„Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 7. júní 2025 10:01 Elmar Gunnarsson er framkvæmdastjóri tveggja félaga: Vettvangs og Apparatus. Hann segist þó aldrei hafa verið hrifinn af framkvæmdastjóratitlinum. Finnst hann of formlegur. Vísir/Anton Brink Tíu mánaða dóttirin sér um að vekja foreldrana heima hjá dellukallinum Elmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra félaganna Vettvangur og Apparatus. Eins og margir þekkja, reyna foreldrarnir þá að skipta á milli sín fyrstu vaktinni svo hitt geti kúrað aðeins lengur.
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana?„Mennska vekjaraklukkan okkar hún Þórdís, tíu mánaða, sér þessa dagana um að ræsa og það er um sexleytið. Við foreldrarnir reynum þó að skipta með okkur dögunum á fyrstu vaktinni.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?„Allir morgnar byrja á því að borða stóra skál af tröllahöfrum með kanil á og stórum bolla af pressukaffi. Næst er það svo morgunsturta til að stilla sig af áður en hlaupið er af stað í daglegt amstur. Ef vel liggur á mér og tími leyfir þá fer ég í bað. Í framhaldi af því eru stóru stelpurnar okkar, Svandís 11 ára og Ragnheiður 13 ára, kvaddar áður en þær halda af stað inn í sinn dag.“ Á skalanum 0-10 hversu mikill dellu-kall ertu? „10 af 10. Við notum öll tækifæri til að ferðast og skoða heiminn. Það fer ómældur tími í að skipuleggja og plana þær ferðir svo að allt gangi vel fyrir sig, sérstaklega núna þegar við erum komin með lítinn ferðafélaga. Ég bý svo vel að konan mín er flugfreyja, þanng að við getum flogið flest allt okkar mjög ódýrt. Við höfum svo verið að nota HomeExchange til að geta ferðast ennþá meira með enn minni tilkostnaði. Þetta er ákveðið listform. Hreyfing spilar svo mjög stóra rullu í mínu lífi. Mér finnst ég aldrei heill né hálfur maður nema ég nái að hreyfa mig flesta daga. Ég hef verið að æfa í CrossFit Reykjavík seinustu tíu ár eða svo og get ekki mælt nægilega mikið með.“ Elmar notar dagatalið mikið til að halda utan um skipulagið, notes fyrir sínar eigin pælingar en síðan excel í alls kyns rekstrartengdum verkefnum. Elmar segist þó ekki vera excel-kall. Frekar að hann upplifi sig sem frumkvöðul í hjartanu.Vísir/Anton Brink Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? „Sem framkvæmdastjóri tveggja hugbúnaðarfyrirtækja eru verkefnin fjölbreytt. Það er óhætt að segja að enginn dagur sé eins. Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri. Mér finnst hann of formlegur en ég reyni að vera það sem ég þarf að vera hverju sinni. Hjá Vettvangi og Apparatus er unnið að fjölbreyttum verkefnum með mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins en okkar þekktustu samstarfsaðilar eru sjálfsagt Lyfja og Dominos sem hafa unnið til fjöldann allra af verðlaunum fyrir sínar lausnir. Meðal þeirra verkefna sem við erum að þróa í dag eru lausnir fyrir KSÍ, Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og Nespresso, til að nefna fáein. Utan vinnu og ferðalaga snýst lífið svo auðvitað um fjölskylduna.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? Ég nota dagatalið gríðarlega mikið við skipulagningu en þegar það kemur að því að vinna úr eigin þankagangi er það einfaldleikinn sem ræður og ég nota notes. Excel spilar svo auðvitað stórt hlutverk í daglegum störfum í öllu sem viðkemur rekstri. Ég myndi samt ekki segja að ástríða mín liggi í Excel skjölunum. Ég er fremur mikill frumkvöðull í hjarta og reyni að taka þátt í verkefnum eins og ég get - og þá sérstaklega snemma í verkefnaferlunum, þegar vörurnar eru í skilgreiningar- og hönnunarfasa. Að hanna og skilgreina skipulag, ferla og flæði lausna áður en forritararnir taka við boltanum.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Við reynum að vera skynsöm í þessu og leggjast upp í rúm ekki mikið seinna en klukkan ellefu - oftar en ekki með Veru Illugadóttir í eyrunum.“
Kaffispjallið Tengdar fréttir „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Það er engin lognmolla á morgnana heima hjá Elísu Dögg Moraitis Björnsdóttur, framkvæmdastjóra TVG-Zimsen. Enda mikið um að vera að koma öllum í skóla og leikskóla. Elísa gerir þó oft grín að sjálfri sér því hún er svo skipulögð að nánast allt fer í excel. 31. maí 2025 10:02 Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, er ekki góður söngvari. Að minnsta kosti hryllir fjölskyldunni við þegar hann fær lag á heilann og syngur það hástöfum. Blessunarlega erfðu börnin ekki þennan skort á sönghæfileikunum. 10. maí 2025 10:04 Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Rósa Dögg Ægisdóttir, framkvæmdastjóri Reon, fer alltof seint að sofa og er sannfærð um að besti svefninn sinn séu þær níu mínútur sem hún nær á milli snúsa. Rósa segir það visst áhyggjuefni hvernig þriggja ára sonurinn er hættur að vekja foreldrana á skikkanlegum tíma. 24. maí 2025 10:02 „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Ólafur Karl Sigurðsson, aðstoðarforstjóri KAPP og framkvæmdastjóri KAPP Skagans ehf, hefur aldrei þroskast í að drekka kaffi, en drekkur hins vegar það sem hann kallar unglingakaffi. Ólafur segir eiginkonuna eiga heiðurinn af því hversu vel gengur heima fyrir. 3. maí 2025 10:01 Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Karitas Ósk Harðardóttir, viðburðarstjóri Innovation Week og einn eigenda brúðkaupsþjónustunnar Stikkfrí, varð eiginlega sjálf hissa á því þegar hún fékk æði fyrir strangheiðarlegum karamellu bakaríssnúðum. Í dag er hún helst með æði fyrir Pilates með vinkonunum. 17. maí 2025 10:01 Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Klara á Kanarí: „Fólk kom með ferðatöskur af saltfiski og seldi“ Atvinnulíf Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Segir mun á launum stjórnarmanna sláandi Íslenskir kvenstjórnendur: Bjartsýnar en með áhyggjur af stríði Lausnamiðuð ferilskrá og að þora „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Stefna að því að opna deiliþjónustu bílferða fljótlega Hringrásin: „Ég er með blæti fyrir gömlu timbri“ „Þetta er ekki mjög töff en ég get ekki að þessu gert“ Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Láttu rétta fólkið taka eftir þér í vinnunni Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á Stjórnun þarf ekki bara að breytast heldur „gerbreytast” „Við getum fengið Boga Ágústs til að gera og segja hvað sem er“ Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Að nýta kvíðann sem styrkleika og okkur til framdráttar „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Hrósæfingar fyrir vinnustaði, gryfjur og góð ráð Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Að segja upp án þess að brenna brýr Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best „Gróskuhugarfarið hjálpar okkur líka að viðurkenna mistök” Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Sjá meira
„Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Það er engin lognmolla á morgnana heima hjá Elísu Dögg Moraitis Björnsdóttur, framkvæmdastjóra TVG-Zimsen. Enda mikið um að vera að koma öllum í skóla og leikskóla. Elísa gerir þó oft grín að sjálfri sér því hún er svo skipulögð að nánast allt fer í excel. 31. maí 2025 10:02
Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, er ekki góður söngvari. Að minnsta kosti hryllir fjölskyldunni við þegar hann fær lag á heilann og syngur það hástöfum. Blessunarlega erfðu börnin ekki þennan skort á sönghæfileikunum. 10. maí 2025 10:04
Besti svefninn níu mínúturnar á milli snúsa Rósa Dögg Ægisdóttir, framkvæmdastjóri Reon, fer alltof seint að sofa og er sannfærð um að besti svefninn sinn séu þær níu mínútur sem hún nær á milli snúsa. Rósa segir það visst áhyggjuefni hvernig þriggja ára sonurinn er hættur að vekja foreldrana á skikkanlegum tíma. 24. maí 2025 10:02
„Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Ólafur Karl Sigurðsson, aðstoðarforstjóri KAPP og framkvæmdastjóri KAPP Skagans ehf, hefur aldrei þroskast í að drekka kaffi, en drekkur hins vegar það sem hann kallar unglingakaffi. Ólafur segir eiginkonuna eiga heiðurinn af því hversu vel gengur heima fyrir. 3. maí 2025 10:01
Að sofna yfir sjónvarpinu á kvöldin telst ekki með Karitas Ósk Harðardóttir, viðburðarstjóri Innovation Week og einn eigenda brúðkaupsþjónustunnar Stikkfrí, varð eiginlega sjálf hissa á því þegar hún fékk æði fyrir strangheiðarlegum karamellu bakaríssnúðum. Í dag er hún helst með æði fyrir Pilates með vinkonunum. 17. maí 2025 10:01