Bernardo Silva nýr fyrirliði Manchester City Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. júní 2025 13:01 Bernardo Silva með Meistaradeildarbikarinn en nú tekur hann við þeim bikurum sem City vinnur á komandi tímabili. Getty/Visionhaus Pep Guardiola er búinn að finna nýjan fyrirliða hjá Manchester City fyrir komandi tímabili.
Portúgalinn Bernardo Silva tekur nú við fyrirliðabandinu. Rúben Dias, Rodri og Erling Haaland verða varafyrirliðar. Þetta gæti verið síðasta tímabil Bernardo Silva hjá City en samningur hans rennur út næsta sumar. Hinn þrítugi Silva kom til City frá Mónakó árið 2017. Hann hefur verið orðaður við æskufélagið sitt Benfica. Pep gerði Kyle Walker að fyrirliða liðsins fyrir ári síðan en það endaði ekki vel, hvorki fyrir liðið né Walker sjálfan. City átti mjög slakt tímabil á þeirra mælikvarða og vann engan titil eftir margra ára sigurgöngu. Walker fór á endanum á láni til AC Milan í janúar. Hann er ekki í hóp City í heimsmeistarakeppni félagsliða. Guardiola hefur verið afar duglegur að skipta um fyrirliða á síðustu árum en oftar en ekki er það komið til vegna þess að viðkomandi leikmaður hefur yfirgefið City. Silva gæti bæst í þann hóp. Hingað til hafa leikmennirnir sjálfir kosið sér nýjan fyrirliða en eftir vonbrigðin á síðasta tímabili þá tók Pep Guardiola þá ákvörðun að velja sjálfur fyrirliðann í þetta skiptið. View this post on Instagram A post shared by SPORTbible (@sportbible)
Enski boltinn Mest lesið „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann Sport Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Körfubolti Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Körfubolti Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Fleiri fréttir „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Sjá meira