Lífið

Halla á hátíðarsýningu Attenborough

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Jasper Smith, framleiðandi, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Toby Nowlan, leikstjóri og Björn Skúlason, eiginmaður forseta glæsileg á hátíðarsýningu Hafsins.
Jasper Smith, framleiðandi, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Toby Nowlan, leikstjóri og Björn Skúlason, eiginmaður forseta glæsileg á hátíðarsýningu Hafsins. Karim Iliya/Kogia

Það var margt um manninn í Smárabíói síðastliðinn föstudag á hátíðarsýningu Hafsins, nýjustu myndar Davids Attenborough. Meðal gesta voru forseti Íslands, Halla Tómasdóttir og eiginmaður hennar Björn Skúlason, en vinur þeirra hjóna, enski athafnamaðurinn Jasper Smith sem er eigandi Arksen, er einn af framleiðendum myndarinnar og kom hann sérstaklega til landsins til að taka þátt í viðburðinum.

Nowlan, leikstjóri myndarinnar, var viðstaddur sýninguna og hélt kraftmikið erindi um mikilvæg skilaboð hennar fyrir sýningu. Halla ávarpaði salinn eftir sýninguna, þakkaði aðstandendum fyrir stórkostlegt verk og ítrekaði mikilvægi umhverfisverndar á landi og í hafinu.

Í fréttatilkynningu segir að gestir sýningarinnar hefðu samþykkt eftirfarandi yfirlýsingu með handauppréttingu:

„Við, gestir á hátíðarsýningu Hafsins með David Attenborough, í Smárabíói 9. maí 2025, hvetjum Alþingi og ríkisstjórn landsins til dáða við vernd hafsins og lífríkisins sem í því býr.

Hafið umhverfis Ísland hefur verið grundvöllur tilveru okkar á þessu skeri frá því að land byggðist, og lögum samkvæmt ber okkur að vernda það.

Við styðjum ráðafólk þjóðarinnar í þeirri vegferð að ná markmiði SÞ um verndun að minnsta kosti 30 prósent hafs og lands fyrir árið 2030, sem samþykkt var á COP15 í Montréal árið 2022, og bjóðum ennfremur fram krafta okkar.

Samningurinn um líffræðilega fjölbreytni kveður sérstaklega á um að til að markmiðinu verði náð þurfum við öll að gera það saman og enn fremur að við náum ekki loftslagsmarkmiðum Parísarsamkomulagsins ef við uppfyllum ekki markmiðið um vernd hafsins.

Við þurfum að hlúa að uppeldis- og búsvæðum nytjategunda og allrar fæðikeðju þeirra. Svo sem kórallana og kóralrifin, þaraskógana, neðansjávarfjöllin og -hryggina. Þá megum við engan afslátt eða veita undanþágur frá lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda.

Heilbrigði hafsins er grundvallaratriði fyrir framtíð okkar allra.“

Bakhjarlar þessarar hátíðarsýningar voru Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd, Icelandic Wildlife Fund, Hvalavinir, NASF og Ungir umhverfisverndarsinnar.

Myndin er komin í almennar sýningar í Smárabíói en hér má sjá vel valdar myndir frá hátíðarsýningunni: 

Björn Skúlason, Halla Tómasdóttir og Nowlan brostu breitt.Karim Iliya/Kogia

Henry Alexander siðfræðingur var meðal gesta.Karim Iliya/Kogia

Ingibjörg Þórðardóttir, einn skipuleggjanda kvöldsins.Karim Iliya/Kogia

Listamennirnir og glæsiparið Egill og Guðrún Kolbeinsdóttir skáluðu!Karim Iliya/Kogia

Ingibjörg Þórðardóttir og Halla Tómasdóttir fylgdust einbeittar með.Karim Iliya/Kogia

Katrín Oddsdóttir lögmaður og Lilja Pálmadóttir athafnakona.Karim Iliya/Kogia

Mikill fjöldi fólks var mætt á hátíðarsýninguna.Karim Iliya/Kogia

Listamaðurinn Christoph Matt.Karim Iliya / Kogia

Björk Brynjarsdóttir brosti í bíói.Karim Iliya/Kogia

Sigrún Perla hjá Ungum umhverfissinnum og Toby Nowlan leikstjóri sátt með sýninguna.Karim Iliya/Kogia

Katrín Oddsdóttir lögmaður brosti breitt en hún kom að skipulagi sýningarinnar.Karim Iliya/Kogia

María Rut Kristinsdóttir þingmaður Viðreisnar og Þorgeir sonur hennar voru meðal gesta.Karim Iliya/Kogia

Christoph Matt og Anna Diljá Sigurðardóttir í góðum gír með popp og kók.Karim Iliya/Kogia

Einar Pétur Jónsson og Vigdís Birna Sæmundsdóttir í stuði. Karim Iliya/Kogia

Listamaðurinn Brandur Bryndísarson Karlsson.Karim Iliya/Kogia

Micah Garen, fjölmiðlamaður og heimildamyndagerðarmaður.Karim Iliya/Kogia

Jasper Smith, framleiðandi myndarinnar, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, Toby Nowlan, leikstjóri og Björn Skúlason, eiginmaður forseta. Karim Iliya/Kogia

Sigrún Perla Gísladóttir, frá Ungum umhverfissinnum, stýrði umræðum að sýningu lokinni. Iliya/Kogia

Toby Nowlan, leikstjóri Ocean, hélt kraftmikið erindi um mikilvæg skilaboð myndarinnar fyrir sýningu.Iliya/Kogia

Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar var meðal þátttakenda í umræðum eftir sýningu.Karim Iliya/Kogia

Flottur hópur Ungra umhverfissinna. Karim Iliya/Kogia






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.