Viðskipti innlent

Syndis kaupir sænskt fyrir­tæki

Samúel Karl Ólason skrifar
Anton Egilsson, forstjóri Syndis.
Anton Egilsson, forstjóri Syndis.

Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur fest kaup á sænska fyrirtækinu IT-Säkerhetsbolaget, sem sagt er eitt traustasta netöryggisfyrirtæki Svíþjóðar. Kaupin eiga að styðja við vöxt Syndis og aukna eftirspurn eftir þjónustu fyrirtækisins á Norðurlöndum.

Anton Egilsson, forstjóri Syndis, segir í tilkynningu að Syndis og ITSB deili ekki eingöngu markmiðum heldur einnig hugarfari.

„Bæði fyrirtækin byggja á djúpri tæknilegri sérþekkingu og traustu samstarfi við viðskiptavini. Með sameiningunni getum við nýtt styrkleika hvors annars og aukið slagkraft okkar á sviðum sem við þekkjum vel. Kaupin styðja einnig mjög vel við okkar vöxt og þá auknu eftirspurn sem hefur verið á okkar þjónustu á Norðurlöndunum.“

Kaupin eiga að hafa lítil áhrif á núverandi viðskiptavini fyrirtækjanna, fyrir utan það að aðgengi þeirra að sérfræðiþekkingu á að aukast. Með sameiningu tveggja öryggisfyrirtækja sem eru sérhæfði í vörnum rekstri fyrirtækja.

IT‐Säkerhetsbolaget var stofnað árið 2012 og er með höfuðstöðvar í Sundsvall, Svíþjóð. ITSB hefur, samkvæmt áðurnefndri tilkynningu, áralanga reynslu á sviði gagnaöryggis, persónuverndar og tæknilegra lausna sem mæta þörfum bæði einkaaðila og opinberra aðila.

„Með sameiginlegum gildum, breiðara þjónustuframboði og sterkari fótfestu á Norðurlöndum horfum við björtum augum til framtíðar. Vöxtur Syndis síðustu ár hefur verið mikill og styrkt stöðu okkar sem leiðandi aðila í netöryggismálum á Íslandi og víðar. Með sameiningunni tökum við næsta skref í þeirri vegferð. Við þökkum öllum viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir traustið og stuðninginn sem gerir þennan vöxt mögulegan,“ segir Guðjón Ingi Ágústsson, rekstrarstjóri Syndis.


Tengdar fréttir

Skæður hakkara­hópur herjar á fram­línu­starfs­menn

Erlendur netþrjótahópur hefur nýlega gert flugfélög að skotmörkum sínum. Hópurinn hefur náð að valda miklum skaða og segir forstöðumaður ráðgjafarsviðs Syndis mikilvægt fyrir íslensk fyrirtæki að vera meðvituð um aðferðirnar sem notaðar eru. 

Syndis kaupir Ísskóga

Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur gengið frá kaupum á ráðgjafarfyrirtækinu Ísskógum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×