Setur heilsuna í fyrsta sæti í sumar Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 16. júní 2025 20:02 Anna Guðný Tryggvadóttir, eigandi Heilsa og vellíðan, leggur mikið upp úr heilsteyptu og rólegu sumri. Aðsend „Mitt helsta heilsuráð er að gefa sér rými til þess að vera eins mikið í náttúrunni og mögulegt er til þess að lágmarka streitu og auka lífsgleði,“ segir jógakennarinn og heilsumarkþjálfinn Anna Guðný Torfadóttir sem stefnir á að eiga heilsteypt sumar. „
Yfir sumartímann er náttúran okkur afar aðgengileg með meiri hlýju ásamt því að náttúran springur út með sínum ferska ilmi. Sjálf er ég að reyna að finna jafnvægi á milli þess að passa upp á að næra sjálfa mig vel ásamt því að vera hæfilega mikið á ferðinni að rækta leikgleði og ævintýraþrá,“ segir Anna Guðný og bætir við að það skipti hana miklu máli að næra sig og fjölskyldu sína á hreinan og heilsubætandi máta. „Ég gef mér því oft tíma og rými til þess að útbúa gott nesti fyrir langa keyrslu og ferðalög en það er bæði næringarríkara og ódýrara heldur en að stoppa á matsölustöðum. Við njótum því nestisins frekar á fallegum stöðum úti í náttúrunni eða jafnvel í bílnum til þess að fækka stoppum ef löng keyrsla er framundan.“ View this post on Instagram A post shared by Heilsa og Vellíðan (@heilsaogvellidan) Anna Guðný sem er sömuleiðis eigandi Heilsa og vellíðan segir andlega næringu ekki síður mikilvæga en hollan mat. „Mér finnst því gott að minna fólk á að hlusta á sínar þarfir og líðan daglega. Að hlúa virkilega að bæði líkama og sál á þann hátt sem bætir heilsu og eykur vellíðan. Því meira sem maður setur það í forgang að hlúa vel að sér því betur getur maður notið lífsins og gefið af sér til annarra. Þetta er líka mikilvægt fyrir þá sem eru með börn í sumarfríi en besta leiðin til að kenna þeim að hugsa vel um sig er með eigin fordæmi.“ Það er að sjálfsögðu persónubundið hvað nærir hvern og einn og segir Anna Guðný mikilvægt að skoða þetta án samanburðar. „Það er líka svo gott að hafa kjark til að gera nýja hluti sem kalla á þig þó það þýði að þú gerir það í einveru eða í nýjum hópi fólks. Ég skora á alla að prófa alls kyns leiðir til þess að hreyfa sig í náttúrunni og máta sig við ólíka afþreyingu sem nærir bæði leikgleði og hreyfiþörf.“ Hún deilir hér skothelldum heilsuráðum og girnilegri uppskrift: Sjálfsnæringar-uppskrift Önnu Guðnýjar Hugleiðsla og öndun á morgnana þegar ég vakna ásamt mjúku jógaflæði og teygjum. Hreyfing í náttúru, til dæmis göngutúrar, fjallgöngur eða útihlaup. Átta til níu klukkustunda svefn og halda svefnrútínu. Hafa með mér vatnsbrúsa og passa upp á að ná tveimur lítrum af vatni á dag sem ég drekk jafnt á milli máltíða. Búa til nærandi stundir með fólkinu mínu. Spila, leika, upplifa náttúruna og auðvitað njóta góðs matar. Hlusta á innsæið mitt og ferðast á þá staði sem að mig þyrstir í að sjá og upplifa. Að taka þá staði virkilega inn í núvitund í stað þess að elta uppi vinsælustu staðina og haka í einhver box. Halda mínu striki í mataræðinu en ég hef fundið að plöntumiðað mataræði hentar mér best. Auk þess sniðgeng ég unna sætu, glúten og allt það sem er unnið.“ Hér má sjá uppskrift af heilsusamlegum orkuboltum: Orkuboltar 200 g heslihnetur - ristaðar í ofni fyrst og hýðið svo nuddað af 1 dl dökkt tahini 300 g döðlur 4 msk lífr. kakóduft 2 msk kókosolía 50 g ristaðar kókosflögur ¼ tsk vanilluduft ¼ dl vatn Hnífsoddur gróft salt Hollir og bragðgóðir orkuboltar.Aðsend „Byrjaðu á því að rista heslihneturnar í ofni á 150°C þar til að hýðið byrjar að dökkna aðeins og losna síðan af. Hýðið er nuddað af heslihnetunum þegar þær hafa kólnað. Best er svo að setja kókosflögurnar inn í ofn í svona 8-10 mínútur eða þar til þær verða léttgylltar. Döðlur, tahini, kókosolía og örlítið salt er sett saman í matvinnsluvél þar til orðið að góðu deigi. Bættu svo kakói, vanilludufti, heslihnetum og kókosflögum saman við. Blandaðu þar til allt er orðið vel blandað saman. Ef deigið er of þurrt, þá má setja aðeins vatn saman við og blanda aftur. Deigið mótað í kúlur og sett í loftþétt ílát inn í ísskáp. Mjög sniðugt að taka svo með í bílinn í ferðalagið.“
Heilsa Matur Drykkir Uppskriftir Mest lesið Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Lífið Setur heilsuna í fyrsta sæti í sumar Uppskriftir Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Lífið Sveindís Jane og Rob ástfangin í Abu Dhabi Lífið Stjörnulífið: „Stefnir í skvísulæti og almenna kynvillu hjá þessum fjórum“ Lífið Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Lífið Svona verður dagskráin á 17. júní í Reykjavík Lífið Hefndi sín í tilefni af feðradeginum Lífið Stórstjörnur úr dansheiminum í Tjarnarbíói Menning Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Lífið Fleiri fréttir Setur heilsuna í fyrsta sæti í sumar Sjá meira