„Við erum miklir aðdáendur spurningaspila en maður á það til að klára þau strax um jólin og þá þarftu að bíða í heilt ár eftir næsta spili. Við vildum útbúa spurningabanka sem væri alltaf aðgengilegur og þú færð nýjar og ferskar spurningar vikulega,“ segir Ari Friðfinnsson, annar stofnenda Ullari sf.
„Það á ekki að þurfa að eyða klukkutímum í að búa til spurningar – þú átt bara að geta smellt á skjal og byrjað.“
Hugsað fyrir fólk sem vill hlæja, keppa og læra smá með
Spurningapakkarnir koma í PDF formi og innihalda fjölbreytt efni – allt frá poppmenningu og furðulegum staðreyndum yfir í íslenska menningu og landafræði.

„Við reynum að blanda saman því sem allir þekkja og því sem fáir vita – en mikilvægast er að allir geta spilað með,“ bætir Úlfar Konráð Svansson, hinn helmingurinn af Ullari. „Ef að þú ert alltaf sá sem sér um að útbúa Pub Quizin fyrir vinnuna, fyrir vinina eða fyrir fjölskylduna, þá er þetta klárlega fyrir þig. Núna gætir þú líka spilað með.“
Svona virkar þetta – einfalt og sniðugt
Ullari hefur einfaldað ferlið niður í þrjú skref:
1. Veldu þema og pakka
Á vefnum ullari.is velurðu spurningapakka sem hentar tilefninu. Til að byrja með vildum við hafa þetta einfalt og erum að bjóða upp á almennar spurningar, krakkaspurningar og einnig Eurovision spurningar fyrir helgina. Einnig er í boði sérpakkar fyrir vinnustaði og hópa. Fleiri flokkar munu fljótt bætast við.
2. Borgaðu með öruggum greiðslumáta
Greiðslan fer fram á öruggu netformi – með korti – og þú færð staðfestingu strax eftir kaup.
3. Fáðu spurningabankann sendan í tölvupósti og byrjaðu leikinn
Eftir kaup færð þú sjálfkrafa tölvupóst með tengli á niðurhal. Þar bíður þín PDF skjal með öllu sem þarf: spurningar, svör og leiðbeiningar. Þú getur prentað út eða sýnt á skjá – þú ert klár í kvöldið!

Fyrirtækjaskemmtanir á næsta stig
Þó flestir vilji sjá um Pub Quiz sjálfir, þá bjóða þeir Ari og Úlfar einnig upp á að taka við stjórninni. Þeir mæta á staðinn og sjá um að halda utan um kvöldið – hvort sem það er árshátíð, staffapartí eða afmæli.
„Við mætum á staðinn og sjáum um allt frá A-Ö, sjáum jafnvel um veislustjórn og fleira ef þess þarf,“ segja þeir félagar, sem sjálfir eru með leiftrandi húmor og brennandi áhuga á góðri skemmtun.

Þeir hafa einnig verið að bjóða upp á Emoji kennslu fyrir fyrirtæki til að sporna gegn samskiptaleysi á vinnustöðum.
„Ég mæli auðvitað með því að panta okkur með,“ segir Ari. „Það mun alltaf vera þess virði, við erum ekkert eðlilega skemmtilegir.“
Fyrsta skrefið í átt að stærri draumi
Þó þetta sé byrjunin á starfi þeirra Ara og Úlfars, þá er markmiðið skýrt. Með spennandi framtíðaráform eins og bækur og hlaðvörp í undirbúningi, þá er ekki ólíklegt að Ullari verði fljótlega landsþekkt nafn. Þeir eru strax farnir að taka á móti bókunum í haust.
Pub Quiz pakkarnir frá Ullari eru fáanlegir núna. Kíktu á Ullari.is og nældu þér í pakka fyrir helgina!
„Þetta þarf ekki að vera flókið,“ segja þeir Ari og Úlfar, stofnendur Ullari sf.