Viðskipti innlent

Tvö fjöl­býlis­hús í stað bensín­stöðvar á Háa­leitis­braut

Lovísa Arnardóttir skrifar
Svona munu húsin líta út. Torgið við annað húsið er séð frá Álftamýri í þessari teikningu. 
Svona munu húsin líta út. Torgið við annað húsið er séð frá Álftamýri í þessari teikningu.  Tröð

Arkitektastofan Tröð kynnti í vikunni tillögu að breytingu á lóð við Háaleitisbraut 12 þar sem áður var rekin bensínstöð. Í dag er þar rekin bílasala en var áður hjólabúðin Kría, eftir að bensínstöðinni var lokað. Tillaga Traðar gerir ráð fyrir á reitnum verði reist tvö fjölbýlishús með allt að 63 íbúðum og 300 fermetra verslunarrými, auk kjallara fyrir bæði bíla og geymslur.

Deiliskipulagsbreytingin byggir á samningi milli Reykjavíkurborgar og Atlantsolíu um lokun bensínstöðva. Lóðin er 1.910 m2, en deiliskipulagsbreytingin gerir ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 786 m2 og verður lóðin þá um 2.695 m2 eftir breytingu.

Deiliskipulagið gerir ráð fyrir tveimur fjölbýlishúsum við Háaleitisbraut. Á vesturhluta lóðarinnar er fjögurra til fimm hæða hús og á austurhluta lóðarinnar er fjögurra til sex hæða hús. Heimild er fyrir þaksvölum og kjallara.

Dvalarsvæði eru milli húsanna og sunnan við þau. Í austasta húsinu á götuhæð að Háaleitisbraut er gert ráð fyrir verslun og þjónustu. Á jarðhæð í vestasta húsinu og á efri hæðum beggja húsa verða fjölbreyttar íbúðir að stærð og komið til móts við kröfur Reykjavíkurborgar um félagslega blöndun.

Arkitektastofan kynnti tillögu sína á fundi umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar í vikunni. Við það tilefni lögðu fulltrúar Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands, Flokks fólksins og áheyrnarfulltrúi Vinstri grænna bókun þar sem kom fram að reiturinn væri spennandi uppbyggingarreitur. Hann sé aðþrengdur á öllum hliðum og það verði því krefjandi verkefni að koma fyrir byggð á reitnum sem falli vel að nærumhverfinu.

„Fyrirliggjandi tillögur gera ráð fyrir björtum og sólríkum íbúðum um leið og ný byggð mætir Álftamýrinni til suðurs vel með litlu torgi og grænum jaðri næst götunni. Eftir stendur þó að móta nýja byggð þannig að hún mæti Háaleitisbraut betur, til vesturs og norðurs. Nauðsynlegt er að skoða þar atriði áfram eins og til dæmis aðkomu í bílakjallara, sjónás niður Álftamýri, blöndun þjónustu og íbúða á jarðhæð og ásýnd jarðhæðar reitsins að Háaleitisbraut,“ segir að lokum í bókuninni.

Bensínstöðvasamkomulag

Breytingunni á lóðinni er hluti af frumkvæði borgarinnar að loka bensínstöðvum en fyrstu drög að því samkomulagi voru gerð árið 2021. Aðrar bensínstöðvar sem hefur verið lokað og á að byggja upp eru til dæmis við Birkimel og Ægisíðu. Í samræmi við samkomulagið fær lóðarhafi það verkefni að þróa uppbyggingu íbúða á svæði í samráði við skipulagsfulltrúa um skipulag lóðar.

Í kynningu Traðar sem er að finna í fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs er að finna athugasemdir frá sviðinu frá því í maí á þessu ári. Þar segir að draga þurfi úr lóðastækkun mót vestri til að rýmka fyrir sjónás frá Álftamýri mót norðri og um leið gefa núverandi göngustíg í borgarlandi betra rými. Þá segir að betra sé að taka burt rampa og leysa aðkomu í bílakjallara með bílalyftu frá Álftamýri. Þá þurfi að koma fyrir þjónusturými á jarðhæð íbúðablokkar vestan við lagnakvöð Veitna sem muni snúa að Háaleitisbraut sem þýði að hæðin muni ná að opna sig betur fyrir borgarrýminu fyrir utan og um leið ná að byggja undir frekari borgarþróun við Háaleitisbraut.

Svona mun húsið líta út ef horft er frá Álftamýri að Lágmúla. Tröð

Þá er einnig fjallað í athugasemdum að það þurfi að sýna núverandi horf gangbrautar og strætóstoppistöð á Háaleitisbraut til að gefa almenningi betri yfirsýn svo hægt verði að leggja betur mat á breytingarnar auk þess sem þörf sé á að skýra betur fyrirkomulag bílastæða í tengslum við þjónusturými. Þá segir að skert lóðarstækkun mót vestri muni framkalla nokkra fækkun íbúða sem þýðir að dregið verði almennt úr umfangi uppbyggingarinnar í umhverfinu og einnig minni þörf á fjölda bílastæða.

Hljóðstig verði yfir viðmið á ákveðnum stöðum

Í kynningunni er einnig að finna umfjöllun um hávaðaútreikninga sem voru framkvæmdir vegna uppbyggingarinnar. Við rannsókn hafi komið fram að hljóðstig verði yfir viðmiðum og því verði að gæta þess að allar íbúðir hafi yfirbyggðar svalir og verði með hljóðláta hlið. Þá segir að skoða þurfi vel hönnun og útfærslu á byggingartæknilegum lausnum, sem hafi áhrif á hljóðvist, eins og gerð glugga og loftræstikerfis, á hönnunarstigi.

Þá verði gert ráð fyrir því að settur verði skjólveggur á milli húsa og við Álftamýri, til að uppfylla viðmið umhávaða á dvalarsvæði, ásamt dvalarsvæðum staðsettum á þökum húsanna. Einnig er gert ráð fyrir að íbúðir hafi svalir sem hafa möguleika á svalalokun til að tryggja hljóðláta hlið að lágmarki á einni hlið hverrar íbúðar.

Þá segir að nauðsynlegt verði að gera nýja útreikninga þegar lokahönnun liggur fyrir. Breytingar á legu, hæð og umhverfi hafa áhrif á hljóðstig sem reiknast við húshlið byggingar.

Götumyndin í dag. já.is

Góð tenging við almenningssamgöngur og bílakjallari

Í kynningunni er einnig að finna samgöngumat. Þar kemur fram að gert séð ráð fyrir því að það verði bílastæði í kjallara og á lóð við Álftamýri. Lagt er til að heildarfjöldi bílastæða verði 41 og heildarfjöldi hjólastæða á reitnum verða 135. Þá segir að góðar tengingar séu á svæðinu við almenningssamgöngur og hjólastíga.

Háaleitisbraut 12 ef horft er frá Háaleitisbraut. Tröð

Í dag séu tvær tengingar við Háaleitisbraut, innakstur og útakstur og ein tvístefnutenging við Álftamýri. Samkvæmt upplýsingum frá rekstraraðila eldsneytissölu um áfyllingar eru um 160 bílferðir um bensínstöðina. Umferð vegna bílasölu er sambærileg og er áætluð um 160 bílferðir. Umtalsverð umferð er um lóðina til viðbótar við umferð vegna eldsneytissölu og verslunarreksturs, þar sem talsvert er um gegnumakstur um lóðina, fram hjá ljósastýrðum gatnamótunum við Háleitisbraut og Safamýri. Umferð vegna gegnumaksturs er áætluð 360-540 bílferðir. Umferðarsköpun lóðarinnar í dag er áætluð 680-860 bílferðir á sólarhring

Í greiningu í samgöngumati segir að eftir uppbyggingu verði ein tenging við lóðina um Háleitisbraut í bílageymslu. Umferðartengingum lóðarinnar muni þannig fækka um tvær vegna uppbyggingar á lóðinni og er uppbyggingin ekki talin hafa teljandi umferðaraukandi áhrif á gatnakerfið í grennd. 

Á myndinni má sjá hversu há húsin verða með tilliti til húsa sem eru þegar í Lágmúla. Tröð

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×