handbolti City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Enski boltinn Átti aldrei að geta hlaupið aftur en vann Bakgarðinn Sport Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Íslenski boltinn Leikdagur í Lúx: Rodrigues er fífl Fótbolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Arnar fái silkihanskameðferð: „Um hvað ertu að tala?“ Fótbolti Fleiri fréttir Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Sjá meira