Umræðan

Loddararnir slást um sæti við borð Trumps þar sem lygarnar ráða ríkjum

Max Hastings skrifar

Það er erfitt að skilja hvers vegna uppljóstranir um ósannindi Katie Zacharia, fyrrverandi blaðafulltrúa Hvíta hússins, hafa vakið jafn mikla undrun og raun ber vitni. Þessi glæsilega, 41 árs gamla kona frá Kaliforníu, virtist hafa alla burði til að gegna starfinu. Hún sagðist vera lögfræðingur, þótt hvergi í neinu af ríkjunum 50 fyndust gögn um að hún hefði öðlast málflutningsréttindi.

Hún hafði deilt færslu á Twitter, sem hún eyddi ekki fyrr en nýlega, þar sem Michelle Obama var sökuð um að hafa lagt á ráðin um morðið á Joan Rivers eftir að sú síðarnefnda hafði látið niðrandi ummæli falla um forsetafrúna í spjallþætti sínum.

Á sínum tíma hafði Zacharia einnig haldið á lofti þeirri samsæriskenningu að demókratar og Hollywood-stjörnur stæðu að mansali á börnum í kynferðislegum tilgangi og stunduðu mannát. Með slíkan feril að baki reyndist henni ekki sérlega erfitt að sannfæra forsetann um að hún væri einmitt rétta manneskjan til að tala fyrir hans hönd. Enda væri starfið varla við hæfi nokkurs manns sem hefði svo mikið sem lausleg kynni af sannleikanum.

Nú þegar nærri tvö ár eru liðin af síðara kjörtímabili Trumps er hætt við að heimurinn taki hverri nýrri holskeflu ósanninda frá forsetanum og stjórn hans með sífellt meiri uppgjöf og þreytu. Við hættum að láta okkur bregða. Við sættum okkur við að þetta sé orðið hið nýja eðlilega ástand.

Það eru mistök. Ef einhver von á að vera um að lýðræðisríkin, og þá sérstaklega það ríki sem eitt sinn var fremsta lýðræðisríki heims, haldi í siðferðislegan áttavita sinn eða finni hann á ný, verðum við öll að halda áfram að hrópa eins hátt og við getum: „Þetta er lygi!“ „Þetta er líka lygi!“ „Leiðtogi Bandaríkjanna er að ljúga!“

Nú þegar nærri tvö ár eru liðin af síðara kjörtímabili Trumps er hætt við að heimurinn taki hverri nýrri holskeflu ósanninda frá forsetanum og stjórn hans með sífellt meiri uppgjöf og þreytu.

Í þessari viku hélt Trump því fram að hann hefði haft milligöngu um „vopnahlé í orkumálum“ milli Rússlands og Úkraínu. Aðeins nokkrum klukkustundum síðar fyrirskipaði Pútín nýjar og stórfelldar árásir á orkumannvirki Úkraínu með skelfilegum afleiðingum. Bandaríkjaforseti sagði: „Selenskí hefði margoft getað samið um frið í þessu stríði. Margoft, aftur og aftur. En hann kýs að gera það ekki.“

Trump kallaði eftir því að Úkraínuforseti léti af embætti og kenndi honum um það háa verð sem bandarískir ökumenn þurfa að greiða fyrir dísilolíu, enda hefðu úkraínskar eldflaugar hæft olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi. Í rauninni er meginástæða vandans auðvitað sú að Hormússund er nánast ófært fyrir skipaflutninga eftir að Trump hóf stríð sitt gegn Íran.

Forsetinn sakar Selenskí um að vilja „valda heimsbyggðinni vandræðum. Hann vill skapa vandamál fyrir bændurna okkar og búfjárræktendur með því að hækka dísilolíuverð, enda sjá Rússar heiminum fyrir stórum hluta þeirrar dísilolíu sem hann notar.“ Trump varaði Selenskí við frekari árásum á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar og sagði: „Hann ætti fjandakornið að láta af þessu.“

Í vikunni urðu íbúar Kænugarðs skyndilega mun berskjaldaðri fyrir eldflaugaárásum Rússa þegar Bandaríkin skertu að hluta aðgang Úkraínumanna að Starlink-gervihnattakerfinu, sem gegnir lykilhlutverki við öflun upplýsinga fyrir loftvarnir landsins.

Á fyrra kjörtímabili Trumps skrásettu staðreyndavaktarar dagblaðsins The Washington Post alls 30.573 rangar eða villandi fullyrðingar forsetans. Það jafngildir að meðaltali 21 fullyrðingu á dag. Frá árinu 2024 hefur tíðni ósannindanna aukist með veldisvexti. Steve Benen, höfundur bókarinnar Ministry of Truth: Democracy, Reality and the Republicans’ War on the Recent Past, hefur tekið saman fjölda ósanninda forsetans. Þar á meðal eru þessar fullyrðingar:

„Eggjaverð hefur lækkað um 82 prósent frá því í mars og verð á öllu öðru fer líka hratt lækkandi.“

„Þegar ég tók við embætti hafði verðbólga ekki verið meiri í 48 ár, og sumir myndu segja að hún hefði aldrei verið meiri í sögu landsins.“

„Ég vann yfirburðasigur í kosningunum.“

„Her 25 milljóna manna var að gera innrás í landið okkar.“

„Það hefur lengi verið viðurkennd staðreynd að stjórnmálamenn ljúga,“ skrifaði Carole McGranahan í fræðitímaritið American Ethnologist árið 2017. „En Donald Trump er öðruvísi.“ Hún lýsti honum sem þeim stjórnmálamanni sem hefði náð lengst í listinni að ljúga og beitt henni með mestum árangri í sögu bandarískra stjórnmála. Ekki nóg með það, heldur hefðu ósannindi hans gjörbreytt opinberri umræðu, þannig að „tíðni, umfang og áhrif lyga í stjórnmálum eiga sér nú enga hliðstæðu“.

Bandaríkin eru komin í hendur óheiðarlegasta og fégráðugasta leiðtoga í sögu landsins. Hér er maður sem virðist reiðubúinn að fórna Úkraínu gegn því að hann sjálfur og fjölskylda hans fái aðgang að gríðarlegum viðskiptatækifærum í Rússlandi.

Þegar The Washington Post upplýsti í september að Bandaríkjastjórn leyndi raunverulegum fjölda bandarískra hermanna sem hefðu fallið eða særst í stríði Trumps gegn Íran birti Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagði:

„Þetta er VIÐBJÓÐSLEGT og UPPLOGIÐ. ALGJÖR LYGI.“ Fyrr í þessum mánuði uppfærði varnarmálaráðuneytið hins vegar opinberar tölur sínar í kyrrþey. Blaðið hafði sagt satt. Hegseth hafði logið.

Víðsvegar um Bandaríkin verja repúblikanar nú gríðarlegum fjármunum í áróðursauglýsingar þar sem illgjörnum ósannindum er haldið á lofti um frambjóðendur demókrata. Þar á meðal eru hundruð milljóna dala sem Elon Musk hefur lagt fram.

Hinn merki bandaríski rithöfundur Henry David Thoreau skrifaði um miðja nítjándu öld: „Það þarf tvo til að sannleikurinn komist til skila – einn til að segja hann og annan til að hlusta.“ En 38 prósent Bandaríkjamanna þverneita enn að hlusta. Þess vegna er alls ekki öruggt að repúblikanar missi meirihluta sinn í báðum deildum Bandaríkjaþings í þingkosningunum í næsta mánuði, þótt raunverulegar líkur séu á slíkri niðurstöðu.

Ég fékk auk þess tölvupóst í þessari viku frá gamalli vinkonu minni, fræðikonu í Pennsylvaníu, sem er ekki aðeins með gáfuðustu manneskjum sem ég þekki heldur einnig þeim skynsömustu. Hún óttast að jafnvel þótt Donald Trump bíði afhroð í kosningunum muni hann beita öllum þeim valdheimildum og úrræðum sem hann hefur yfir að ráða, þar á meðal Hæstarétti Bandaríkjanna sem hefur oftast reynst honum hliðhollur, til að ógilda niðurstöðu kjósenda ef hún verður honum ekki að skapi.

Bandaríkin eru komin í hendur óheiðarlegasta og fégráðugasta leiðtoga í sögu landsins. Hér er maður sem virðist reiðubúinn að fórna Úkraínu gegn því að hann sjálfur og fjölskylda hans fái aðgang að gríðarlegum viðskiptatækifærum í Rússlandi. Og óhugnanlega margir Bandaríkjamenn eru enn tilbúnir að fylgja honum hvert sem hann fer.

Ég mæli með nýrri bók blaðamannsins Jacobs Weisberg, Profiles in Cowardice, sem er eins konar andsvar við bók Johns F. Kennedy, Profiles in Courage. Þar eru nafngreindir og teknir til bæna ýmsir áhrifamenn í bandarísku samfélagi sem áður voru andstæðingar Trumps en eru nú orðnir dyggustu skósveinar hans. Einn þeirra sem fjallað er um í bókinni er Stephen Schwarzman, stofnandi og forstjóri fjárfestingafélagsins Blackstone, en eignir hans eru metnar á meira en 40 milljarða dala. Hann hefur gefið fimm milljónir dala til byggingar nýs veislusalar Trumps við Hvíta húsið.

Schwarzman keypti nýlega stóra veiðijörð í Hampshire, skammt frá sveitasetri okkar.

Þetta er birtingarmynd einhvers miklu alvarlegra og óhugnanlegra, og Úkraínumenn eru aðeins þau fórnarlömb sem mest ber á.

Það sem vekur mesta óbeit mína er að fjöldi þeirra Breta sem telja sig til helstu máttarstólpa þjóðfélagsins bíður nú í röðum eftir að fá að njóta rausnarlegrar gestrisni Schwarzmans. Ef þessu fólki væri í hið minnsta annt um lýðræðið og Bandaríkin – og já, ég veit vel að Schwarzman hefur fjármagnað bókasafn í Oxford – myndi það neita að taka í höndina á honum. Þess í stað hafa gestir hans slegist í hóp með honum og orðið að hugsunarlausum fylgisveinum í heimi Trumps.

Þegar Zacharia stóð við hlið forsetans á þriðjudag var hún spurð í hvaða bandaríska ríki hún hefði staðist lögmannspróf sem veitti henni rétt til að kalla sig lögfræðing. Hún svaraði: „Þegar ég flutti til Kína.“

Í gærkvöldi hafði henni verið vikið úr starfi. En ekkert af þessu er fyndið. Þetta er birtingarmynd einhvers miklu alvarlegra og óhugnanlegra, og Úkraínumenn eru aðeins þau fórnarlömb sem mest ber á.


Lausleg þýðing á grein sem birtist eftir Max Hastings á vefsíðu The Times föstudaginn 16. október síðastliðinn.

Max Hastings er blaðamaður og sagnfræðingur sem skrifar fyrir The Sunday Times. Hann var áður aðalritstjóri The Daily Telegraph og ritstjóri The Evening Standard. Hann hefur skrifað fjölda metsölubóka um sagnfræði, sem margar hverjar hafa verið þýddar á íslensku, meðal annars All Hell Let Loose: The World at War 1939–45, The Korean War, Abyss: The Cuban Missile Crisis 1962 og Vietnam: An Epic Tragedy 1945–1975.


Tengdar fréttir

Telja ótíma­bært að af­skrifa NATO þrátt fyrir áföllin í for­setatíð Trumps

 Víðfemt net bandalaga vestrænna ríkja undir forystu Bandaríkjanna hefur orðið fyrir meira tjóni á fyrstu átján mánuðum síðara kjörtímabils Donalds Trump en á öllu því fyrra. Tveir fyrrverandi háttsettir embættismenn Bandaríkjastjórnar telja engu að síður að NATO geti staðið af sér áfallið og jafnvel orðið öflugra, að því gefnu að það takist að endurmóta sambandið við Evrópu og endurvekja traust á því að Washington standi við varnarskuldbindingar sínar.




Umræðan

Sjá meira


×