Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. apríl 2025 08:01 Darwin Nunez skoraði og lagði upp í síðasta byrjunarleik sínum með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni en hefur ekki byrjað síðan. Getty/Carl Recine Úrúgvæski framherjinn Darwin Nunez hefur ekki komið við sögu í síðustu tveimur leikjum Liverpool og blaðamenn í Portúgal velta ástæðunni fyrir sér.
Samkvæmt frétt portúgalska blaðsins A Bola gæti ástæðan hreinlega verið kaupsamningur Liverpool við Benfica. Liverpool keypti Nunez á 64 milljónir punda árið 2022 en eins og með marga kaupsamninga þá geta slík kaupverð hækkað nái leikmaðurinn ákveðnum markmiðum með nýja liðinu sínu. Liverpool þarf þannig að borga Benfica fimm milljónir evra í viðbót um leið og Úrúgvæinn byrjar sinn fimmtugasta leik með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Nunez hefur til þessa verið 49 sinnum í byrjunarliði Liverpool í ensku deildinni. Næst þegar hann er í byrjunarliðinu þá þarf Liverpool því að borga portúgalska félaginu 727 milljónir íslenskra króna. Nunez hefur skorað 7 mörk og gefið 7 stoðsendingar í 42 leikjum í öllum keppnum með Liverpool á leiktíðinni þar af eru 5 mörk og 3 stoðsendingar í 25 deildarleikjum. Umfjöllun A Bola vekur vissulega athygli á þessari stöðu ekki síst þar sem að hann var ekki í hóp á móti West Ham og var síðan ónotaður varamaður á móti Leicester. Nunez var síðast í byrjunarliðinu í ensku úrvalsdeildinni í 3-1 sigri á Southampton 8. mars og var þá bæði með mark og stoðsendingu. Nú er að sjá hvort Arne Slot megi velja kappann í byrjunarliðið sitt eða hvort hann hafi hreinlega fengið fyrirskipun að ofan. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Enski boltinn Mest lesið Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Íslenski boltinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Íslenski boltinn Lokahófi HSÍ aflýst Sport Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Fótbolti FH-ingar boða til blaðamannafundar Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Stórlið slást um Gordon Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Óeining innan stjórnar West Ham um næstu skref eftir krísufund United bætti sig mest en Liverpool hrakaði Ætlar að hringja í Keane og leiðrétta „lygar“ hans Liði 92 strákanna mistókst að komast upp Flottustu mörk tímabilsins í enska boltanum Mörkin úr lokaumferðinni og tárvotar kveðjustundir Bruno bætti metið eða hvað? Bolton flaug upp en Benoný og félagar sátu eftir Tottenham bjargaði sér og Liverpool tók eina lausa sætið Svona er lokaumferðin: Fall upp á 43 milljarða og hvaða lið fá Evrópusæti? Dramatík er McBurnie skaut Hull í úrvalsdeildina Éderson á leið til Manchester United Kæra ef þeir tapa Fernandes og O'Reilly bestir í deildinni „Sorglegt að sjá hvernig er komið fyrir mínum klúbbi“ Sjáðu allt það besta sem Guardiola hefur gert í enska boltanum Skilur pirring stuðningsmanna út í fyrirliðann Mamma Maguire fylltist viðbjóði Svona verður lokaumferðin í enska boltanum á Sýn Sport City staðfestir brotthvarf Guardiola: „Hefur verið svo f-ing gaman“ Sjá meira