Hættuleg ofnotkun svefnlyfja á Íslandi Drífa Sigfúsdóttir skrifar 21. maí 2025 11:30 Íslendingar notuðu rúmlega 6 sinnum meira af algengustu svefnlyfjum (svo kölluðum z-lyfjum, betur þekkt undir vöruheitunum Stilnoct®, Imovane® og Imomed®) en Danir árið 2020. Þetta sama ár fengu 10,4% þjóðarinnar lyfseðil fyrir þessi lyf samkvæmt norrænni samanburðarrannsókn. Notkuninn er mest áberandi í hópi eldri borgara og því mikilvægt að vekja athygli á afleiðingunum af þessari notkun. Átakið Sofðuvel Undir forystu Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessors í samstarfi við LEB og fleiri aðila var farið í átakið Sofðuvel. Því er ætlað að gera fólk betur meðvitað um skaðsemi svefnlyfja og hverning hægt verði að öðlast bættan svefn án þeirra. Gefnir hafa verið út tveir bæklingar nokkuð ítarlegir. Í öðrum þeirra er að finna leiðbeiningar til að hjálpa fólki minnka notkun svefnlyfja og/eða hætta notkun þeirra. Í hinum er frætt um aðferðir til að bæta svefninn án svefnlyfja. Þá má finna upplýsingarnar á síðunni: www.sofduvel.is. Í átakinu bendum við sérstaklega á hugræna atferlismeðferð við svefnvanda (HAM-S) sem hefur hjálpað mörgum til að sofa betur. Aðferðin er gagnreynd og örugg meðferð við svefnvanda og árangur af 4-8 vikna meðferð getur haldist til langtíma. Aðferðin er hjálpleg leið til að bæta svefn um leið og dregið er úr eða hætt notkun svefnlyfja. Bæklingana má finna á heilsugæslustöðvum og í apótekum. Svefnlyf geta valdið alvarlegum hættum fyrir þá sem taka þau og áhættan eykst með aldrinum. Það er hægt að hætta á svefnlyfjum og jafnframt sofa vel á nóttunni. Markmið Sofðuvel er að hjálpa fólki sem glímir við svefnvanda að ná aftur að sofa vel og styðja þau í að draga úr og hætta svefnlyfjanotkun á öruggan hátt. Að meðaltali sofnar fólk 7 mínútum fyrr með aðstoð algengustu svefnlyfja en án þeirra. Þau gagnast yfirleitt einungis í 4 vikur og ætti helst ekki, að nota lengur en í 2 vikur. Minnis- og önnur vitræn skerðing Svefnlyf hafa slæm áhrif á minnið. Þau valda erfiðleikum við að læra nýja hluti eða muna eitthvað sem þú átt að vita. Geta þín til að hugsa hratt og taka ákvarðanir minnkar vegna þeirra. Rannsóknir sýna tengsl milli svefnlyfjanotkunar og heilabilunar og skertrar getu til að stjórna ökutækjum. Óstöðugleiki og meiðsli vegna byltu Svefnlyf eru ein helsta orsök meiðsla eftir byltur hjá eldra fólki. Dæmi um slík er: mjaðmabrot, brot á úlnlið, hrygg, kinnbeini o.fl., höfuðáverkar en einnig dauðsföll. Þeir sem brotna lenda iðulega í því að þurfa að flytja af heimili sínu vegna afleiðinganna. Ávanabinding og fráhvarfseinkenni Algengt er að upplifa svefnerfiðleika þegar hætt er að taka svefnlyf eða slævandi efni. Svefnleysi er oft helsta einkenni fráhvarfa frá svefnlyfjum. Þess vegna trúir fólk því ranglega að það þurfi enn á svefnlyfinu að halda. Algengustu svefnlyfin eru ávanabindandi og valda margvíslegum fráhvarfseinkennum þ.m.t. svefnleysi, kvíða, pirring, ógleði, jafnvægisleysi, höfuðverk, svitamyndun, titring/skjálfta, erfiðleika með einbeitingu, næmni fyrir hávaða og ljósi, hjartsláttarónotum, rugling/ofskynjunum, þunglyndi og krampa. Hættur af notkun svefnlyfja með öðrum lyfjum Það eru hættur vegna milliverkana lyfja og ofskömmtunar og því best að fá fagfólk til að fara yfir lyf sem tekin eru. Svefnlyf valda vímu þegar þau eru notuð með áfengi og öðrum slævandi lyfjum. Þau tengjast 2 af hverjum 3 dauðsföllum vegna ofskömtunar á ópíóðum. Skelfilegir fylgikvillar Fólk sem fær flensu (eða aðrar veirusýkingar í öndunarfærum) á meðan það tekur svefnlyf er í mjög mikilli hættu á alvarlegum fylgikvillum s.s. 4 sinnum meiri hætta á lungnabólgu og hætta á dauðsfalli vegna flensu er 20 sinnum hærri! Skert geta til að stjórna ökutækjum Ekkert okkar kærir sig um að valda umferðaóhappi eða slysi en það er alvarlegt ef við ökum undir áhrifum svefnlyfja eða annarra slævandi lyfja. fólk sem ekur morguninn eftir að hafa tekið zópíklón (Imovane) hefur jafn skerta aksturshæfni og manneskja með áfengismagn í blóði yfir löglegum mörkum fólk sem tekur svefnlyf er 4-6 sinnum líklegra að lenda í alvarlegu umferðaslysi 1 af hverjum 9 ökumönnum sem lenda í banaslysum hefur nýlega tekið svefnlyf Aðrar hættur Við vitum vel að fólk með þynnku á ekki að aka bíl. Því þurfum við að vera vakandi yfir vægu þynnkueinkenni af svefnlyfi sem getur reynst alvarlegt. Skert hugsun og hægari viðbrögð geta leitt til gleymsku, félagslegrar einangrunar, jafnvægisleysis og ótta við að fara út. Ef svefnlyfin eru tekin meðöðrum slævandi lyfjum er hætta á skertri öndun. Þá eru svefnlyf hættuleg ef þú ert með kæfisvefn á háu stigi. Einnig má nefna minnis- eða meðvitundarleysi og svefngöngu. Betri lífsgæði án svefnlyfja Við vitum að með aldrinum þá verðum við óstöðugri og þá skapast auknar líkur á byltum sem geta haft í för með sér beinbrot. Afleiðingarnar geta leitt til þess að við getum ekki lengur búið í eigin húsnæði og að við þurfum á aukinni aðstoð að halda. Ekkert okkar kærir sig um það. Því er mikilvægt að draga úr áhættu með líkamsþjálfum og ef svefnlyf eru notuð þá þarf að draga úr og/eða hætta notkun þeirra. Við sem unnum að skipulagningu átaksins á vegum LEB hvetjum fólk eindregið til að verða sér úti um bæklingana tvo frá Sofðuvel og lesa þá vandlega ef viðkomandi er að taka inn svefnlyf. Þar og á vefsíðu átaksins (www.sofduvel.is) eru að finna ítarlegar leiðbeiningar þannig að hver og einn geti fundið sína leið. Höfundur er fyrrverandi varaformaður LEB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lyf Eldri borgarar Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar