Undrabarnið í aðalhlutverki í sýningu Spánverja Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2025 20:55 Lamine Yamal fagnar öðru marka sinna með liðsfélögum sínum í spænska landsliðinu. Getty/Alexander Hassenstein Spánverjar tryggðu sér í kvöld sæti í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar í fótbolta eftir 5-4 sigur á Frökkum í undanúrslitaleik í Stuttgart. Spánn mætir nágrönnum sínum í Portúgal í úrslitaleiknum á Allianz Arena í München á sunnudaginn kemur. Spænska landsliðið vann Þjóðadeildina 2023, Evrópumótið í fyrra og getur því unnið titil þriðja árið í röð. Leikurinn í kvöld var frábær skemmtun en á meðan Frakkar fóru illa með færin þá sýndu Spánverjar þeim hvernig á að nýta færin þín. Frakkar skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og setti smá spennu í þetta í lokin en þeir litu afar illa út 5-1 undir. Undrabarnið Lamine Yamal var að sjálfsögðu í aðalhlutverki en hann skoraði tvö mörk í leiknum, það fyrra úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur. Spánverjar skoruðu með nokkra mínútna millibili í báðum hálfleiknum og þá var eins og Frakkar misstu hausinn. Þeim tókst loksins að nýta færin undir lokin en þá voru þeir komnir langt undir og vonin nánast úti. Spænska liðið spilar leiftrandi fótbolta og með snilling eins og Yamal innanborðs þá er alltaf von á einhverjum mögnuðu þegar þeir vinna boltann. Nico Williams skoraði fyrsta marið á 22. mínútu og þremur mínútum síðar kom Mikel Merino spænska liðinu í 2-0. Fram að þessum kafla voru Frakkarnir búnir að vera betri. Mikel Oyarzabal lagði upp bæði mörkin en Yamal átti líka stóran þátt í fyrsta markinu. Spánverjar skoruðu næstum því þriðja markið undir lok hálfleiksins en frábært mark miðvarðarins unga Dean Huijsen var dæmt af í VAR vegna rangstöðu. Spænska liðið var 2-0 yfir í hálfleik en staðan hefði auðveldlega geta verið 4-3. Spánverjar gerðu út um leikinn með tveimur mörkum á tveimur mínútum í seinni hálfleik. Lamine Yamal skoraði það fyrra á 54. mínútu úr víti sem hann fiskaði sjálfur en mínútu síðar bætti Pedro Gonzalez við marki. Kylian Mbappe fiskaði víti og lagaði stöðuna stuttu síðar en undrabarnið var ekki búinn að segja sitt síðasta. Aftur náðu Spánverjar frábærri sókn sem endaði með að Pedro Porro kom boltanum á Yamal sem slapp inn í teiginn og kom boltanum framhjá Mike Maignan í marki Frakka. Frakkar náðu að laga stöðuna með þremur mörkum undir lokin. Veramaðurinn Rayan Cherki fékk boltann frá Mbappe og skoraði fyrst með frábæru langskoti. Sjálfsmark hjá Dani Vivian kom muninum niður í tvö mörk og Frakkarnir hættu því aldrei. Kolo Muani skallaði boltann í markið í uppbótartíma eftir fyrirgjöf frá Rayan Cherk. Níunda mark leiksins. Frakkarnir höfðu þó ekki tíma til að jafna metin en spænska liðið var nánast búið að hleypa þeim inn í leikinn. Lokatölurnar 5-4 í frábærum leik. Þjóðadeild karla í fótbolta