Stefán greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum.
„Margt hefur drifið á dagana og óteljandi minningar hafa safnast í sarpinn. Þar eru efst á baugi auðvitað drengirnir okkar tveir sem eru það dýrmætasta sem lífið hefur fært okkur en líka ferðalög um veröld víða, 45 barnabækur, bókaþýðingar og –skrif og svo margt, margt annað sem við varðveitum áfram saman og sitt í hvoru lagi,“ segir Stefán.
„Við lítum hvorki á þetta sem strand eða skipbrot þótt vissulega sé þungur sjór þegar ákvörðun af þessu tagi er tekin. Hún er hvorki léttvæg né tekin af léttúð. Við ætlum að halda af stað mót framtíðinni með bjartsýni að vopni.“
Samband Stefáns og Söru komst í kastljós fjölmiðla árið 2012 þegar Sara Lind var ráðin til starfa hjá VR þar sem Stefán Einar gegndi þá formannsstöðu. DV fjallaði um ráðninguna og hélt því fram að Sara Lind hefði verið ráðin þrátt fyrir að vera ekki hæfust umsækjenda.
Í kjölfarið höfðuðu þau bæði meiðyrðamál gegn DV. Fjölmiðillinn var sýknaður af kröfu Stefáns Einars en Söru Lind voru dæmdar bætur.
Sara sótti svo VR til saka vegna ólögmætrar uppsagnar og eineltis þegar henni var sagt upp störfum ári síðar. Þá hafði nýr formaður VR Ólafía B. Rafnsdóttir tekið til starfa og vísað var til skipulagsbreytinga sem ástæðu uppsagnar Söru Lindar.
Sjá: Uppsögn Söru Lindar ekki ólögmæt en dómur klofinn í eineltismáli
Stefán Einar heldur úti þjóðmálaþættinum Spursmál á vegum Morgunblaðsins sem notið hefur mikilla vinsælda undanfarin misseri.
Stefán og Sara hafa sett parhúsið sitt í Urriðaholti á sölu og er ásett verð rúmar tvö hundruð milljónir króna.