Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Rakel Sveinsdóttir skrifar 28. september 2026 07:02 Í tilefni 15 ára afmælis Festu á miðvikudag tökum við hressilegt spjall við Finn Sveinsson, einn af upphafsmönnum Festu og fyrrum formanni og Elvu Rakel Jónsdóttur framkvæmastýru. Festa byrjaði með sex aðildarfélögum árið 2011 en nú telja þau um 200. Vísir/Anton Brink Það verður að sjálfsögðu blásið í alla lúðra á miðvikudag. Því þann dag verður Festa, miðstöð um sjálfbærni, 15 ára. Félagið sem byrjaði með sex aðildarfélögum telur þau nú um 200. „
Það var ráðist á mig með kjafti og klóm fyrir að kalla þetta samfélagsábyrgð fyrirtækja. Sumir sögðu: Við borgum svona mikið í skatt og við styrktum svona mikið hingað og þangað. Það voru aðilar sem vildu banna mér að nota orðið ábyrgð,“ segir Finnur Sveinsson, einn af upphafsmönnum Festu. „Þá sagði ég bara: Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt í starfseminni ykkar,“ bætir Finnur við. Samfélagsleg ábyrgð þýddi í hugum mjög margra: „Já, við erum að styrkja fótboltaliðið í bænum og greiðum Landsbjörgu fyrir að hreinsa fjöruna.‘“ Það var ofsalega erfitt að komast upp úr þessum hjólförum,“ segir Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu. Því já; í tilefni afmælisins er tilvalið að rifja upp upphafið og hvað hefur eiginlega breyst síðan þá. Það gerum við með snaggaralegu og skemmtilegu spjalli við Finn og Elvu Rakel – og lítum inn á milli á eldri fréttir Vísis tengdar Festu. Óþolandi rusl-umræða Að tala um snaggaralegt spjall er svo sannarlega ekki úr lausu lofti gripið. Því Finnur, nú framkvæmdastjóri sjálfbærni hjá HS Orku, talar hreint út um hlutina. Segir þá á góðri íslensku eins og sagt er. Það sem mér finnst algjörlega óþolandi er þessi rusl-og-drasl umræða. Þú bjargar ekki heiminum á því að henda sælgætisbréfinu þarna eða mjólkurfernunni. Þetta var ekki á dýptina, getum við sagt,“ segir Finnur kíminn um ákveðið tímabil í umræðunni hér heima. Finnur er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í umhverfisfræði frá Gautaborgarháskóla. Finnur byggði fyrsta Svansvottaða íbúðarhúsið á landinu en áður en hann hóf störf hjá HS Orku starfaði hann að umhverfismálum hjá Alcoa Fjarðaáli og þar áður sem sérfræðingur hjá Landsbankanum í samfélagsábyrgð. Til Landsbankans réði hann sig 2011 og segir Elva Rakel ráðninguna hafa markað tímamót. „Umhverfisfræðin voru frekar nýtt fag á Íslandi og á meðal vina minna og kunningja fór þetta eins og höggbylgja í gegnum sjálfbærnisamfélagið. Fólk ræddi þetta sín á milli í forundran: ‚,Ertu búin að sjá að það er búið að búa til sjálfbærnistöðu hjá Landsbankanum og Finnur kominn í hana?!“ Þetta var bara ótrúlega stórt móment.“ Elva Rakel er sjálf með meistaragráðu í umhverfis- og sjálfbærnivísindum frá Lundarháskóla í Svíþjóð, þaðan útskrifaðist hún 2003. Elva Rakel hefur stýrt Festu frá 2023 en starfaði þar áður hjá Umhverfisstofnun. Um upphafsárin segir hún: „Það var ansi þreytt á þessum árum að allir voru alltaf að spyrja: ‚Hvar fæ ég góðar flokkunartunnur?‘ Maður leiddi bara talið að einhverju öðru. En þetta var víst þroskaskref sem við urðum að taka.“ Þegar Festa hóf starfsemi vildu sumir banna Finni að nota orðið ábyrgð í umræðunni. Finnur og Elva Rakel segja fyrirtæki lengi hafa verið föst í því að samfélagsleg ábyrgð fælist í því að styrkja fótboltalið og önnur góð mál. Of stór biti var í fyrstu að ræða um hvað sjálfbærni fælist í raun.Vísir/Anton Brink Sjálfbærni í stað samfélagslegrar ábyrgðar Finnur var varaformaður Festu frá stofnun 2011 til ársins 2015 og tók svo við sem formaður 2015–2017. Fyrsti framkvæmdastjóri Festu var Regína Ásvaldsdóttir. Árið 2013 tók Ketill Berg Magnússon við stjórnartaumunum og árið 2019 Hrund Gunnsteinsdóttir. Á vefsíðu Festu má finna ítarlegt yfirlit yfir sögu félagsins í máli og myndum. Við ætlum því ekkert að fara yfir söguna lið fyrir lið heldur frekar að taka spjallið á óformlegri nótum. Til dæmis um þá miklu áherslubreytingu sem átti sér stað þegar hætt var að nota hugtakið samfélagsleg ábyrgð og orðið sjálfbærni tók formlega yfir. „Fyrirtækin voru enn þá að setja sjálfbærniþætti undir samfélagsábyrgð í ársskýrslum,“ segir Elva Rakel og vísar til þess þegar margir voru fastir í að líta á þetta sem hálfgerðar „góðverkagreinar“. „Á sama tíma varð mikil áhersla, sérstaklega á alþjóðavettvangi, á að líta á sjálfbærni í miklu víðara samhengi og horfa á kerfislæga þætti. Það var ekki lengur nóg að skoða bara hvað eitt fyrirtæki mengar eða notar mikið af hráefni, heldur hver heildaráhættan í kerfinu er og hvaða afleiðingar hún hefur.“ Finnur segir Festa ekki hafa sprottið upp sem afleiðingu bankahruns eða nokkurs konar PR-plástur. „Nei, nei, allir sem fóru í þetta gerðu það af brennandi áhuga á sjálfbærni. Við kölluðum þetta samfélagsábyrgð fyrirtækja á þessum tíma, en en einfaldlega vegna þess að við sáum að innleiðing samfélagsábyrgðar væri góð fyrir bissness.“ Sjálfbærni hafi nefnilega alls ekki verið neitt ný af nálinni: „Ég var í markaðsdeild Íslandsbanka 1991 til 1995 og fer svo út í nám í umhverfisfræði. Ég var því kominn á kaf í þetta strax 1995 – löngu fyrir hrun. Við trúðum því strax þá að þetta væri góður bisness,“ segir Finnur og bætir við: En sjálfbærni er ótrúlega flókið málefni. Við tókum meðvitaða ákvörðun um að flækja hlutina ekki of mikið og byrja bara á umhverfismálunum. Það er oft hreinasta kúnst að koma flóknum hlutum frá sér á einfaldan hátt.“ Elva Rakel tekur undir og segir að fólk hafi aldrei getað melt heildarmyndina í einum bita strax í byrjun: „Þetta rifjar upp hvað við vorum órafjarri þessu öllu saman. Fyrstu árin voru fæstir komnir með skýra innkaupaferla, sjálfbærnistefnur eða einhverja sýn á kjarnastarfsemina.“ Bakslagið Sumir hafa talað um ákveðið bakslag í málaflokknum á síðustu misserum. Á lesendatölum Atvinnulífsins á Vísi má til dæmis glögglega sjá að sjálfbærni er efni sem þarf verulega „hjálp“ – það smellir enginn á það af sjálfu sér nema vinkillinn sé beittur. Finnur og Elva Rakel kveikja bæði á því hvað um ræðir. „Þetta er kannski pínu bomban sem ég ætti að sleppa, en ég held að við sem höfum unnið í sjálfbærni höfum gengið of langt á tímabili. Þetta varð of mikið reglugerðarbákn og of lítil praktík. Með því spiluðum við upp í hendurnar á þeim sem vilja bara afskrifa þetta og segja: ‚Sjáðu, þetta skiptir engu máli, af hverju erum við að þessu?‘ Þarna liggur dýrmætur lærdómur. Við verðum að vera praktísk og taka réttu skrefin, annars töpum við fólki,“ segir Finnur. Elva Rakel segir Evrópusambandið og stjórnvöld hafi tapað kynningar- og traustslagnum gagnvart atvinnulífinu með því að þröngva fram of flóknu regluverki of hratt. Það þyki henni þó miður. „Því í grunninn snerist þetta um að búa til samanburðarhæfni milli fyrirtækja.“ Bakslagið birtist líka í alþjóðlegum fréttum sem sumir grípa í. Ekki síst með forystumenn stærri ríkja eins og Trump. Hverju skiptir hvað við gerum þegar stór lönd eins og Bandaríkin eru ekki að gera neitt? Finnur hristir hausinn: Það á enginn að vera ‚stikkfrí‘ í kerfinu. Ég verð að gera það sem ég get. Margir segja: „Ég get ekkert gert, stóru fyrirtækin eiga að sjá um þetta“- en ég get gert heilan helling. Og þótt Trump vilji ekki gera neitt veitir það mér enga afsökun til að hætta. Leyfum honum og öðrum að gera hvað sem þeir vilja, en ég held mínum kúrs.“ Elva Rakel hristir líka hausinn. „Við heyrum þetta stanslaust: ‚Hvað með öll stóru löndin? Hvað með Bandaríkin, þau gera ekki neitt og eru mikilvægasti markaðurinn okkar?‘ Þetta er bara alls ekki rétt, Bandaríkin eru gríðarlega fjölbreytt. Ríki eins og Kalifornía gera til dæmis kröfur til jafns við Evrópusambandið þegar kemur að framleiðslu og sölu á vörum. Það sem Trump segir endurspeglar alls ekki allan veruleikann.“ Finnur og Elva Rakel hrista hausinn þegar talið berst að efasemdum um að það skipti svo miklu hvað gert sé á Íslandi þegar stórar þjóðir geri lítið sem ekkert. Það hvernig til dæmis Trump hegði sér, gefi engum öðrum afsökun til að vera stikkfrí. Jörðin er lokað kerfi, hnöttur og ekkert annað val en að gera veröldina sjálfbærari.Vísir/Anton Brink Lokaorðin Afmælisviðburður Festu hefst klukkan 14.30 í Tónabíói á miðvikudag. Þar verður rýnt í stöðuna, rifjað upp og svarað stóru spurningunni: Hvað gerðum við rétt? Og svo auðvitað slúttað með alvöru partíi. Enda má búast við fjölmenni þar sem aðildarfélög telja nú um tvö hundruð talsins. „Við erum samt enginn úttektaraðili og veitum enga vottun. Að vera í Festu segir ekkert um hvernig fyrirtækið er heldur frekar hvert fyrirtækið stefnir. Við erum með mörg mjög græn fyrirtæki, en við erum líka með brún og grá fyrirtæki sem eru stórmengendur hér á landi,“ segir Elva Rakel. Og þannig hefur það í raun verið frá fyrsta degi, en stofnaðilarnir sex voru Íslandsbanki, Landsbankinn, Landsvirkjun, Össur, Síminn og Rio Tinto Alcan í Straumsvík. Bæði Finnur og Elva Rakel líta stolt yfir farinn veg. Ekki bara vegna þess hve aðildarfélögunum hefur fjölgað mikið, heldur hversu sjálfsagður hlutur sjálfbærni er orðin í daglegum rekstri. „Þegar ég kláraði námið 1998 skildi enginn hvað ég var að tala um.Ég hefði alveg eins getað verið flokkaður sem ruslakarl hjá Sorpu, þannig var viðhorfið,“ segir Finnur og útskýrir að þegar hann fluttist aftur til Íslands 2007 var staðan enn þannig að skilningurinn var almennt lítill. Nú er öldin önnur. Flest fyrirtæki huga að sjálfbærni með einum eða öðrum hætti. Og Elva Rakel minnir á að Ísland sé svo sannarlega ekki stikkfrí: „Þú getur alveg klippt stór ríki niður í 400 þúsund manna einingar – eiga þær þá allar að vera stikkfrí? Það eru 160 borgir með undir hálfa milljón íbúa, eiga þær allar að sitja með hendur í skauti? Heimurinn er lokað kerfi og við erum að finna beinar afleiðingar loftslagsbreytinga. Þeir sem horfa á veruleikann af raunsæi og leggja langtímaplön eru að tryggja sér risastórt samkeppnisforskot gagnvart þeim sem stinga hausnum í sandinn.“ Finnur kveður með laufléttri en hnitmiðaðri tilvitnun í Mahatma Gandhi, sem hann segir eiga einkar vel við ferðalagið: Fyrst hunsa þeir þig, svo hlæja þeir að þér, svo berjast þeir gegn þér, og svo vinnur þú. Núna eru menn á fleygiferð að berjast gegn þessari ógn sem er að birtast – sem þýðir einfaldlega að við erum alveg við það að vinna.“ Hér að neðan má sjá nokkur viðtöl tengd Festu síðustu árin.
Sjálfbærni Tengdar fréttir „Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Íslendingar eru eflaust að flytja meira út af þekkingu og reynslu í grænum lausnum en marga grunar um. Það er liður í því að styðja við vöxt íslenskra fyrirtækja erlendis, auka útflutning og efla samkeppnishæfni þjóðarinnar. 28. janúar 2026 07:00 Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Það er mjög gaman að upplifa ástríðu Benedek Regoczi fyrir hafið en Benedek er verkefnastjóri nýsköpunar hjá Sjávarklasanum. 29. janúar 2026 07:00 „Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ „Það sem mér finnst áhugaverðast þegar ég horfi til baka eru tækifærin sem liggja í þessu. Advania er til dæmis að kynna nýja lausn sem gerir fyrirtækjum kleift að halda utan um umhverfisáhrif með því að nýta gögn úr rafrænum reikningum. Lausnin auðveldar ferlið og þá nýtist það eins og mælitæki á árangurinn,“ segir Þóra Rut Jónsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni og umbóta hjá Advania á Íslandi. 31. janúar 2025 07:01 „Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ „Mín ráðlegging væri alltaf sú að fyrirtæki reyni að draga úr öllu því sem það getur gert sjálft áður en það fer að kaupa kolefnisjöfnun til að jafna út bókhaldið. Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt,“ segir Stefanía María Kristinsdóttir, sérfræðingur á framleiðslusviði hjá Nóa Síríus. 30. janúar 2025 07:02 Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki „Vissulega nær reglugerðin aðeins til stærri fyrirtækja, með 250 manns eða fleiri og smærri félög tengd almannahagsmunum. Hugmyndafræðin nær hins vegar til allra fyrirtækja, sem þýðir að fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki munu breyttar leikreglur líka hafa áhrif,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri hjá Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans sem hefst í Opna Háskólanum, Háskóla Reykjavík í haust. 26. júní 2024 07:00 Ofuráhersla á umhverfismálin þegar sjálfbærnin snýst í raun um fólk „Oft leggjum við ofur áherslu á umhverfisvernd þegar við ræðum sjálfbærni. Loftslagsváin er vissulega aðkallandi og nauðsynlegt að fyrirtæki minnki kolefnisfótspor sitt. En í grunninn snýst sjálfbærni í um fólk,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans í Opna háskólanum. 26. júlí 2024 07:00 Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því „Það eru mörg fyrirtæki að gera geggjaða hluti nú þegar, án þess endilega að átta sig á því að margt af því telst nú þegar til sjálfbærninnar,“ segir Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu og gestgjafi í Sjálfbærniskólanum sem hefst í haust í Opna háskólanum, Háskóla Reykjavíkur. 27. júní 2024 07:00 Sjálfbærniskýrslan 2023: Verðlaunin staðfesta hvað Marel er að gera í sjálfbærnimálum „Við erum mjög hreykin af þessum verðlaunum sem staðfesta hvað við erum að gera í sjálfbærnimálum. Það hefur líka sýnt sig að það er leitni á milli þess að standa sig vel í sjálfbærnimálum og góðs reksturs,“ segir Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel og formaður Nordic CEOs for a Sustainable Future, en rétt í þessu var tilkynnt að Marel er verðlaunahafi Sjálfbærniskýrslu ársins 2023. 8. júní 2023 13:00 „Ég hef óbilandi trú á komandi kynslóðum“ „Þetta er bara áhættustýring 101“ segir Ásthildur Otharsdóttir meðal annars um hvers vegna fjármagn á að stuðla að sjálfbærri framtíð. 27. janúar 2022 07:00 Fimm sinnum fleiri fyrirtæki þurfa senn að upplýsa um sjálfbærni rekstursins „Það er nokkuð yfirgripsmikið verk að meta áhrifin til hlítar,“ segir Tómas Njáll Möller formaður Festu, aðspurður um hvaða áhrif breytingar á lögum og upplýsingagjöf um sjálfbæran rekstur munu hafa á fyrirtæki á Íslandi. 26. janúar 2022 07:01 Mikilvægt að tryggja að í upplýsingagjöf fyrirtækja séu engar hálfsagðar sögur „Grænþvottur á sér stað þegar fyrirtæki setur fram rangar eða villandi upplýsingar um það sem þau eru að gera í umhverfismálum. Þetta er ekkert alltaf gert viljandi. En það sem gerist þegar fyrirtæki eru uppvís að grænþvotti er að það getur skemmt út frá sér og dregið úr tiltrú fólks á umhverfismálin,“ segir Birgitta Steingrímsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. 8. desember 2022 08:44 Grænþvottur: Allir þurfa að vera fullvissir um að loforð standist Grænþvottur – Er allt vænt sem vel er grænt? er yfirskrift fundar sem IcelandSIF stendur fyrir næstkomandi mánudag, en IcelandSIF eru samtök fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, tryggingafélaga og aukaaðila sem hefur það hlutverk að efla þekkingu félagsaðila á aðferðarfræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. 18. nóvember 2022 07:01 Selja kolefniseiningu sem tryggir stúlkum í Sambíu menntun og samsvarar einu tonni af CO2 Það kann að hljóma undarlega að með því að kaupa kolefniseiningar af fyrirtækinu SoGreen, ná fyrirtæki að slá tvær flugur í einu höggi: Að kolefnisjafna starfsemina sína annars vegar og styðja við menntun ungra stúlkna í Sambíu hins vegar. 25. janúar 2024 07:00 Fyrirtæki ákærð og stjórnendur reknir fyrir að fegra upplýsingar „Fólk verður að átta sig á því að úti í hinum stóra heimi er verið að ákæra fyrirtæki og reka stjórnendur fyrir grænþvott, en grænþvottur kallast það þegar upplýsingar gefa til kynna að starfsemin sé grænni en hún er í raun. Þetta er staðan og þetta verður framtíðin ef fyrirtæki taka ekki alvarlega á sínum sjálfbærnimálum og fara að sýna raunverulegan árangur,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel. 10. nóvember 2022 07:01 Starfsfólk, hluthafar, fjölmiðlar og fleiri eiga að geta nýtt skýrslurnar „Þó samfélagsskýrslur þurfi að vera nokkuð ítarlegar, rökstuddar og byggðar á vísindalegum grunni má það ekki taka lesandann of langan tíma að fá skýra heildarmynd,“ segir Tómas Möller, formaður dómnefndar um val á Samfélagsskýrslu ársins 2021. 10. júní 2021 07:00 Vantar ekki fleiri styrki eða meiri peninga heldur einfalda hvata „Það sem er svo mikilvægt er að fólk fari að átta sig á er að hringrásarhagkerfið er nýsköpun í raunheimum þar sem tíminn er naumur og við þurfum að fá sem flesta til að hlaupa hratt. Það vantar ekki fleiri styrki eða meiri peninga. Það er nóg til af þeim og nóg til af hugmyndum. En það þarf leiðandi aðila til að eiga verkefnin og því þarf að búa til einfalda og almenna hvata svo að sem flestir geti hlaupið af stað,“ segir Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir. 25. janúar 2023 07:01 Samfélagsskýrsla ársins 2021: Aðkoma og eljusemi starfsfólks skiptir máli Í gær hlutu viðurkenningu fyrir Samfélagsskýrslu ársins 2021 fyrirtækin BYKO og Landsvirkjun. Þetta er í fyrsta sinn sem tvö fyrirtæki hljóta verðlaunin en að þeim standa Viðskiptaráð Íslands, Stjórnvísi og FESTA. 9. júní 2021 07:00 Covid setti alþjóðlegar áskoranir á stera „Ef öll fyrirtæki, bankar, tryggingaraðilar og fjárfestar aðlaga viðskiptamódel sitt að sjálfbærni, þá er hægt að umbreyta hættunni sem steðjar að í mun bjartari framtíðri,“ segir Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu. 2. desember 2020 12:00 Mest lesið Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Atvinnulíf Loka Krambúðinni á Húsavík Viðskipti innlent Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Atvinnulíf Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Neytendur Breskur fjárfestir leitar á náðir ríkisins vegna sæstrengs til Íslands Viðskipti innlent „Það eru bara fyrstu tvö skrefin sem eru erfið“ Atvinnulíf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hressilegt samtal: „Sorry, þið voruð samt ekki að gera neitt“ Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Forstjórinn sem myndi velja að klæðast rauðu út ævina ef... Rigning, rok, gular viðvaranir – og við ætlum að keyra á 110% Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Ekkert blabla: „Þetta er bara ógeðslega fokking erfitt og það má vera það“ Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Gigg-hagkerfið: Iðnaðarmenn sannreyndir og yfir þúsund í hundagöngu Erlendis fjölgar draugastörfum: Auglýsa störf sem ekki eru til „Gerðu grín að okkur og kölluðu „litlu strákana með litina““ Möguleg endalok ferilsins: Hræðist að tapa fyrir eiginkonunni Þegar allt er að fara fjandans til… Skipuleggur matseðil fjölskyldunnar á augabragði, passar upp á óþol og sparar í innkaupum Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Kaflaskil í vinnu: Hver er ég eftir uppsögn? Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Hreyfing: Ekki lengur þörf á að greiða tugi þúsunda yfir mánuðinn Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Sjá meira
„Svolítið blind á það hversu mikið forréttindafólk við erum“ Íslendingar eru eflaust að flytja meira út af þekkingu og reynslu í grænum lausnum en marga grunar um. Það er liður í því að styðja við vöxt íslenskra fyrirtækja erlendis, auka útflutning og efla samkeppnishæfni þjóðarinnar. 28. janúar 2026 07:00
Ísland eins og stefnumótasíða í sjávarútvegi Það er mjög gaman að upplifa ástríðu Benedek Regoczi fyrir hafið en Benedek er verkefnastjóri nýsköpunar hjá Sjávarklasanum. 29. janúar 2026 07:00
„Alltaf hægt að sjá tækifæri og fleira gott í stöðunni“ „Það sem mér finnst áhugaverðast þegar ég horfi til baka eru tækifærin sem liggja í þessu. Advania er til dæmis að kynna nýja lausn sem gerir fyrirtækjum kleift að halda utan um umhverfisáhrif með því að nýta gögn úr rafrænum reikningum. Lausnin auðveldar ferlið og þá nýtist það eins og mælitæki á árangurinn,“ segir Þóra Rut Jónsdóttir, forstöðumaður sjálfbærni og umbóta hjá Advania á Íslandi. 31. janúar 2025 07:01
„Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt“ „Mín ráðlegging væri alltaf sú að fyrirtæki reyni að draga úr öllu því sem það getur gert sjálft áður en það fer að kaupa kolefnisjöfnun til að jafna út bókhaldið. Að fyrirtæki líti inn á við áður en kolefnisjöfnun er keypt,“ segir Stefanía María Kristinsdóttir, sérfræðingur á framleiðslusviði hjá Nóa Síríus. 30. janúar 2025 07:02
Sjálfbærniskólinn opnar: Reglugerðin mun líka hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki „Vissulega nær reglugerðin aðeins til stærri fyrirtækja, með 250 manns eða fleiri og smærri félög tengd almannahagsmunum. Hugmyndafræðin nær hins vegar til allra fyrirtækja, sem þýðir að fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki munu breyttar leikreglur líka hafa áhrif,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri hjá Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans sem hefst í Opna Háskólanum, Háskóla Reykjavík í haust. 26. júní 2024 07:00
Ofuráhersla á umhverfismálin þegar sjálfbærnin snýst í raun um fólk „Oft leggjum við ofur áherslu á umhverfisvernd þegar við ræðum sjálfbærni. Loftslagsváin er vissulega aðkallandi og nauðsynlegt að fyrirtæki minnki kolefnisfótspor sitt. En í grunninn snýst sjálfbærni í um fólk,“ segir Ketill Berg Magnússon, mannauðsstjóri Marel í Norður Evrópu og einn af gestgjöfum Sjálfbærniskólans í Opna háskólanum. 26. júlí 2024 07:00
Sjálfbærniskólinn: Mörg fyrirtæki að gera geggjað góða hluti án þess að átta sig á því „Það eru mörg fyrirtæki að gera geggjaða hluti nú þegar, án þess endilega að átta sig á því að margt af því telst nú þegar til sjálfbærninnar,“ segir Elva Rakel Jónsdóttir framkvæmdastjóri Festu og gestgjafi í Sjálfbærniskólanum sem hefst í haust í Opna háskólanum, Háskóla Reykjavíkur. 27. júní 2024 07:00
Sjálfbærniskýrslan 2023: Verðlaunin staðfesta hvað Marel er að gera í sjálfbærnimálum „Við erum mjög hreykin af þessum verðlaunum sem staðfesta hvað við erum að gera í sjálfbærnimálum. Það hefur líka sýnt sig að það er leitni á milli þess að standa sig vel í sjálfbærnimálum og góðs reksturs,“ segir Árni Oddur Þórðarson forstjóri Marel og formaður Nordic CEOs for a Sustainable Future, en rétt í þessu var tilkynnt að Marel er verðlaunahafi Sjálfbærniskýrslu ársins 2023. 8. júní 2023 13:00
„Ég hef óbilandi trú á komandi kynslóðum“ „Þetta er bara áhættustýring 101“ segir Ásthildur Otharsdóttir meðal annars um hvers vegna fjármagn á að stuðla að sjálfbærri framtíð. 27. janúar 2022 07:00
Fimm sinnum fleiri fyrirtæki þurfa senn að upplýsa um sjálfbærni rekstursins „Það er nokkuð yfirgripsmikið verk að meta áhrifin til hlítar,“ segir Tómas Njáll Möller formaður Festu, aðspurður um hvaða áhrif breytingar á lögum og upplýsingagjöf um sjálfbæran rekstur munu hafa á fyrirtæki á Íslandi. 26. janúar 2022 07:01
Mikilvægt að tryggja að í upplýsingagjöf fyrirtækja séu engar hálfsagðar sögur „Grænþvottur á sér stað þegar fyrirtæki setur fram rangar eða villandi upplýsingar um það sem þau eru að gera í umhverfismálum. Þetta er ekkert alltaf gert viljandi. En það sem gerist þegar fyrirtæki eru uppvís að grænþvotti er að það getur skemmt út frá sér og dregið úr tiltrú fólks á umhverfismálin,“ segir Birgitta Steingrímsdóttir sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun. 8. desember 2022 08:44
Grænþvottur: Allir þurfa að vera fullvissir um að loforð standist Grænþvottur – Er allt vænt sem vel er grænt? er yfirskrift fundar sem IcelandSIF stendur fyrir næstkomandi mánudag, en IcelandSIF eru samtök fjármálafyrirtækja, lífeyrissjóða, tryggingafélaga og aukaaðila sem hefur það hlutverk að efla þekkingu félagsaðila á aðferðarfræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. 18. nóvember 2022 07:01
Selja kolefniseiningu sem tryggir stúlkum í Sambíu menntun og samsvarar einu tonni af CO2 Það kann að hljóma undarlega að með því að kaupa kolefniseiningar af fyrirtækinu SoGreen, ná fyrirtæki að slá tvær flugur í einu höggi: Að kolefnisjafna starfsemina sína annars vegar og styðja við menntun ungra stúlkna í Sambíu hins vegar. 25. janúar 2024 07:00
Fyrirtæki ákærð og stjórnendur reknir fyrir að fegra upplýsingar „Fólk verður að átta sig á því að úti í hinum stóra heimi er verið að ákæra fyrirtæki og reka stjórnendur fyrir grænþvott, en grænþvottur kallast það þegar upplýsingar gefa til kynna að starfsemin sé grænni en hún er í raun. Þetta er staðan og þetta verður framtíðin ef fyrirtæki taka ekki alvarlega á sínum sjálfbærnimálum og fara að sýna raunverulegan árangur,“ segir Þorsteinn Kári Jónsson forstöðumaður sjálfbærni og samfélagstengsla hjá Marel. 10. nóvember 2022 07:01
Starfsfólk, hluthafar, fjölmiðlar og fleiri eiga að geta nýtt skýrslurnar „Þó samfélagsskýrslur þurfi að vera nokkuð ítarlegar, rökstuddar og byggðar á vísindalegum grunni má það ekki taka lesandann of langan tíma að fá skýra heildarmynd,“ segir Tómas Möller, formaður dómnefndar um val á Samfélagsskýrslu ársins 2021. 10. júní 2021 07:00
Vantar ekki fleiri styrki eða meiri peninga heldur einfalda hvata „Það sem er svo mikilvægt er að fólk fari að átta sig á er að hringrásarhagkerfið er nýsköpun í raunheimum þar sem tíminn er naumur og við þurfum að fá sem flesta til að hlaupa hratt. Það vantar ekki fleiri styrki eða meiri peninga. Það er nóg til af þeim og nóg til af hugmyndum. En það þarf leiðandi aðila til að eiga verkefnin og því þarf að búa til einfalda og almenna hvata svo að sem flestir geti hlaupið af stað,“ segir Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir. 25. janúar 2023 07:01
Samfélagsskýrsla ársins 2021: Aðkoma og eljusemi starfsfólks skiptir máli Í gær hlutu viðurkenningu fyrir Samfélagsskýrslu ársins 2021 fyrirtækin BYKO og Landsvirkjun. Þetta er í fyrsta sinn sem tvö fyrirtæki hljóta verðlaunin en að þeim standa Viðskiptaráð Íslands, Stjórnvísi og FESTA. 9. júní 2021 07:00
Covid setti alþjóðlegar áskoranir á stera „Ef öll fyrirtæki, bankar, tryggingaraðilar og fjárfestar aðlaga viðskiptamódel sitt að sjálfbærni, þá er hægt að umbreyta hættunni sem steðjar að í mun bjartari framtíðri,“ segir Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu. 2. desember 2020 12:00
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf
Gekk um með töfrasprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervigreindina fyrir þriðju vaktina Atvinnulíf