Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Árni Sæberg skrifar 22. júlí 2025 17:12 Gengi hlutabréfa í Play hefur aldrei verið lægra. Vísir/Vilhelm Dagslokagengi flugfélagsins Play er aðeins 46 aurar á hlut og hefur aldrei verið lægra við lokun markaða. Gengið fór lægst niður í 37 aura í dag.
Gengi Play stóð í 60 aurum á hlut þegar markaðir lokuðu í gær og hafði þá aldrei verið lægra í dagslok. Eftir lokun markaða í gær gaf Play út neikvæða afkomuviðvörun þar sem kom fram að félagið reiknaði með því að taka tæplega tveimur milljörðum króna á öðrum ársfjórðungi ársins, samanborið við um 1,2 milljarð tap á sama tíma í fyrra. Fjárfestar, en þó fáir, tóku ekki vel í tíðindin og gengi félagsins lækkaði enn frekar við opnun markaða í morgun. Lægst fór það í 37 aura á hlut, eða um fjörutíu prósent lægra en í gær. Nú þegar mörkuðum hefur verið lokað stendur gengi félagsins í 46 aurum. Það er 1,9 prósent af gengi bréfa félagsins þegar það var skráð á markað í júlí árið 2021. Hlutabréfagreinandi sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar að sveiflur sem þessar hefði lítið að segja um raunverulegt virði félagsins. „Í raun og veru er félagið mjög verðlítið ef gengið er undir svona einum og hálfum og það er mjög lítil velta sem liggur á bak við þetta, vegna þess að þegar félagið er ekki nema nokkur hundruð milljóna virði, þá er voðalega lítið hægt að lesa út úr því. Þó að sveiflan sé mikil í prósentum talið þá er hún lítil í verðmæti félagsins í raun og veru,“ sagði Snorri Jakobsson.
Play Fréttir af flugi Fjármálamarkaðir Kauphöllin Mest lesið Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira