Spaun var í spennandi stöðu fyrir fjórða og síðasta keppnisdaginn á Opna bandaríska mótinu á Oakmont-vellinum, og endaði á að vinna mótið með því að vera sá eini sem lék hringina fjóra samtals undir pari.
Hann greindi svo frá því eftir magnað sigurpútt sitt í gær að nóttin fyrir lokahringinn hefði verið nokkuð annasöm. Um klukkan þrjú þurfti hann nefnilega að skjótast eftir lyfjum fyrir dóttur sína sem var með magapest.
„Ég endaði á að skjótast í CVS (apótek) niðri í bæ vegna þess að dóttir mín (Violet, tveggja ára) var með magakveisu og hafði verið ælandi alla nóttina,“ sagði Spaun við fjölmiðla, eftir sinn langstærsta sigur á ferlinum. Sigur sem færir honum og fjölskyldu hans 4,3 milljónir dollara eða um 538 milljónir króna.
„Ég hugsaði bara með mér: „Jæja, konan mín er enn vakandi klukkan þrjú og Violet er búin að æla út um allt. Hún heldur engu niðri.“ Þetta var ansi erfið byrjun á deginum,“ sagði Spaun.
Hann hóf svo lokahringinn á að fá fimm skolla á fyrstu sex holunum í gær en hristi af sér slenið og fékk til að mynda fjóra fugla á síðustu sjö holunum.
„Ég ætla ekki að kenna þessari nótt um hvernig byrjunin hjá mér var en hún passaði ágætlega við það sem var búið að vera í gangi, þetta kaos,“ sagði Spaun.

„Alltaf barist í gegnum hvað sem er“
Þar til í gær hafði Spaun aðeins unnið eitt mót á PGA-mótaröðinni en þessi 34 ára kylfingur var þó í 25. sæti á síðasta heimslista.
„Ég held að þetta sé bara þrautseigja. Ég hef alltaf barist í gegnum hvað sem er til að komast þangað sem ég þurfti og ná því sem ég vildi.
Ég hef lent í lægðum á öllum stigum. Ég hef verið niðri. Maður komst upp úr því. Það er eins konar lítið mynstur, svo vonandi endurtekur það sig ekki. Þetta er í raun algjört hámark fyrir mig.
Þetta er klárlega eins og ævintýrabók, með ævintýralegum endi, eins konar lítilmagni sem berst á móti, gefst ekki upp, gefst aldrei upp. Það er ekki hægt að skrifa betri sögu. Ég er bara svo heppinn að fá að vera hluti af henni,“ sagði Spaun.