Lífið

Þór­hildur greinir frá kyninu

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Þórhildur á von á sínu öðru barni síðla sumars.
Þórhildur á von á sínu öðru barni síðla sumars.

Þórhildur Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Brú Strategy og hlaðvarpsstjórnandi og Hjalti Harðarson, yfirmaður markaðsmála hjá Landsbankanum, eiga von á stelpu.

Frá þessu greinir Þórhildur í færslu á Instagram. Fyrir eiga þau einn dreng, Hilmi sem er sex ára.

„Siglum inn í sumarið með stelpuna okkar,“ skrifar Þórhildur og birtir mynd af sér stórglæsilegri með fallega óléttukúlu.

Þórhildur er annar stjórnanda hlaðvarpsins Eftirmál auk Nadine Guðrúnar Yaghi auk þess að vera framkvæmdastjóri Brú Strategy. Fyrir það var hún fréttamaður hjá Stöð 2 og Rúv. Hjalti er einn stofnenda Kjarnans en starfar nú sem forstöðumaður markaðsmála hjá Landsbankanum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.