Með andlit sem fleiri en bara mæður þeirra geta elskað Tork gaur 23. maí 2025 12:02 James Einar Becker stýrir bílaþáttunum Tork gaur. Í sjöunda þætti Tork gaurs skoðar James Einar Becker KGM Rexton. Hann hefur þetta að segja um bílinn. „
KGM er Suður- Kóreskur bílaframleiðandi sem áður gekk undir nafninu Ssangyong. Farið var í veigamikla endur mörkun vörumerkisins og hefur það skilað sér í vörum sem búa yfir mun meiri fágun og gæðum sem eru á virkilega hagstæðu verði. KGM Rexton hefur stundum verið kallaður Toyota Land Cruiser fátæka mannsins. Ég vil samt frekar hugsa þennan bíl sem Rexton skynsaman mannsins.“ „Þessi tiltekni Rexton er 35“ breyttur og kemur hann með upphækkunar klossum, samlitum brettaköntum, stigbretti, breiðari felgum, 35“ dekkjum og breytingaskoðun. Óbreyttur kostar þessi KGM Rexton Premium 9.790.000 mkr og ef maður bætir 35“ tommu breytingunni við á rétt tæpar þrjár milljónir, þá er maður kominn með sjö manna, upp hækkaðan jeppa með fimm ára ábyrgð á rétt tæplega 13 milljónir. Bíllinn er einnig með einstaklega fallegan prófíl og er eins og að hönnuðir KGM hafi vitað nákvæmlega hvað þeir voru að gera þegar þeir hönnuðu hlutföllin á honum. Þegar búið er að bæta brettaköntunum á hann og stigbrettunum þá er maður kominn með einstaklega vígalegan jeppa." „Gömlu kynslóðirnar af Rexton sem þá gengu undir nafni Ssangyong voru ekki með neitt sérstaklega fallegan framenda. En þessi KGM Rexton er með andlit sem miklu fleiri en bara mæður þeirra geta elskað.“ „Bíllinn kemur með 2,2 lítra, 4 sílendra túrbó dísilvél. Hún afkastar 202 hestöflum og skilar 442 Nm af togi. Og ef settur er dráttarbúnaður á bílinn getur hann dregið 3.5 tonn. Vélin í bílnum stendur á vökvafylltum mótorpúðum. Er það gert svo bíllinn verði eins hljóðlátur og hægt er. Einnig er það gert til þess að minnka titring vélarinnar. Hann er kannski ekki það laus við titring að hægt sé að láta 50 króna smápening standa á röndinni án þess að hann detti. En engu að síður er þetta tækni sem maður finnur frekar í Maybach eða Rolls Royce," segir James Einar. „Staðalbúnaður þessa tiltekna KGM Rexton Premium er ekki mikill og er það eitthvað sem maður fórnar fyrir það góða verð sem bíllinn er á. Bíllinn er ekki með rafmagn eða hita í sætum. Einnig eru sætin gerð úr taui frekar en leðri. Og svo startar maður bílnum með gamaldags lykli sem maður stingur í svissinn og snýr. Ég hef samt afskaplega gaman af svona ofur einföldum bílum þar sem að það þýðir að það eru færri hlutir sem geta bilað." „Hins vegar ef maður færir sig upp í Adventure útgáfuna af KGM Rexton þá fær maður bílin með sjálfstæða fjöðrun, læsanlegu drifi að aftan, hituð og kæld sæti að framan og hituð sæti að aftan. Fari maður svo í Ultimate útgáfuna fær maður stungið nappaleður, lyklalaust aðgengi og allt hitt sem talið var upp á undan. Það er nánast nákvæmlega milljón á milli þessara þriggja útfærslna bílsins." „Íslendingar eru afskaplega mikil hjarðdýr og er það sennilega þess vegna sem að annar hver Íslendingur keyrir um á Land Cruiser. Toyota Land Cruiser er svolítið eins og fótboltaliðið Liverpool. Allir og ömmur þeirra halda með þeim. Á meðan að KGM Rexton er meira eins og fótboltaliðið Brighton & Hove Albion. Virkilega vel spilandi lið á uppleið sem bætir við sig aðdáendum á hverjum degi." Horfa má á þáttinn í spilaranum hér fyrir neðan:
Bílar Tork gaur Mest lesið Féll niður fimmtán metra á Súlum: „Þetta er bara búið, ég átti gott líf“ Lífið „Lífið hefur ekkert alltaf verið auðvelt“ Lífið Bróðurinn grunaði að Hulda væri hálfsystir þeirra Lífið Norðurslóðastjörnu sagt að frumbyggjaskírteini væri „fals“ Lífið Enn reið Tarantino vegna þess sem hann gerði íslenskum konum Lífið Þessar jólagjafir hitta í mark Lífið samstarf Verkefnið kom eins og þruma úr heiðskíru lofti og varð Daníel að þegja í heilt ár Lífið Óttast að Dimma hafi endað í gini tófunnar Lífið 50+: Það má segja Nei við barnapössun Lífið Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Lífið samstarf Fleiri fréttir Þessar jólagjafir hitta í mark Skrímslaævintýri á Álftanesi varð að blómstrandi fjölskyldufyrirtæki Spennandi breytingar í GK Reykjavík – verslunin flutt í Evu Jólagjafir sem gleðja hárið og hjartað Gerður Kristný, Andri Snær og Þórunn Valdimars meðal upplesara í kvöld Myndaveisla: Glæsileg frumsýning Zootropolis 2 í Kringlunni Fortíð og nútíð fléttuð saman í nýrri spennandi unglingasögu Vill að lesendur skemmti sér en verði samt skíthræddir Að lifa er að hlusta á þúsund sögur Slökkviliðin og vinsæll barnabókahöfundur leiða saman hesta sína Kostnaður listarinnar Spennandi unglingabók um samfélag í upplausn, samkennd og heitar tilfinningar Á Hvömmum er lífið allt nema einfalt Kenzen með 5 af topp 20 vörunum á Óskar appinu Fjörðurinn, húsið og leyndarmálin Græjaðu gjafalistann á góðum prís Snjallt pöntunarkerfi á hádegismat sparar vinnu, tíma og kostnað Ný vefverslun Slippfélagsins er paradís fyrir myndlistafólk Höfundar lesa í beinni í kvöld BRASA er nýr og glæsilegur veitingastaður í hjarta Kópavogs Birgitta Haukdal áritaði bækur í Smáralind Mannlega hlið fjármálanna kjörnuð í bókinni Sálfræði peninganna Eru geimverur meðal okkar? Tilbrigði við sannleika Myndaveisla: Klikkuð stemning í Eldhúspartýi FM957 Partyland fagnar tveggja ára afmæli með 20% afslætti alla vikuna Fyrsti íslenskumælandi bóndabærinn slær í gegn Einar Már, Sunna Dís og Sigrún Eldjárn lesa upp í kvöld Knútur vann graskerskeppni FM957 og Fjarðarkaupa Fegurðin og fjölbreytnin í krulluðu hári Sjá meira