Þau eru mörg, þau eru fjölbreytt og þau skipta öllu máli - lítil og meðalstór (LMF) fyrirtæki á Íslandi eru burðarás í íslensku atvinnulífi. Íslandsbanki og Reykjavík Economics hafa gefið út fjórðu skýrsluna um stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi. Skýrslan nefnist Í gefnum brimskaflinn og byggir á rekstrarupplýsingum frá árinu 2023.
Dægurþras og stjórnmálaumræða snýst gjarnan í kringum stórfyrirtæki hér á landi en það vill oft gleymast að um 96% allra fyrirtækja í landinu tilheyra flokki lítilla og meðalstórra fyrirtækja og hjá þeim starfa um 45% alls starfsfólks á vinnumarkaðnum.
Sérstaða Íslandsbanka
Við hjá Íslandsbanka höfum lagt sérstaka áherslu á að þjónusta þennan hóp fyrirtækja og starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu og þekkingu á þörfum þeirra.

Skýrsla Reykjavík Economics og Íslandsbanka sýnir svart á hvítu að lítil og meðalstór fyrirtæki hafa sýnt mikla aðlögunarhæfni og þrautseigju á síðustu árum og það má segja að þau hafi staðist álagspróf raunhagkerfisins.
Þetta endurspeglast í því að eiginfjárstaða LMF hefur batnað og er í kringum 42%, þó svo að þróunin sé vissulega misjöfn milli atvinnugreina.Á sama tíma hefur arðsemi þeirra gefið nokkuð eftir og var um 7,8% árið 2023 miðað við 11,6% árið á undan. Við vitum að árið 2024 var rekstraraðilum einnig mjög þungbært enda vexti og verðbólga í hámarki. Það skiptir því miklu máli að vaxtalækkunarferlið haldi áfram og að stöðugleiki náist í rekstrarumhverfi íslenskra fyrirtækja.
Skriffinnskan ræður oft för
Það er ekki einungis hlutverk íslenskra stjórnvalda og stjórnmálamanna að tryggja stöðugleika í efnahagsumhverfinu, heldur eiga þau einnig að tryggja að leikreglurnar þrengi ekki óþarflega að smáum og meðalstórum fyrirtækjum.

Í skýrslunni kemur fram að flókið regluverk og ríki tilkynningarskylda til eftirlitsaðila og opinberra stofnana getur reynst litlum og meðalstórum fyrirtækjum mjög þungbær. Þungt regluverk og stjórnsýsla getur hamlað vexti og uppbyggingu, er kostnaðarsöm og skalanleiki m.v. stærð lítill. Við innleiðingu regluverks þurfa stjórnvöld og stofnanir að horfa til meðalhófsins, flækjast ekki um of í forminu heldur inntakinu og umfram allt að taka mið af þeim raunveruleika sem fyrirtæki glíma við í sínum daglega rekstri.
Við hjá Íslandsbanka erum afar stolt af því að vera öflugur bakhjarl lítilla og meðalstórra fyrirtækja á Íslandi. Það er einstaklega ánægjulegt að vinna með eigendum slíkra fyrirtækja. Þau sýna þrautseigju og þolgæði á erfiðum tímum, leyfa starfsfólki að njóta góðs af því þegar vel gengur og eru beintengd við það samfélag og viðskiptaumhverfi sem þau lifa og hrærast í.
Höfundur er framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Íslandsbanka.