Blæs hressilega af austri á landinu Atli Ísleifsson skrifar 26. ágúst 2025 07:14 Hiti á landinu verður frá ellefu til 21 stig, hlýjast norðan- og vestantil. Vísir/Arnar Leifar fellibylsins Erin er nú um 450 kílómetra suður af Vestmannaeyjum og er þrýstingur í miðju hennar 962 millibör, sem er mjög djúpt fyrir árstímann. Það mun enda blása hressilega af austri á landinu í dag.
Veðurstofan gerir ráð fyrir allhvössum eða hvössum vindi sunnanlands og hvassast allra syðst, og víða strekkingi í öðrum landshlutum. Gul viðvörun tekur gildi á Suðurlandi klukkan 12 og verður í gildi til klukkan 20 í kvöld. „Súld og rigning verður viðloðandi um landið sunnan- og austanvert. Norðan- og vestanlands verður hins vegar lítil úrkoma og jafnframt nokkuð hlýtt, kringum 20 stig þegar best lætur, enda loftið yfir landinu hlýtt og að hluta til ættað innan úr fellibylnum. Á morgun gera spár ráð fyrir að títtnefnd lægð verði áfram fyrir sunnan landið, en grynnist hratt og vindur gefur því eftir. Súld ennþá á suðaustan- og austanverðu landinu. Í öðrum landshlutum skýjað með köflum með möguleika á smávegis skúrum hér og þar og áfram hlýtt,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Austan og suðaustan 5-13 m/s. Skýjað með köflum og stöku skúrir norðan- og vestanlands, en súld eða rigning við suðaustur- og austurströndina. Hægari vindur seinnipartinn. Hiti 10 til 20 stig, hlýjast á Norður- og Vesturlandi. Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt 3-8. Bjart með köflum, en líkur á skúrum síðdegis. Hiti 12 til 18 stig. Þokuloft við austurströndina og svalara. Á föstudag og laugardag: Norðaustlæg átt. Súld eða rigning af og til norðan- og austanlands. Skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir suðvestantil. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. Á sunnudag: Norðanátt með vætu á norðurhelmingi landsins og hita 7 til 11 stig. Bjart með köflum sunnantil með stöku skúrum síðdegis og hita að 17 stigum. Á mánudag: Fremur hæg breytileg átt, skýjað að mestu og dálítil væta í flestum landshlutum. Hiti 8 til 15 stig.
Veður Mest lesið Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Fleiri fréttir Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Önnur lægð nálgast landið Fylgstu með óveðrinu ganga yfir Vaktin: Austanbylur annan í páskum Sjá meira